Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Mannauður og laus störf

Af hverju að vinna hjá Fjarskiptastofu?

Hjá Fjarskiptastofu vinnur þú að verkefnum sem skipta samfélagið máli. Fjarskipti og netöryggi eru meðal mikilvægustu innviða landsins og forsenda þess að fólk, fyrirtæki og opinber þjónusta geti treyst á örugg og stöðug samskipti á hverjum degi.

Tæknin er í hraðri þróun og verkefnin fjölbreytt. Þú getur komið að uppbyggingu og þróun fjarskiptainnviða, mati og eftirliti með gæðum og öryggi fjarskiptakerfa, áhættugreiningum, prófunum og verkefnum sem styrkja viðnámsþol samfélagsins gagnvart truflunum og netógnum.

Við vinnum einnig að netöryggi á landsvísu í samstarfi við innlenda og erlenda aðila. Þar gefst tækifæri til að taka þátt í stefnumótun, greiningu, eftirliti og þróun lausna sem stuðla að auknu öryggi almennings, fyrirtækja og mikilvægra innviða. Þá sinnir stofnunin einnig eftirliti með rafrænum auðkenningum, rafrænum undirritunum og öðrum traustþjónustum.

Hjá Fjarskiptastofu starfar öflugur hópur sérfræðinga sem miðlar þekkingu og styður við faglega þróun. Þar færðu tækifæri til að byggja upp sérþekkingu á sviði sem verður sífellt mikilvægara og taka þátt í að móta örugga og stafræna framtíð Íslands.