Fara beint í efnið

Lyfjaávísanir - eftirlit og leiðbeiningar

Leiðbeiningar um góða starfshætti lækna við ávísun ávana- og fíknilyfja og fleiri lyfja sem hafa misnotkunarhættu í för með sér

Mikilvægt er að læknar nýti ávallt lyfjagagnagrunn embættis landlæknis (t.d. miðlæga lyfjakortið þegar það er að fullu innleitt) við útgáfu lyfjaávísana og alla yfirferð lyfja sjúklings. Yfirfara þarf óútleystar lyfjaávísanir í lyfjaávísanagátt og ógilda þær ef við á. Þetta á við um öll lyf, en sérstaklega um ávana- og fíknilyf, sjá nánar í reglugerð um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja, nr. 740/2020. Ef ávana- og fíknilyf er laust til afgreiðslu í lyfjaávísanagátt er óheimilt að ávísa sama lyfi, nema ávísunin sem fyrir er sé gerð ógild. Ávísandi læknir hverju sinni ber ábyrgð á að þetta sé gert.

Brot á reglum um ávísanir ávana- og fíknilyfja geta varðað takmörkun heimildar til ávísunar tiltekinna lyfja eða lyfjaflokka. Endurtekin eða alvarleg brot geta varðað sviptingu starfsleyfis í samræmi við lög um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Um ávísanir ávana- og fíknilyfja

Um ávana- og fíknilyf gildir að það er læknirinn en ekki sjúklingurinn sem ákveður endanlega hvaða lyf er notað og gefur fyrirmæli um notkunina. Lög um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, veita sjúklingum t.d. ekki rétt á að ráða sjálfir lyfjavali eða krefja lækni um ávísun einstakra lyfja eða skömmtun þeirra, nema læknirinn samþykki. Læknirinn metur á gagnrýninn hátt og út frá bestu þekkingu hvaða lyfjum einstaklingur þarf raunverulega á að halda og í hvaða skömmtum og endurskoðar lyfjanotkunina reglulega. Lækni er því skylt að synja um þær lyfjaávísanir sem hann telur stangast á við góða starfshætti lækna.

Lyfjaávísanir áhættusamra lyfja eiga að vera í höndum þess læknis sem hóf meðferð, eða í samráði við hann. Þetta á sérstaklega við þegar um ávana- og fíknilyf er að ræða og sjúklingur hefur fengið hærri skammta en kveðið er á um í sérlyfjaskrá - eða lyf sem ætti ekki að nota samhliða.

Læknanemar með tímabundið starfsleyfi hafa ekki heimild til að ávísa eftirritunarskyldum lyfjum. Þeir mega ekki ávísa öðrum ávana- og fíknilyfjum nema í samráði við lækni á viðkomandi starfsstöð enda hafi sá ótakmarkað lækningaleyfi. Læknar sem eru ábyrgir fyrir læknanemum með tímabundið starfsleyfi eiga að sjá til þess að framfylgja þessum reglum.

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis