Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fullorðnir með fötlun er breiður hópur fólks á mismunandi aldri og með ólíka færni. Með reglulegri hreyfingu við hæfi má efla almenna færni í daglegu lífi og auka lífsgæði.

Takmarka ætti þann tíma sem varið er í kyrrsetu. Það hefur jákvæð áhrif á heilsu og líðan að skipta út tíma í kyrrsetu fyrir hreyfingu af hvaða ákefð sem er, þar með talið lítilli ákefð.

  • Öll fullorðin með langvarandi andlega og líkamlega skerðingu eða skerta skynjun ættu að hreyfa sig reglulega

  • Í hverri viku ætti að hreyfa sig rösklega í minnst 150 mínútur

  • Minnst 2 daga vikunnar ætti að stunda hreyfingu sem styrkir vöðva, bætir jafnvægi og eykur hreyfigetu

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis