Fjarskiptastofa framkvæmir úttektir og prófanir til að meta hvort fjarskiptafyrirtæki og rekstraraðilar stafrænna grunnvirkja uppfylli kröfur laga og reglna. Markmiðið er að fá skýra mynd af stöðu öryggismála og greina hvar þörf er á úrbótum.
Við mat á öryggisskipulagi, ráðstöfunum og áhættustýringu fjarskiptafyrirtækis skal Fjarskiptastofa m.a. horfa til hagsmuna notenda fjarskiptaþjónustu af því að hún haldist órofin, almannahagsmuna og þjóðaröryggis samkvæmt 9. mgr. 78 gr. fjarskiptalaga.
Við framkvæmd eftirlits er stuðst við mismunandi matsaðferðir, svo sem yfirferð á skjölum og gögnum, viðtöl og vettvangsskoðanir. Framkvæmd úttektar getur stuðst við eina, tvær eða fleiri tegundir matsaðferða, allt eftir umfangi og markmiðum úttektar.
Skrifborðsúttekt felur í sér að Fjarskiptastofa fer yfir skjöl og önnur gögn. Slík yfirferð er oft grunnur að frekara mati. Gögnin sem yfirfarin eru geta meðal annars verið:
öryggisstefnur og tengd skjöl
áhættumat og valdar öryggisráðstafanir
neyðaráætlanir og viðbragðsáætlanir
upplýsingar um hlutverk og ábyrgðarskiptingu starfsmanna
verklagsreglur og verklýsingar
lýsingar á hönnun og uppbyggingu kerfa
niðurstöður innri prófana og úttekta utanaðkomandi aðila
Með þessari yfirferð fær Fjarskiptastofa yfirsýn yfir hvernig netöryggi er skipulagt, skjalfest og framkvæmt hjá viðkomandi aðila.
Viðtöl eru ein af þeim aðferðum sem Fjarskiptastofa notar í eftirliti. Þau geta staðið ein og sér eða verið notuð með skrifborðsúttekt.
Í viðtölum er hægt að fá nánari upplýsingar um ferli, verklag og áskoranir. Þau geta varpað ljósi á atriði sem koma ekki alltaf skýrt fram í skjölum.
Fjöldi viðmælenda fer eftir stærð fyrirtækis og því hvernig ábyrgð á net- og upplýsingakerfum skiptist milli starfsmanna.
Vettvangsskoðun felur í sér að farið er á staðinn, til dæmis í kerfi, gagnaver eða tækjarými, til að kanna hvort öryggisráðstafanir séu til staðar og virki eins og þeim er ætlað.
Með vettvangsskoðun er hægt að staðfesta atriði sem sjást ekki alltaf í skjölum eða viðtölum, til dæmis aðgangsstýringar, líkamlegt öryggi, búnað og verklag í framkvæmd.
Skoðunin getur verið framkvæmd af starfsfólki Fjarskiptastofu eða sérfræðingum sem vinna fyrir stofnunina.
Tæknilegar prófanir eru notaðar til að kanna hvort öryggisráðstafanir virki eins og þær eiga að gera. Dæmi um slíkar prófanir eru veikleikaskönnun og innbrotsprófanir.
Ákveðið er hvað á að prófa út frá:
stöðu netöryggis hjá viðkomandi aðila
niðurstöðum sjálfsmats og úttektar
fyrri prófunum
rannsóknum á öryggisatvikum
Veikleikaskönnun er notuð til að finna veikleika í kerfum, búnaði og verklagi. Það getur til dæmis verið:
tæknilegir veikleikar í búnaði eða hugbúnaði
skortur á réttu verklagi
rangt stillt eða úrelt kerfi
Í innbrotsprófun reynir prófunaraðili að komast fram hjá öryggisráðstöfunum með svipuðum hætti og árásaraðili myndi gera. Markmiðið er að kanna hvort hægt sé að:
brjóta öryggisráðstafanir
finna veikleika sem hægt væri að misnota
kanna hvort hægt sé að valda truflun eða rofi á þjónustu
Prófanir eru yfirleitt framkvæmdar í samráði við fyrirtækið eða rekstraraðilann. Það styður við gagnsæi, öryggi og góða eftirfylgni með niðurstöðum.
Fjarskiptastofa notar samræmda matsaðferð og einkunnagjöf þegar stofnunin metur öryggi hjá fjarskiptafyrirtækjum og rekstraraðilum stafrænna grunnvirkja. Með því er hægt að bera saman niðurstöður á skýran og sambærilegan hátt.
Samræmt mat hjálpar Fjarskiptastofu að fá betri yfirsýn yfir stöðu öryggismála og tryggir að sömu sjónarmið gildi um alla sem eru undir eftirliti.
Úttektir og prófanir beinast að þeim þáttum þar sem áhættan er mest. Það þýðir að ekki er alltaf metið allt sem lög eða staðlar taka til, heldur þau atriði sem skipta mestu máli hverju sinni. Dæmi um slíka afmörkun er mat á fylgni við ákvæði í netöryggislögum um skipulagslegar ráðstafanir. Það ákvæði skiptist í fimm afmarkaða skoðunarliði.
Einkunnirnar byggja á fyrirfram skilgreindum viðmiðum og eru notaðar til að auðvelda yfirsýn og samanburð á niðurstöðum.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá hvað einkunnirnar 0 til 3 þýða.
Einkunn
Skýring
Einkunn 3 (3,00)
Ekkert frávik kom upp við skoðun. Skoðunarliðir, eftirlitsþættir og/eða viðmið eru í lagi. Stjórnkerfi og/eða öryggisráðstöfun hefur verið komið á og er í samræmi við lágmarkskröfur.
Ekki er þörf á viðbrögðum af hálfu Fjarskiptastofu.
Einkunn 2 (2,00-2,99)
Minniháttar frávik kom upp við skoðun. Öryggisráðstöfun og skjalfesting er til staðar og innleiddar, en við skoðun kom í ljós að tækifæri til úrbóta eru fyrir hendi sem bregðast þarf við fyrir næstu úttekt Fjarskiptastofu.
Fjarskiptastofa beitir bindandi fyrirmælum.
Einkunn 1 (1,00-1,99)
Frávik kom upp við skoðun. Öryggisráðstöfun og/eða skjalfesting er til staðar en eru ekki að fullu innleiddar. Niðurstöður kalla á viðbrögð innan sex mánaða.
Fjarskiptastofa beitir bindandi fyrirmælum.
Einkunn 0 (0,00-0,99)
Alvarlegt frávik kom upp við skoðun. Ekki er hægt að staðfesta að öryggisráðstöfun sé til staðar. Niðurstöður kalla á viðbrögð innan þriggja mánuða.