Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Túlkaþjónusta

Upplýsingar fyrir einstaklinga um greiðslu Sjúkratrygginga á túlkaþjónustu

Sjúkratryggðir einstaklingar á Íslandi sem tala ekki íslensku eða nota táknmál eiga rétt á túlkaþjónustu sem Sjúkratryggingar greiða fyrir.

Túlkaþjónustan er til að aðstoða þá við að skilja upplýsingar um heilsufar og opinbera heilbrigðisþjónustu.

Heilbrigðisstarfsmaður metur þörf á túlkaþjónustu og skipuleggur notkun þjónustunnar.