Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Netöryggi orðið grundvallarþáttur í öryggi samfélagsins

27. október 2026

Nýjar áskoranir í öryggismálum í Evrópu, vaxandi netógnir og mikilvægi þess að styrkja seiglu samfélagsins voru meðal helstu umræðuefna á Netöryggisráðstefnu Fjarskiptastofu sem fram fór á Hilton Reykjavík í dag.

Nýjar áskoranir í öryggismálum í Evrópu, vaxandi netógnir og mikilvægi þess að styrkja seiglu samfélagsins voru meðal helstu umræðuefna á Netöryggisráðstefnu Fjarskiptastofu sem fram fór á Hilton Reykjavík í dag. Rauði þráður erinda dagsins var að netöryggi væri ekki lengur afmarkað verkefni upplýsingatæknideilda heldur mikilvægur hluti af rekstraröryggi fyrirtækja, samfélagslegri seiglu og þjóðaröryggi.

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, sagði Ísland hafa náð miklum árangri í uppbyggingu fjarskipta en að næsti áfangi þyrfti að snúast í auknum mæli um áfallaþol og seiglu. Ekki væri nóg að tryggja góðar og hraðar tengingar heldur þyrfti mikilvæg þjónusta að standast áföll og komast hratt aftur í eðlilegt horf þegar truflanir verða.

Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu, horfði yfir þróun fjarskipta á undanförnum áratugum og sagði Ísland komið mjög langt í uppbyggingu fjarskiptainnviða. Næsta stóra verkefnið væri hins vegar öryggi og seigla og að hans mati væri Ísland enn aðeins í „grunnbúðum“ þegar kæmi að viðbúnaði. Fjarskipti væru nú orðin þjóðaröryggismál og kallaði hann eftir heildstæðari nálgun og skýrri ábyrgð þvert á stjórnsýsluna.

Ben Hiller frá NATO dró upp alvarlega mynd af breyttu öryggisumhverfi og sagði borgaralega innviði á borð við fjarskiptakerfi, sæstrengi, raforkukerfi, gagnaver og hafnir gegna lykilhlutverki í vörnum bandalagsins. Þótt Ísland hafi engan fastaher geti innviðir landsins því skipt miklu máli í aðgerðum NATO. Hann lagði áherslu á að samstarf stjórnvalda, atvinnulífs og varnaraðila þyrfti að vera til staðar áður en krísa skellur á og að áætlanir þyrfti að æfa reglulega.

Johan Turell frá sænsku netöryggismiðstöðinni (NCSC) fjallaði um innleiðingu NIS2 í Svíþjóð og þá auknu ábyrgð sem lögð er á stjórnendur. Netöryggi geti ekki lengur verið einangrað verkefni sérfræðinga heldur þurfi stjórnendur sjálfir að þekkja áhættuna og bera ábyrgð á því að viðeigandi ráðstafanir séu til staðar.

Hans Henrik Grabe frá Telestyrelsen á Grænlandi fjallaði um aukið geópólitískt mikilvægi Grænlands og þær öryggisáskoranir sem því fylgja. Hann lagði áherslu á að sterkari varnir byggðu ekki aðeins á tækni og fjármunum heldur einnig skýrri ábyrgð, samstarfi og þekkingu. Með betri nýtingu gagna og greininga, meðal annars með aðstoð gervigreindar, væri jafnframt hægt að greina ógnir fyrr og bæta viðbúnað.

Unnur Kristín Sveinbjarnadóttir, sviðsstjóri netöryggissviðs Fjarskiptastofu, fjallaði um stöðuna hér á landi. Þótt framfarir hafi orðið sýna niðurstöður sjálfsmats að 72% aðila séu ekki með ásættanlega stöðu. Fjarskiptastofa notar sjálfsmat til að meta fyrirkomulag netöryggismála, umgjörð áhættustýringar og stöðu upplýsingaöryggis hjá fjarskiptafyrirtækjum og rekstraraðilum stafrænna grunnvirkja Unnur lagði áherslu á að fyrirtæki og stofnanir þekktu kjarnaþjónustu sína, greindu áhættuna og prófuðu viðbrögð áður en á reyndi.

Styrmir Geir Jónsson, tæknilegur öryggisstjóri Landsnets, fjallaði um hvernig stafræn væðing raforkukerfisins hefði gert netöryggi að órjúfanlegum hluta rekstraröryggis. Guðjón Ingi Ágústsson, rekstrarstjóri Syndis, tók í sama streng og benti á að fyrirtæki væru orðin svo háð stafrænum kerfum að netárás gæti haft bein áhrif á reksturinn. Hann sagði tölvupóst enn eina helstu leið árásaraðila inn í fyrirtæki og að 41% þeirra atvika sem gripið væri inn í tengdust tölvupósti.

Sameiginleg niðurstaða erinda dagsins var að áherslan þurfi í auknum mæli að færast frá því að bregðast við eftir á yfir í að þekkja veikleikana fyrirfram, efla viðbúnað og æfa viðbrögð. Þar þurfa stjórnvöld, atvinnulíf og sérfræðingar að vinna saman, mikilvægir innviðir samfélagsins séu orðnir svo samtengdir að enginn einn aðili geti tryggt öryggi þeirra.

Myndir: Anton Brink

Mynd 1: Eyjólfur Ármannsson, Innviðaráðherra á Netöryggisráðstefnu Fjarskiptastofu 2026

Mynd 2: Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri FST á Netöryggisráðstefnu Fjarskiptastofu 2026