Fara beint í efnið
Fjarskiptastofa Forsíða
Fjarskiptastofa Forsíða

Fjarskiptastofa

Fjarskiptastofa setur í loftið stöðumat netöryggis fyrir fyrirtæki og stofnanir

30. október 2026

Fjarskiptastofa lýkur evrópskum netöryggismánuði með því að opna nýja þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja öðlast betri yfirsýn yfir eigin netöryggisstöðu og greina tækifæri til úrbóta.

Fjarskiptastofa lýkur evrópskum netöryggismánuði með því að opna nýja þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja öðlast betri yfirsýn yfir eigin netöryggisstöðu og greina tækifæri til úrbóta. Gott netöryggi byrjar á því að þekkja eigin stöðu og næsta skref aðila er að nýta þá þekkingu til að forgangsraða úrbótum og hrinda nauðsynlegum breytingum í framkvæmd.

Með því að svara spurningum um skipulag, stjórnun og öryggisráðstafanir geta þátttakendur fengið vísbendingar um þroskastig netöryggis innan sinnar starfsemi, styrkleika og þá þætti sem ástæða er til að efla.

Stöðumatið byggir á spurningum og matsviðmiðum sem Fjarskiptastofa nýtir við framkvæmd eftirlits samkvæmt lögum nr. 78/2019 um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða og reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Hér eru þau hins vegar sett fram sem hagnýtt verkfæri fyrir alla sem vilja vinna markvisst að bættu netöryggi.

Niðurstöður stöðumats netöryggis
Að loknu stöðumati fá þátttakendur niðurstöður á kvarða, frá 0 til 3, sem gefa vísbendingar um þroskastig netöryggis og hversu vel öryggisráðstafanir samræmast viðmiðum stöðumatsins.

Niðurstöður eru flokkaðar í fjögur þroskastig með eftirfarandi hætti:

  • Vísbendingar um hátt þroskastig netöryggis

  • Vísbendingar um gott þroskastig netöryggis

  • Vísbendingar um að styrkja þurfi þroskastig netöryggis

  • Vísbendingar um lágt þroskastig netöryggis

Flokkunin er ætlað að auðvelda þátttakendum að átta sig á eigin stöðu og forgangsraða umbótum. Hærri einkunn gefur vísbendingu um að öryggisráðstafanir séu betur þróaðar og samræmist í ríkari mæli þeim viðmiðum sem stöðumat netöryggisins byggir á.

Niðurstöður stöðumats netöryggis byggjast alfarið á þeim upplýsingum sem þátttakendur veita og eigin mati þeirra á stöðu starfseminnar. Þær eru því eingöngu leiðbeinandi og fela hvorki í sér formlega úttekt, vottun né staðfestingu Fjarskiptastofu á netöryggisstöðu viðkomandi. Svör og niðurstöður matsins eru hvorki vistaðar hjá Fjarskiptastofu né rekjanlegar til einstakra þátttakenda.

Fjarskiptastofa hvetur alla til að nýta stöðumat netöryggis til að taka stöðuna, greina tækifæri til umbóta og stíga næstu skref í átt að auknu netöryggi.

Slóð á stöðumat netöryggis á vef Fjarskiptastofu: Stöðumat netöryggis | Fjarskiptastofa.