Fara beint í efnið

Beiðni um lækkun eða niðurfellingu aukins meðlags

Meðlagsgreiðandi getur farið fram á að sýslumaður úrskurði um niðurfellingu eða lækkun aukins meðlags ef aðstæður breytast og forsendur aukins meðlags eru ekki lengur fyrir hendi.

Sýslumaður getur með úrskurði breytt fyrri meðlagsákvörðun ef rökstudd krafa kemur fram um það frá foreldri.

Skilyrði þess að breyta megi gildandi samningi eða dómssátt

  • Aðstæður hafa breyst verulega.

  • Samningur eða dómssátt gengur í berhögg við þarfir barns.

  • Samningurinn eða dómssátt er ekki í samræmi við fjárhagsstöðu foreldra.

Skilyrði þess að breyta megi gildandi úrskurði með dómi um meðlag

  • Sýnt sé fram á að hagir foreldra eða barns hafi breyst.

Almennt verður samningi, úrskurði eða dómi ekki breytt aftur í tímann heldur miðast breytingin við þann dag er krafan er sett fram eða síðara tímamark.

Ferlið

Þegar sýslumaður hefur móttekið beiðni um aukið meðlag er hún kynnt hinu foreldrinu. Ef enginn ágreiningur er um beiðnina er gerður nýr meðlagssamningur. Hægt er að fara fram á staðfestingu sýslumanns á samningnum.

Í ágreiningsmálum getur meðlagshafi skilað inn greinargerð um fjárhag og félagslega stöðu (pdf). Hægt er að óska eftir fundi hjá sýslumanni til að gera grein fyrir aðstæðum sínum. Sýslumaður úrskurðar í málinu og er úrskurður sendur með rekjanlegu bréfi til beggja foreldra.

Ákvörðun fjárhæðar

Fjárhæð aukins meðlags er ákveðin með hliðsjón af þörfum barnsins og fjárhagsstöðu og öðrum högum beggja foreldra.

Það sem hefur áhrif

  • tekjur foreldra, sjá viðmiðunarfjárhæðir

  • möguleikar foreldra til að afla tekna, til dæmis skert aflahæfi foreldris vegna umönnunar barns eða vegna sjúkdóms foreldris eða barns

  • aukin útgjöld vegna sérþarfa eða veikinda barns

  • ef meðlagsgreiðandi hefur fyrir öðrum börnum að sjá

  • hvort umgengni barns og foreldris er umfram lágmarksumgengni

  • hvort foreldri með sameiginlega forsjá hefur lagt til framfærslu barnsins umfram gildandi ákvörðun um meðlag

Það sem hefur almennt ekki áhrif 

  • stjúpbörn aðila máls 

  • eignir og skuldir meðlagsgreiðanda hafa venjulega lítil áhrif við ákvörðun meðlagsfjárhæðar, en slíkt kemur helst til álita ef eignir eða skuldir eru verulega umfram það sem venjulegt getur talist, eða ef til óhjákvæmilegra skulda hefur verið stofnað 


Ef þú ert ekki með rafræn skilríki getur þú nálgast PDF eyðublað hér.

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15