Netöryggi
Öruggar og áreiðanlegar stafrænar lausnir eru nauðsynlegar fyrir samfélagið, atvinnulífið og opinbera þjónustu. Netöryggissvið Fjarskiptastofu hefur eftirlit með net- og upplýsingaöryggi hjá fjarskiptafyrirtækjum, rekstraraðilum stafrænna grunnvirkja og veitendum stafrænnar þjónustu.Hlutverk sviðsins er að fylgjast með því að lög, reglur og kröfur á sviði netöryggis séu uppfyllt. Starfið byggir meðal annars á lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða og lögum um Fjarskiptastofu.
Markmið þessara hlutverka er að efla samstarf, samræmi og þekkingarmiðlun og stuðla þannig að auknu netöryggi mikilvægra innviða á Íslandi.
Netöryggissvið metur stöðu net- og upplýsingaöryggis hjá eftirlitsskyldum aðilum og hefur yfirsýn yfir áhættustýringu, öryggisráðstafanir og viðnámsþrótt stafrænna innviða og fjarskiptaneta.Markmið eftirlitsins er að stuðla að auknu öryggi og traustari stafrænni þjónustu. Eftirlitið er áhættumiðað og er framkvæmt með það að leiðarljósi að það sé skilvirkt, samræmt og gagnsætt.
Við mat á stöðu netöryggis notar Fjarskiptastofa meðal annars sjálfsmat, úttektir, prófanir og greiningu öryggisatvika.Fjarskiptastofa sinnir einnig eftirliti með rafrænni auðkenningu og traustþjónustu og veitir leiðbeiningar um framkvæmd netöryggiskrafna.Hér finnur þú upplýsingar um helstu verkefni netöryggissviðs, eftirlit, kröfur á sviði netöryggis og tilkynningar um öryggisatvik.
Fjarskiptastofa gegnir ráðgefandi samhæfingarhlutverki á sviði net- og upplýsingaöryggis mikilvægra innviða samkvæmt lögum nr. 78/2019. Hlutverkið felst í að stuðla að samræmdri framkvæmd netöryggislöggjafar, styðja við samstarf eftirlitsstjórnvalda og miðla þekkingu og upplýsingum um netöryggismál.
Fjarskiptastofa er jafnframt sameiginlegur tengiliður Íslands (Single Point of Contact – SPOC) í evrópsku samstarfi samkvæmt NIS-tilskipuninni. Í því felst að vera miðlægur tengiliður við önnur ríki og stofnanir Evrópusambandsins, taka þátt í samstarfi um framkvæmd netöryggislöggjafar og stuðla að upplýsingamiðlun og samhæfingu milli Íslands og annarra Evrópuríkja.

Eftirlit
Fjarskiptastofa hefur eftirlit með net- og upplýsingaöryggi hjá fjarskiptafyrirtækjum, rekstraraðilum stafrænna grunnvirkja og veitendum stafrænnar þjónustu.

Sjálfsmat
Fjarskiptastofa metur fyrirkomulag netöryggismála og umgjörð áhættustýringar fjarskiptafyrirtækja og rekstraraðila stafrænna grunnvirkja meðal annars með því að leggja fyrir spurningalista þar sem fyrirtæki og rekstraraðilar meta stöðu sína gagnvart lágmarkskröfur til netöryggis.

Úttektir og prófanir
Fjarskiptastofa framkvæmir úttektir og prófanir til að meta hvort fjarskiptafyrirtæki og rekstraraðilar stafrænna grunnvirkja uppfylli kröfur laga og reglna. Markmiðið er að fá skýra mynd af stöðu öryggismála og greina hvar þörf er á úrbótum.

Forskoðun öryggisatvika
Fjarskiptastofa forskoðar öryggisatvik til að meta alvarleika þeirra og hvort öryggisráðstafanir og verklag uppfylli kröfur. Málum lýkur yfirleitt með niðurstöðubréfi og eftir atvikum ábendingum um úrbætur. Ef tilefni er til hefst formleg stjórnsýsluskoðun sem getur leitt til stjórnvaldsákvörðunar.
