Tæki og vélbúnaður
Lyftur og rennistigar
Vinnueftirlitið hefur eftirlit með lyftum og rennistigum á Íslandi. Almennt gildir reglugerð um vélar og tæknilegan búnað um innflutning og byggingu á lyftum. Um mismunandi tegundir lyfta hafa verið settar sérstakar reglur um skráningu, uppsetningu og eftirlit.
Norrænt samstarf
Vinnueftirlitið tekur virkan þátt í norrænu samstarfi um lyftur og rennistiga fyrir hönd Íslands. Samstarfið miðar að því að útbúa staðla um málefni sem snúa að lyftum og lyftubúnaði sem ekki er tekið á í evrópskum eða öðrum alþjóðlegum stöðlum. Þessir norrænu staðlar verða að íslenskum stöðlum þegar þeir eru gefnir út.
Fólks- og vörulyftur
Um fólks- og vörulyftur í byggingum sem gerðar eru til að flytja fólk og vörur á milli hæða gildir reglugerð um lyftur og öryggisíhluti fyrir lyftur, reglugerð um fólkslyftur og fólks- og vörulyftur og reglugerð um skráningu, eftirlit og umsjón með lyftum og lyftubúnaði til fólks- og vöruflutninga.
Skylt er að skrá fólkslyftur áður en þær eru settar upp og skulu þær teknar út af óháðum aðila áður en þær eru teknar í notkun. Vörulyftur, matarlyftur, hjólastólalyftur og rennistigar eru tekin út af Vinnueftirlitinu áður en þær eru teknar í notkun. Vörulyftur og matarlyftur eru skoðaðar annað hvert ár en hjólastólalyftur og rennistigar eru skoðaðir árlega.
Við skráningu á nýrri fólkslyftu skal uppsetningaraðili skila inn útfylltu eyðublaði um skráningu á lyftu, samræmisyfirlýsingu frá framleiðanda, lokaskoðunarvottorði frá óháðum aðila (ef við á) og þjónustusamningi milli eiganda og uppsetningaraðila sem kveður meðal annars á um fjölda heimsókna í þjónustu- og eftirlitsskoðunum.
Athugið!
Þegar öll gögn eru komin gefur Vinnueftirlitið út yfirlýsingu um verklok. Notkun á lyftu er óheimil áður en yfirlýsing um verklok hefur verið gefin út.
Verði breytingar á eiganda eða umsjónarmanni lyftunnar skal umsjónarmaður tilkynna um það til Vinnueftirlitsins. Þarf þá nýr þjónustusamningur að berast með nafni og kennitölu nýs umsjónarmanns eða eiganda lyftu.
Vinnueftirlitið getur krafist endurskoðunar á þjónustusamningi sé hann ekki fullnægjandi samskvæmt 2.-4. málsgrein 6. greinar reglugerðar skráningu, eftirlit og umsjón með lyftum og lyftubúnaði til fólks- og vöruflutninga, bannað notkun lyftu eða beitt dagsektum sé ákvæðum um þjónustusamning ekki framfylgt.
Bílalyftur
Bílalyftur eru lyftur gerðar til að lyfta ökutækjum. Þær eru af ýmsum gerðum, ýmist vökvalyftur eða víralyftur. Þær geta verið tveggja pósta, fjögurra pósta auk þess sem póstarnir geta verið sjálfstæðir.Bílalyftur eru skráðar áður en þær eru settar upp og skoðaðar annað hvert ár hjá Vinnueftirlitinu.
Skíðalyftur
Skíðalyftur eru togbrautir, toglyftur og stólalyftur þar sem farþegi ferðast með á milli endastöðva á skíðasvæðum.Skíðalyftur eru skráðar áður en þær eru settar upp eða færðar og skoðaðar árlega af Vinnueftirlitinu.
Þjónustuaðili
Vinnueftirlitið