Um Fjarskiptastofu
Fjarskiptastofa er framsækinn samstarfsaðili um þróun öruggs stafræns samfélags og eflingu samkeppni.
Fjarskiptastofa gegnir lykilhlutverki á sviði fjarskipta og netöryggis. Stofnunin hefur eftirlit með fjarskiptamarkaði, netöryggi stafrænna innviða og traustþjónustu. Hún er einnig ráðgefandi samhæfingarstjórnvald fyrir netöryggi mikilvægra innviða.
Fjarskiptastofa vinnur að því að fjarskipti séu aðgengileg, örugg og hagkvæm. Stofnunin eflir viðnámsþrótt mikilvægra innviða gegn netógnum og stuðlar að auknu öryggi og trausti í stafrænum samskiptum og viðskiptum.
Fjarskiptastofa hýsir einnig Eyvöru, hæfnissetur Íslands í netöryggi. Markmið þess er að efla örugga, trausta og aðgengilega stafræna innviði og þjónustu sem samfélagið getur reitt sig á.
Gjaldskrá Fjarskiptastofu
Fjarskiptastofa innheimtir gjöld sem tengjast fjarskiptarekstri, svo sem rekstrar- og leyfisgjöld, skv. 21. gr. laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu.
Breyting á gjaldskrá dags 1. júní 2007 (Gjald fyrir skráningu á Kennimarki viðfangs )
Auk þeirra gjalda sem tilgreind eru í gjaldskrám hér fyrir ofan innheimtir stofnunin tíðnigjöld þau sem tiltekin eru í 22. gr. í fyrrnefndum lögum.
Skv. lögum nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu skulu fjarskiptafyrirtæki greiða árlega 0,38 % af bókfærðri veltu í rekstrargjald. Með bókfærðri veltu er átt við rekstrartekjur sem þessir aðilar hafa af fjarskiptastarfsemi sinni hér á landi.
Fjarskiptafyrirtæki sem fá úthlutað númerum greiða gjöld skv. 3. mgr. 14. gr. laga nr. 69/2003. Auk þess geta komið til ýmis gjöld skv. gjaldskrá vegna tækjabúnaðar og afnota af tíðnum.
