Fara beint í efnið

Æfingaakstur með leiðbeinanda

Umsókn um að gerast leiðbeinandi í æfingaakstri

Ferlið

Þegar ökukennari hefur staðfest stafrænt að nemandi uppfylli skilyrði til að hefja æfingaakstur þá sækir leiðbeinandi um hér fyrir ofan með rafrænum skilríkjum. Uppfylli leiðbeinandi skilyrði til æfingaaksturs sendist leyfið á mínar síður leiðbeinanda. Nemandi fær einnig tilkynningu um skráninguna. Leyfið skal hafa það meðferðis meðan æfingaakstur fer fram.

Ökukennarinn

Ökukennarinn metur hvort og hvenær nemandinn er tilbúinn til að hefja æfingaakstur og staðfestir það í stafræna ökunámsbók nemanda, þá getur leiðbeinandi getur sótt um að vera leiðbeinandi í æfingaaksti hjá ökunema.

Ökuneminn

Ökunemi þarf að ljúka ökuskóla 1 og 10 verklegum ökutímum að jafnaði áður en leiðbeinandi getur sótt um leyfi til æfingaaksturs.

Skilyrði fyrir leiðbeinendur

Til að fá leyfi sem leiðbeinandi við æfingaakstur þarf viðkomandi að uppfylla eftirfarandi skilyrði

  • Hafa náð 24 ára aldri

  • Hafa gild ökuréttindi fyrir B flokk í að minnsta kosti 5 ár.

  • Hafa ekki verið sviptur ökuréttindum eða refsað fyrir vítaverðan akstur á síðustu 12 mánuðum.

Æfingaleyfið

Æfingaleyfið er gefið út á nafn leiðbeinanda og nemanda og er leyfið sent til beggja aðila á Mínar síður, leyfið gildir í allt að 18 mánaða en þó aldrei lengur en námsheimildin er í gildi. Leyfið fellur sjálfkrafa úr gildi þegar nemandi hefur öðlast ökuréttindi. Leiðbeinandi skal hafa leyfið meðferðis við æfingaakstur og sýna það þegar lögreglan krefst þess. Í æfingaakstri telst leiðbeinandi vera stjórnandi bifreiðar. Heimilt er að afturkalla leyfi ef sérstaklega stendur á. Leiðbeinanda er óheimilt að taka endurgjald fyrir starf sitt.

Bíll í æfingaakstri

Bíll sem notaður er til æfingaaksturs með leiðbeinanda má ekki vera yfir 3.500 kg. að leyfðri heildarþyngd. Heimilt er að tengja eftirvagn/tengitæki við bílinn sem er allt að 750 kg. Bíllinn skal vera sérstaklega auðkenndur til æfingaaksturs samkvæmt leiðbeiningum sem Samgöngustofa gefur út. Óheimilt er að nota auðkennið við annan akstur. Nemandi sem er að læra á beinskiptan bíl má fara í æfingaakstur með leiðbeinanda á sjálfskiptan bíl

Æfingaaksturinn

Æfingaakstur er viðbótaræfing með leiðbeinanda og kemur ekki í stað kennsluaksturs með ökukennara. Í æfingaakstri æfir nemandinn sig í því að aka bíl undir leiðsögn sem oft er foreldri eða aðrir fjölskyldumeðlimir sem uppfylla skilyrði, leiðbeinandi telst vera stjórnandi bifreiðarinnar. Óheimilt er að taka endurgjald fyrir að leiðbeina í æfingaakstri. Um æfingaakstur með leiðbeinanda gilda að öðru leyti, eftir því sem við á, ákvæði 68. gr.umferðalaga.

Leyfi fyrir leiðbeinendur með ökuskírteini frá EES ríki

  • Leiðbeinendur með ökuskírteini frá EES ríki þurfa að mæta á skrifstofu sýslumanns með ökukskírteinið sitt.

Eftir æfingaakstur taka aftur við nokkrir tímar hjá ökukennara í undirbúningi fyrir próf.

Umsókn um að gerast leiðbeinandi í æfingaakstri

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15