Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Eftirlit

Fjarskiptastofa hefur eftirlit með net- og upplýsingaöryggi hjá fjarskiptafyrirtækjum, rekstraraðilum stafrænna grunnvirkja og veitendum stafrænnar þjónustu.

Hlutverk netöryggissviðs er að hafa eftirlit með lögum, reglugerðum og reglum um netöryggi sé fylgt. Starfið byggir meðal annars á lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða nr. 78/2019 og lögum um fjarskipti nr. 70/2022.

Eftirlitið fer m.a. fram með sjálfsmati eftirlitskyldra aðila, úttektum, prófunum og rannsókn öryggisatvika.

Stefna Fjarskiptastofu um fyrirkomulag og framkvæmd eftirlits
Stefna Fjarskiptastofu um fyrirkomulag og framkvæmd eftirlits lýsir því hvernig stofnunin hefur eftirlit með netöryggi hjá fjarskiptafyrirtækjum, rekstraraðilum stafrænna grunnvirkja og veitendum stafrænnar þjónustu.
Í stefnunni kemur fram hvernig eftirlitið er skipulagt, hvaða aðferðir eru notaðar og hvaða sjónarmið gilda við framkvæmd þess. Stefnan byggir á lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða nr. 78/2019 og lögum um fjarskipti nr. 70/2022.

Meginmarkmið eftirlits Fjarskiptastofu er að stuðla að auknu öryggi og viðnámsþrótti í net- og upplýsingakerfum eftirlitsskyldra aðila. Framkvæmd eftirlits er áhættumiðuð og er leitast við að hafa hana skilvirka og tímanlega fyrir stofnunina og eftirlitskylda aðila. Að auki er haft að leiðarljósi að eftirlit með net- og upplýsingaöryggi fjarskiptafyrirtækja og rekstraraðilum nauðsynlegrar þjónustu sé samræmt og að aðilar njóti jafnræðis.

Sjá stefnu hér