Fara beint í efnið

Samningur um meðlag

Ef barn á fasta búsetu hjá öðru foreldra sinna geta foreldrar samið um að hitt foreldrið sinni framfærsluskyldu sinni með greiðslu meðlags.

Foreldrar geta ekki samið um lægra meðlag á mánuði en einfalt meðlag. Samningur foreldra um meðlag má vera tímabundinn en samkomulag þarf að vera á milli foreldra um framfærslu barnsins að öðru leyti fram til 18 ára aldurs. Ekki má takmarka framfærsluskyldu foreldris við lægri aldur barns en 18 ár.

Einfalt meðlag er oft kallað lágmarksmeðlag. Einfalt meðlag er jafnhátt barnalífeyri og er upphæð þess endurskoðuð árlega.

Foreldrum er einnig frjálst að semja um aukið meðlag ef barn á fasta búsetu hjá öðru foreldra sinna. Aukið meðlag er það meðlag kallað sem er hærra en lágmarksmeðlag eða einfalt meðlag.

Foreldrum er ekki skylt að óska staðfestingar sýslumanns á samningi þeirra um meðlag.
Staðfesting sýslumanns á samningi foreldra um meðlag hefur þau áhrif að:

  • Lögheimilisforeldri getur krafist aðfarar hjá umgengnisforeldri vegna ógreidds meðlags.

  • Lögheimilisforeldri getur óskað eftir milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins á greiðslu einfalds meðlags samkvæmt samningi foreldra. Ekki er hægt að óska eftir milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins á greiðslu aukins meðlags. Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra innheimtir meðlag.

Meðlagsgreiðandi getur farið fram á að sýslumaður úrskurði um niðurfellingu eða lækkun aukins meðlags ef aðstæður breytast og forsendur aukins meðlags eru ekki lengur fyrir hendi.

Ef þú ert ekki með rafræn skilríki getur þú nálgast samning um meðlag á PDF formi hér.

Frá og með 1. janúar 2022 er foreldrum heimilt að semja um framfærslu barns án greiðslu meðlags. Í því felst m.a. að lögheimilisforeldri getur ekki óskað eftir milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins á greiðslum vegna framfærslu barns.

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15