Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Það hefur jákvæð áhrif á heilsu og líðan allra hópa, á öllum æviskeiðum, að takmarka kyrrsetu og stunda reglulega hreyfingu. Regluleg hreyfing auðveldar fólki að takast á við dagleg verkefni, hvílast betur og eykur líkur á að lifa lengur við betri lífsgæði.

Hreyfingin þarf ekki að vera tímafrek eða erfið til að hafa jákvæð áhrif. Öll hreyfing telur og betra er að hreyfa sig lítið eitt en ekki neitt.

Ráðlagt er að fullorðnir hreyfi sig í að minnsta kosti 150 mínútur á viku og takmarki kyrrsetu.

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis