Kvartanir, athugasemdir og almenn erindi vegna heilbrigðisþjónustu
Bótakröfur - bótaskylda
Embætti landlæknis tekur ekki við bótakröfum eða kveður á um bótaskyldu. Það er hlutverk Sjúkratrygginga Íslands eða tryggingarfélaga viðkomandi heilbrigðisstarfsmanna. Upplýsingar um sjúklingatryggingu má finna á vef Sjúkratrygginga Íslands.
Hlutverk landlæknis er að rannsaka málsatvik sem kvörtun varðar og veita rökstutt, faglegt álit á því hvort um hafi verið að ræða mistök, vanrækslu og/eða ótilhlýðilega framkomu við veitingu heilbrigðisþjónustu.
Þjónustuaðili
Embætti landlæknis