Fara beint í efnið

Umsókn um bætur úr sjúklingatryggingu

Umsókn um bætur úr sjúklingatryggingu

Sjúklingatrygging veitir bætur vegna tjóns við meðferð eða rannsóknir í heilbrigðisþjónustu.

  • Ef tjón varð á heilbrigðisstofnun sem er í eigu ríkisins í heild eða að hluta, það er við opinbera heilbrigðisþjónustu, skal sækja bætur til Sjúkratrygginga.

  • Ef tjón varð við sjálfstætt starfandi heilbrigðisþjónustu skal sækja bætur til vátryggingarfélags viðeigandi aðila.

Athugið að sjúklingatrygging bætir tjón vegna bólusetninga gegn COVID-19- á árunum 2020-2023. Skilyrði er að tjónið verði vegna eiginleika bóluefnis eða rangri meðhöndlun þess, þ.m.t. við flutning þess, geymslu, dreifingu eða bólusetningu af hálfu heilbrigðisstarfsmanns. Fjárhæðin þarf einnig að ná ákveðnu lágmarki sem kveðið er á um í lögum um sjúklingatryggingu

Umsókn um bætur úr sjúkratryggingu vegna bólusetningar gegn COVID-19

Hvernig fæst tjónið bætt? 

Til að fá tjón bætt þarf að:

  1. Athuga hvort umsækjandi uppfyllir forsendur greiðslu

  2. Umsókn er fyllt út og send inn í gegnum Réttindagátt

Eftir að umsókn berst þá mun Sjúkratryggingar sjá um gagnaöflun, örorkumat og bótaútreikning vegna umsóknarinnar. Ákvörðun er send til umsækjanda um bótagreiðslu og örorkumat en búast má við að niðurstaða örorkumats taki lengri tíma en ákvörðun um bótagreiðslur, sjá afgreiðslutíma umsókna.


Þarf aðstoð lögmanns til að sækja um?

Umsækjanda er í sjálfsvald sett hvort leitað sé aðstoðar lögmanns, en almennt þarf þess ekki þar sem öll gagnasöfnun og önnur vinna við umsókn fer gjaldlaus fram hjá Sjúkratryggingum. Vert er að benda á að lögmannskostnaður greiðist alfarið af umsækjanda.

Tekið er við fyrirspurnum og gögnum í Þjónustu- og símaveri Sjúkratrygginga og í gegnum Réttindagátt.

Umsókn um bætur úr sjúklingatryggingu

Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar