Sjálfsmat
Fjarskiptastofa metur fyrirkomulag netöryggismála og umgjörð áhættustýringar fjarskiptafyrirtækja og rekstraraðila stafrænna grunnvirkja meðal annars með því að leggja fyrir spurningalista þar sem fyrirtæki og rekstraraðilar meta stöðu sína gagnvart lágmarkskröfur til netöryggis.
Tilgangur með slíku sjálfsmati er aukin yfirsýn Fjarskiptastofu á stöðu netöryggismála hjá eftirlitsskyldum aðilum. Sjálfsmatið gefur fjarskiptafyrirtækjum og rekstraraðilum einnig tækifæri til að meta sitt öryggisskipulag með tilliti til þeirra lágmarkskrafna sem gilda hér á landi og alþjóðlegum viðmiðum um bestu framkvæmd.
Það er stefna Fjarskiptastofu að á þriggja ára fresti er lagt sjálfsmat fyrir stærstu fjarskiptafyrirtæki og rekstraraðila stafrænna grunnvirkja.
Niðurstöður sjálfsmats nýtast sem mikilvægt innlegg fyrir afmörkun og forgangsröðun frekara eftirlits með fjarskiptafyrirtækjunum og stafrænum grunnvirkjum í formi úttekta og prófana.
