25. mars 2021
25. mars 2021
Astra Zeneca bóluefni í notkun á ný
Þar sem faraldur COVID-19 er útbreiddur í samfélaginu víðast hvar í Evrópu og borið hefur á fjölgun smita hérlendis undanfarið, leikur enginn vafi á því að áframhaldandi þörf er fyrir þetta bóluefni og að ávinningur af notkun þess er meiri en áhætta.
ENGLISH
Þar sem faraldur COVID-19 er útbreiddur í samfélaginu víðast hvar í Evrópu og borið hefur á fjölgun smita hérlendis undanfarið, leikur enginn vafi á því að áframhaldandi þörf er fyrir þetta bóluefni og að ávinningur af notkun þess er meiri en áhætta.
Ekki hefur borið á alvarlegum aukaverkunum hjá öldruðum einstaklingum í Bretlandi þar sem mikill fjöldi hefur verið bólusettur og áhrif bólusetningar hjá þessum aldurshópi á smittíðni, innlagnir og dauðsföll vegna COVID-19 hafa verið góð í Englandi og Skotlandi. Því hefur verið ákveðið að nota þetta bóluefni fyrir einstaklinga eldri en 70 ára í samræmi við þessar niðurstöður. Þegar kemur að bólusetningu 60-69 ára er einnig líklegt að þetta bóluefni verði í boði fyrir a.m.k. hluta þess aldurshóps.
Yngri einstaklingum sem ekki hafa fengið alvarlegar aukaverkanir eftir fyrri skammt munu líklega geta klárað bólusetningu með sama bóluefni.
Helstu eiginleikar Astra Zeneca bóluefnis:
Apa-kvefveira sem er búið að óvirkja þannig að hún getur ekki fjölgað sér og bæta við erfðaefni fyrir sama prótín og við myndum eftir mRNA bólusetningu.
Flutt og geymt við sömu aðstæður og bóluefni sem við notum daglega í heilsugæslunni.
10 skammtar í glasi.
Þarf að nota innan fárra klukkustunda frá opnun glassins en þarf ekki að blanda og nota strax eins og mRNA bóluefnin.
Getur hentað ágætlega í dreifbýli þótt kalla þurfi nokkuð marga í bólusetningu sama dag.
Ofnæmi ekki eins algengt og við mRNA bóluefnin.
Flensulík einkenni mjög algeng eftir fyrsta skammt hjá einstaklingum undir 55 ára, minna algeng hjá eldri einstaklingum en þó rétt að gera ráð fyrir mögulegum áhrifum á atorku í u.þ.b. 2-3 daga eftir fyrri bólusetningu. Minna um einkenni af þessu tagi eftir seinni skammt.
Tekur 12 vikur að klára bólusetningu, má hafa styttra bil en vörn betri með lengra bili*.
Þarf ekki að geyma skammta til að tryggja að sé nákvæmt bil á milli.
Má nota fyrir 18 ára og eldri skv. markaðsleyfi. Til að byrja með var óvíst um virkni hjá 65 ára og eldri vegna fárra þátttakenda á þeim aldri í rannsóknum fyrir markaðssetningu en þau gögn eru nú fullnægjandi vegna rannsókna frá Bretlandi, sjá hér og hér. Viðeigandi fyrir einstaklinga með áhættuþætti fyrir alvarlegri COVID-19 sýkingu. Rannsóknir á bólusetningu barna hafnar. Breytingar á hópum sem fá þetta bóluefni í mars 2021 vegna blóðtappa af óvenjulegu tagi, sjá nánar hér.
Þriðja bóluefnið sem berst til landsins. Um 115.000 einstaklingar verða bólusettir með þessu:
Bólusettir fyrir 10. mars 2021:
Starfsmenn á hjúkrunarheimilum, 18-64 ára. Flestir hafa nú þegar fengið bólusetningu #1.
Áhættuhópar sem þurfa að hefja bólusetningu sem fyrst en eru ekki á meðferð sem hefur áhrif á tímasetningu seinni skammts, 18–64 ára. Einungis einstaklingar sem tilheyra einnig öðrum hópum, s.s. heilbrigðisstarfsmenn, hófu bólusetningu fyrir 10. mars.
Heilbrigðisstarfsmenn sem ekki hafa þegar fengið bólusetningu, 18-64 ára. Hluti þessa hóps hefur nú þegar fengið bólusetningu #1.
Bólusettir eftir 24. mars 2021:
Einstaklingar 70 ára og eldri sem ekki hafa þegar verið bólusettir (hópur 6 skv. birtri forgangsröð. Líklegt að a.m.k. hluti hóps 60-69 ára fái þetta bóluefni einnig þegar kemur að honum.
Aðrir hópar verða skilgreindir síðar.
Sóttvarnalæknir