Ákvarðanir og úrlausnir
Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála
Samkvæmt 20. gr. laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu er heimilt að kæra ákvarðanir Fjarskiptastofu til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Sá sem á verulegra hagsmuna að gæta getur kært hvort heldur er málsmeðferð eða efni ákvörðunar. Kæra þarf að berast nefndinni innan fjögurra vikna frá því að kæranda varð kunnugt um ákvörðunina. Úrskurðir nefndarinnar eru endanlegir á stjórnsýslustigi. Frekari upplýsingar um málsmeðferð nefndarinnar eru í reglugerð um úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála nr. 36/2009.
Leita í ákvörðunum og úrskurðum
Hér má finna ákvarðanir og úrlausnir Fjarskiptastofu og eldri ákvarðanir Póst- og fjarskiptastofnunar. Hægt er að leita í gagnagrunninum með leitarorðum eða afmarka leit eftir ári, málaflokki, markaði, tegund máls eða viðeigandi lagagreinum. Einnig er unnt að sía niðurstöður eftir tegund máls til að finna úrlausnir sem tengjast tilteknu viðfangsefni. Ákvarðanir sem varða póstmál eru birtar á vef Byggðastofnunar.
