Fara beint í efnið

19. júní 2023

Umsóknaferli fyrir ökunám og fyrsta ökuskírteini er nú stafrænt

Nú eru allir ferlar sem snúa að ökunemum, ökukennurum og ökuskólum vegna umsóknar um ökunám orðnir stafrænir og pappírsumsóknum nú hætt að mestu. Þetta einfaldar og gerir ferlana skilvirkari, styttir bið á skrifstofum sýslumanna og fækkar ferðum umsækjenda sem þurfa oft að fara um langan veg til sýslumanns í þessum erindagjörðum.

ung_kona_undir_styri

Nánar tiltekið er um að ræða eftirfarandi þjónustu:

Ökunemar:

Ökukennarar

  • Staðfesta með stafrænum hætti ökutíma, akstursmat og að nemandi sé tilbúinn í æfingaakstur.

Ökuskólar

  • Staðfesta stafrænt að nemandi hafi lokið ökuskóla. 1,2 og 3.

Leiðbeinendur í æfingaakstri

Athugið sérstaklega! Þegar stafræn umsókn um námsheimild er komin inn þurfa ökunemar að koma í eigin persónu til sýslumanns og skila inn mynd og gefa undirskrift.

Næstu skref í stafrænni þjónustu:

  • Sýslumenn geti sótt mynd og undirskrift úr vegabréfi fyrir útgáfu ökuskírteinis.

  • Undirbúningur hjá Samgöngustofu fyrir rafræna próftöku í bóklegum ökuprófum.

  • Aðrir umsóknarferlar ökuskírteina verði stafrænir.

Sýslumenn innleiða stafræna þjónustu í málaflokknum í góðu samstarfi við Innviðaráðaneytið, Samgöngustofu,Ríkislögreglustjóra og Stafrænt Ísland.