Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Kortasjá Fjarskiptastofu

Kortasjáin er hugsuð til upplýsinga fyrir alla sem vilja kynna sér stöðu fjarskiptauppbyggingar á Íslandi hvort sem um er að ræða tengingar heimila og fyrirtækja við ljósleiðara eða uppbyggingu farneta á landsvísu. Meðal þess sem skoða má í kortasjánni er:

  • Fjarskiptaaðgengi staðfanga (heimila og fyrirtækja) um fastanet þar sem þekja sýnir staðföng landsins í punktaformi lituð eftir hversu gott aðgengi þau hafa að fastaneti.

  • Fjarskiptaaðgengi um farnet þar sem sjá má þekju sem sýnir gæði farnetssambands á staðföngum landsins.

  • Útbreiðsla 4G og 5G sem sýnir sameinaða áætlaða útbreiðslu farnets allra fjarskiptafyrirtækja. Þekjan byggir á niðurstöðum reiknilíkana sem áætla sviðsstyrk farneta út frá staðsetningu og eiginleika senda, legu lands, mælinga og fleiri þátta sem haft geta áhrif á dreifingu farnets.

Gögn í kortasjánni koma að mestu frá fjarskiptafélögum og kunna að innihalda villur eða ónákvæmni.


Kortasjá

Kortasjá Fjarskiptastofu.
Kortasjáin er hugsuð til upplýsinga fyrir alla sem vilja kynna sér stöðu fjarskiptauppbyggingar á Íslandi hvort sem um er að ræða tengingar heimila og fyrirtækja við ljósleiðara eða uppbyggingu farneta á landsvísu.

Sjá meira