Fara beint í efnið

24. mars 2021

Almannavarnastig fært af hættustigi upp á neyðarstig vegna COVID-19

Ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnalækni, hefur ákveðið að færa almannavarnastig af hættustigi upp á neyðarstigi vegna COVID-19.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnalækni, hefur ákveðið að færa almannavarnastig af hættustigi upp á neyðarstigi vegna COVID-19.

Aflétting af neyðarstigi á hættustig var lýst yfir 12. febrúar síðastliðinn vegna þess góða árangurs sem hafði náðst við að ná niður COVID-19 smitum í samfélaginu.

Breytingin í dag er skv. reglugerð heilbrigðisráðherra, sem tekur gildi 25.mars 2021.

Hækkun á neyðarstig gerist samhliða hertum sóttvarnarreglum sem mun hafa áhrif daglegt líf almennings. Sjá nánar á covid.is.

Sóttvarnalæknir og stýrihópur um verkefni sem snýr að COVID-19, mun áfram fylgjast með þróun faraldursins og taka ákvarðanir miðað við framvindu hans.

Frá því að neyðarstigi var fyrst lýst yfir, 6. mars 2020, hafa 6144 smit verið staðfest, 45.906 lokið sóttkví og 527.579 sýni verið tekin innanlands og á landamærum.Tuttugu og níu einstaklingar hafa látist vegna COVID-19.Í dag eru 19.887 íbúar á Íslandi fullbólusettir og 18.255 einstaklingar hafa hafið bólusetningu (fyrri bólusetning).

Frekari upplýsingar um þróun faraldursins og bólusetningar má finna á www.covid.is – Þar má einnig finna upplýsingar um þær sóttvarnaaðgerðir sem eru í gildi sem og leiðbeiningar.