Morgunspjall um netöryggi - Áhættustjórnun
12. nóvember 2026
09:00 til 10:00
Fjarfundur á Teams

Hvaða netógnir skipta mestu máli fyrir þinn vinnustað og hvernig er hægt að stýra áhættunni?*
Fjarskiptastofa býður til Morgunspjalls um netöryggi, nýrrar viðburðaraðar á Teams sem er opin öllum. Annan hvern mánuð tökum við fyrir nýtt viðfangsefni og leiðum saman sérfræðing af netöryggissviði Fjarskiptastofu og gest úr atvinnulífinu eða öðrum vettvangi. Í klukkustundar spjalli tengjum við faglega þekkingu við reynslu úr starfi og ræðum leiðir til að efla netöryggi.
Í fyrsta Morgunspjallinu verður áhættustjórnun í brennidepli. Við ræðum hvernig hægt er að greina og meta áhættu í netöryggi, forgangsraða aðgerðum og gera áhættustjórnun að hluta af daglegri starfsemi.
Þátttakendur í okkar fyrsta spjalli eru þær Sigrún Lilja Sigmarsdóttir fagstjóri eftirlits með öryggi net- og upplýsingakerfa hjá Fjarskiptastofu og Ingigerður Guðmundsdóttir öryggisstjóri hjá Mílu.
12. nóvember 2026 kl. 09:00-10:00
Áætlaður fundatími eru 60 mínútur
Viðburðurinn er opinn öllum sem vilja efla þekkingu sína á netöryggi. Engin sérfræðiþekking er nauðsynleg til að taka þátt.
Taktu morgunspjallið með okkur og fáðu hugmyndir að næstu skrefum í netöryggi á þínum vinnustað.
