Eyvör NCC-IS
Eyvör NCC-IS
Eyvör NCC-IS er hæfnisetur Íslands í netöryggi og Fjarskiptastofa leiðir starf þess.
Setrið er hluti af evrópsku samstarfi á sviði netöryggis og tengir saman stjórnvöld, háskóla og aðra aðila sem vinna að öflugra netöryggi á Íslandi.
Eyvör NCC-IS er íslenskt hæfnisetur í netöryggi og hluti af evrópsku netöryggisneti undir stjórn ECCC, European Cybersecurity Competence Centre.
Samstarfsaðilar hafa fengið styrki frá Evrópusambandinu til að efla menntun, rannsóknir og uppbyggingu á sviði netöryggis.
Helstu verkefni Eyvarar NCC-IS:
styðja við rannsóknir, menntun og fræðslu í netöryggi
sjá um úthlutun netöryggisstyrkja
hjálpa íslenskum aðilum að sækja alþjóðlega styrki og ný tækifæri
stuðla að sterkari netöryggismenningu á Íslandi
Fjarskiptastofa samhæfir starfsemina og leiðir áframhaldandi uppbyggingu setursins.
Nánari upplýsingar má finna á vef Eyvarar.

