24. júní 2024
24. júní 2024
Leiðbeiningar um góða starfshætti lækna við ávísun ávana- og fíknilyfja
Í júní 2023 birti embætti landlæknis uppfærðar Leiðbeiningar um góða starfshætti lækna við ávísun ávana- og fíknilyfja og fleiri lyfja sem hafa misnotkunarhættu í för með sér. Leiðbeiningarnar eru nú birtar að nýju, með lítið eitt breyttum inngangi. Embætti landlæknis minnir lækna enn og aftur á þessar leiðbeiningar, sem voru fyrst birtar 2017.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Landlæknir logo - Fréttamyndir](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/30gJRJab1dCduDFlnUZvTC/d785bca9c41af1c63b96240d7bf4ce92/Lit_ISL_ENG_Stort.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Áréttað er mikilvægi þess að læknar nýti ávallt lyfjagagnagrunn embættis landlæknis og miðlæga lyfjakortið, þegar það liggur fyrir, við útgáfu lyfjaávísana og alla yfirferð lyfja sjúklings. Yfirfara þarf óútleystar lyfjaávísanir í lyfjaávísanagátt og ógilda þær ef við á. Þetta á við um öll lyf, en sérstaklega um ávana- og fíknilyf, sjá nánar í reglugerð um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja, nr. 740/2020. Ef í gildi er ávísun í lyfjaávísanagátt á ávana- og fíknilyf er óheimilt að útbúa aðra lyfjaávísun, nema:
Ávísað sé á annan styrkleika lyfsins, annað lyfjaform eða lyf með öðru virku innihaldsefni.
Fella eigi úr gildi gildandi lyfjaávísun og útbúa nýja.
Ávísandi læknir hverju sinni ber ábyrgð á að þetta sé gert.
Um ávana- og fíknilyf gildir að það er læknirinn sem ákveður hvaða lyf er notað og gefur fyrirmæli um notkunina. Læknirinn metur á gagnrýninn hátt og út frá bestu þekkingu hvaða lyfjum einstaklingur þarf raunverulega á að halda og í hvaða skömmtum og endurskoðar lyfjanotkunina reglulega. Lækni er því skylt að synja um þær lyfjaávísanir sem hann telur stangist á við Leiðbeiningar um góða starfshætti lækna við ávísun ávana- og fíknilyfja og fleiri lyfja sem hafa misnotkunarhættu í för með sér.
Lyfjaávísanir áhættusamra lyfja eiga að vera í höndum þess læknis sem hóf meðferð, eða í samráði við hann. Þetta á sérstaklega við þegar um ávana- og fíknilyf er að ræða og sjúklingur hefur fengið hærri skammta en kveðið er á um í sérlyfjaskrá eða lyf sem ætti ekki að nota samhliða.
Læknanemar með tímabundið starfsleyfi hafa ekki heimild til að ávísa eftirritunarskyldum lyfjum. Þeir mega ekki ávísa öðrum ávana- og fíknilyfjum nema í samráði við lækni á viðkomandi starfsstöð enda hafi sá ótakmarkað lækningaleyfi. Læknar sem eru ábyrgir fyrir læknanemum með tímabundið starfsleyfi eiga að framfylgja þessum reglum.
Frekari upplýsingar
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is