Fara beint í efnið

Umsókn um námsheimild og fyrsta ökuskírteini

Umsókn um námsheimild og fyrsta ökuskírteini

Á þessari síðu

Á Íslandi er bílprófsaldur 17 ár og miðast við þann dag sem aðili verður 17 ára. Gott er að gefa sér góðan tíma í ökunámið. Ökunám getur hafist við 16 ára aldur. Hvenær ökunám er hafið fer þó eftir ýmsum þáttum s.s. árstíð, búsetu, efnahag, persónulegum aðstæðum eða löngun til að aka. Mikilvægt er að kynna sér allt um ökunám og bílpróf

Ökuskírteinið veitir almenn ökuréttindi í flokki B.

Fyrsta ökuskírteinið er bráðabirgðaskírteini og gildir í 3 ár. Ef skírteinishafi hefur lokið ökuskóla 3, aksturmati og er punktalaus, þá má leggja inn umsókn um fullnaðarskírteini einu ári eftir útgáfu bráðabirgðaskírteinis. Fullnaðarskírteini gildir í 15 ár í senn.

Skilyrði til að hefja ökunám

  • Hafa náð 16 ára aldri

  • Hafa fullnægjandi sjón og heyrn 

  • Vera líkamlega og andlega hæfur til að stjórna bíl 

  • Hafa fasta búsetu á Íslandi

Umsóknarferli og fylgigögn

Um leið og nám hefst þarf að sækja stafrænt um námsheimild. Það er gert með að fylla út umsókn um námsheimild og fyrsta ökuskírteinið hér efst á síðunni.

  • Velja sér ökukennara

  • Velja sér ökuskóla

  • Sækja stafrænt um námsheimild. Ökuneminn sækir sjálfur um með rafrænum skilríkjum.

  • Í umsókninni er hægt að sækja mynd og undirskrift úr skilríkjaskrá, að því gefnu að myndin uppfylli aldursskilyrði eða nota mynd sem þegar er til í ökuskírteinaskrá. Þetta getur til dæmis átt við ef nemandi hefur þegar öðlast AM-réttindi eða er að hefja ökunám að nýju eftir hlé og hefur áður skilað mynd til sýslumanns.

  • Ef engin mynd er til í skilríkjaskrá eða ökuskírteinaskrá er hægt að sækja um nafnskírteini og fara í myndatöku hjá sýslumanni. Strax að myndatöku lokinni er hægt að nota myndina í stafrænni umsókn um námsheimild.

  • Einstaklingar 13 ára og eldri geta sjálfir sótt um nafnskírteini sem er ekki ferðaskilríki, án aðkomu forsjáraðila og notað myndina í stafrænu umsóknarferli vegna ökunáms.

  • Ef einni eða fleiri heilsufarsspurningu er svarað játandi þarf einnig að skila inn læknisvottorði með í umsóknarferlinu það yfirfarið og námheimild veitt.

  • Ef ekki er til stafræn mynd í skilríkjaskrá þarf umsækjandi að koma á skrifstofu sýslumanns. Fylla út umsókn á pappír og skila passamynd á ljósmyndapappír í stærðinni 35x45 mm, með einlitum bakgrunn ásamt því að gefa undirritun, ásamt því að framvísa persónuskilríki.

  • Ef einni eða fleiri heilsufarsspurningu er svarað játandi í umsóknarferlinu þarf einnig að skila inn læknisvottorði á skrifstofu sýslumanns.

Afgreiðslu og afhendingarferli

Afgreiðslutími ökuskírteina er allt að 7 virkir dagar frá því að umsókn berst og ökuskírteini er pantað

Hægt er að fá ökuskírteini afhent á eftirfarandi vegu:

  • Sent í pósti (póstburðgjald bætist við)

  • Sækja í afgreiðslu sýslumanna.

Stafrænt ökuskírteini uppfærist í Ísland.is appinu um leið og ökuskírteini er pantað, hægt er að óska eftir bráðabirgðaakstursheimild á pappír ef t.d. aðilar eru að taka aukin ökuréttindi eða eru ekki með rafræn skilríki.

Kostnaður

Námsheimild gildir í tvö ár og fyrsta ökuskírteinið kostar 4.300 krónur.

Bílpróf getur farið fram þegar nemandi hefur fengið námsheimild hjá sýslumanni og ökukennari hefur staðfest að fullnægjandi ökunám hafi farið fram.

Aldursskilyrði mynda úr skilríkjaskrá miðað við aldur umsækjanda:
16 og 17 ára: ekki eldri en 1 árs
18 ára: ekki eldri en 2 ára
19 ára: ekki eldri en 3 ára
20 ára: ekki eldri en 4 ára
21 árs: ekki eldri en 5 ára
22 ára: ekki eldri en 6 ára
23-24 ára: ekki eldri en 7 ára
25-26 ára: ekki eldri en 9 ára
26 ára og eldri: ekki eldri en 10 ára

Athugið að ef:
• umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði fyrir útgáfu íslenskra skilríkja þarf að skila inn mynd áður en sótt er um stafrænt.
• umsækjandi hefur breytt nafni eða kyni þarf að endurnýja skilríki áður en hægt er að nýta mynd úr skilríkjaskrá eða koma með mynd og gefa undirskrift á skrifstofu sýslumanns áður en sótt er um stafrænt.

Umsókn um námsheimild og fyrsta ökuskírteini

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuðborgarsvæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Austurland

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vesturland

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Suðurland

Mán. til fös. 9 - 15

Vestfirðir

Mán. til fim. 9:00 - 15
Fös. 9:00 - 13:30

Vestmannaeyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 -14

Norðurland vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15

Norðurland eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14