Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Stöðumat netöryggis

Velkomin í stöðumat netöryggis

 

Gott netöryggi byrjar á því að þekkja eigin stöðu.


Fjarskiptastofa býður upp á stöðumat netöryggis sem er opið öllum fyrirtækjum og stofnunum sem vilja fá betri yfirsýn yfir netöryggisstöðu sína og greina tækifæri til umbóta.


Með því að svara spurningum um skipulag, stjórnun og öryggisráðstafanir geta þátttakendur fengið vísbendingar um þroskastig netöryggis innan sinnar starfsemi, styrkleika og þá þætti sem ástæða er til að efla.


Stöðumatið byggir á spurningum og matsviðmiðum sem Fjarskiptastofa nýtir við framkvæmd eftirlits samkvæmt lögum nr. 78/2019 um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða og reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Hér eru þau hins vegar sett fram sem hagnýtt verkfæri fyrir alla sem vilja vinna markvisst að bættu netöryggi.


Hver spurning í stöðumatinu hefur fjóra svarmöguleika: „já“, „í innleiðingu“, „í vinnslu“ og „nei“. Svarmöguleikinn „já“ á við þegar öryggisráðstöfunin sem spurt er um er til staðar. Svarmöguleikinn „í innleiðingu“ á við þegar ákvörðun hefur verið tekin um tiltekna öryggisráðstöfun og vinna við innleiðingu hennar er hafin, en henni er ekki að lokið. Svarmöguleikinn „í vinnslu“ á við þegar vilji er til staðar til að koma á tiltekinni öryggisráðstöfun og unnið er að útfærslu hennar. Þá á svarmöguleikin “nei“ við þegar öryggisráðstöfun er ekki til staðar.


Niðurstöður stöðumats netöryggis

Að loknu stöðumati fá þátttakendur niðurstöður á kvarða, frá 0 til 3, sem gefa vísbendingar um þroskastig netöryggis og hversu vel öryggisráðstafanir samræmast viðmiðum stöðumatsins.


Niðurstöður eru flokkaðar í fjögur þroskastig með eftirfarandi hætti:

  • Vísbendingar um hátt þroskastig netöryggis
  • Vísbendingar um gott þroskastig netöryggis
  • Vísbendingar um að styrkja þurfi þroskastig netöryggis
  • Vísbendingar um lágt þroskastig netöryggis


Mikilvægar upplýsingar og fyrirvarar

Stöðumat netöryggis er ekki hluti af lögbundnu eftirliti Fjarskiptastofu, heldur er því ætlað að styðja fyrirtæki og stofnanir við að meta eigin netöryggisstöðu og greina tækifæri til umbóta.


Niðurstöður stöðumats netöryggis byggjast alfarið á þeim upplýsingum sem þátttakendur veita og eigin mati þeirra á stöðu starfseminnar. Þær eru því eingöngu leiðbeinandi og fela hvorki í sér formlega úttekt, vottun né staðfestingu Fjarskiptastofu á netöryggisstöðu viðkomandi.


Þótt stöðumatið byggi á viðmiðum sem eiga sér stoð í gildandi netöryggisregluverki fela niðurstöðurnar ekki í sér bindandi mat á því hvort viðkomandi uppfylli kröfur laga nr. 78/2019 eða reglugerða settum á grundvelli þeirra.


Stöðumatið kemur ekki í stað lögbundinna skyldna aðila og hefur ekki áhrif á eftirlitsheimildir Fjarskiptastofu.


Meðferð upplýsinga

Svör og niðurstöður stöðumatsins eru hvorki vistaðar hjá Fjarskiptastofu né rekjanlegar til einstakra þátttakenda.


Fjarskiptastofa hvetur alla til að nýta stöðumat netöryggis til að taka stöðuna, greina tækifæri til umbóta og stíga næstu skref í átt að auknu netöryggi.

Skref 1 af 15

Öryggisráðstafanir og skipulag í upplýsingaöryggismálum

Er til staðar stjórnskipulag eða stjórnkerfi um rekstur net- og upplýsingakerfa til dæmis í formi stjórnunarkerfis um upplýsingaöryggi (e. Information security management system (ISMS))?

Eru til staðar skjalfestar stefnur eða verkferlar sem nauðsynlegir eru til að tryggja ásættanlega vernd og öryggi net- og upplýsingakerfa?

Er til staðar skilgreining á mismunandi ábyrgð og hlutverkum starfsmanna í öryggismálum?

Er tryggt að öryggisráðstafanir s.s. stefnur/verkferlar séu rýndar og endurskoðaðar reglulega þá eigi sjaldnar en á tveggja ára fresti?

Er tryggt að öryggisráðstafanir séu endurskoðaðar þegar atvik eða áhætta kemur upp?