Landskönnun á mataræði Íslendinga. Embætti landlæknis og Rannsóknastofa í næringarfræði hvetja landsmenn til þátttöku
Embætti landlæknis í samvinnu við Rannsóknastofu í næringarfræði við Háskóla Íslands eru um þessar mundir að hefja landskönnun á mataræði og neysluvenjum landsmanna. Um tvö þúsund manns á aldrinum 18-80 ára geta átt von á bréfi með beiðni um þátttöku.