Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Erlent samstarf

Fjarskiptastofa tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi á sviði fjarskipta og netöryggis. Samstarfið byggir á alþjóðlegum skuldbindingum Íslands og styður við örugga, áreiðanlega og samkeppnishæfa fjarskiptaþjónustu.

Stofnunin starfar með stofnunum Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn og á í nánu samstarfi við systurstofnanir á Norðurlöndum. Samstarfið nær meðal annars til þróunar regluverks, söfnunar og greiningar tölfræðigagna og málefna netöryggis.

Fjarskiptastofa tekur einnig þátt í starfi helstu alþjóðastofnana á sviði fjarskipta og netöryggis. Með því fylgist stofnunin með alþjóðlegri þróun sem hefur áhrif á íslenskan fjarskiptamarkað.