Gagnatorg Fjarskiptastofu
Tvisvar á ári safnar Fjarskiptastofa upplýsingum frá skráðum fjarskiptafyrirtækjum hér á landi um ýmsar stærðir í rekstri og þjónustu á sviði fjarskipta. Upp úr þeim tölum vinnur stofnunin tölfræðiskýrslur sem sýna upplýsingar um helstu stærðir og fyrirtæki á íslenskum fjarskiptamarkaði.
Markmiðið er að bæta upplýsingagjöf og auka gagnsæi á þessum markaði og eru skýrslur stofnunarinnar í samræmi við þær skýrslur sem systurstofnanir Fjarskiptastofu í nágrannalöndum okkar gefa út.
Hægt er að skoða gögnin frá hinum ýmsu sjónarhornum á Gagnatorgi Fjarskiptastofu.
Gagnatorginu er skipt í 4 yfirflokka; farsímanet, breiðband, IPTV og fastanet og þar undir eru 9 flokkar sem hægt er að skoða útfrá t.d. tímabilum og þjónustuveitendum.

Gagnatorg
Gagnatorg Fjarskiptastofu.
Fjarskiptastofa safnar upplýsingum frá skráðum fjarskiptafyrirtækjum hér á landi um ýmsar stærðir í rekstri og þjónustu á sviði fjarskipta. Upp úr þeim tölum vinnur stofnunin tölfræðiskýrslur sem sýna upplýsingar um helstu stærðir og fyrirtæki á íslenskum fjarskiptamarkaði.
