Fara beint í efnið

Er hægt að nota erlendan bankareikning til að taka við greiðslum?

Já, hægt er að skrá erlendan reikning á Mínar síður TR, þú smellir á Þú hjá TR, svo á Þínar upplýsingar og að lokum Bankaupplýsingar, þar er hnappur Skipta um bankareikning og þú hakar við Erlendur reikningur og fyllir inn upplýsingarnar.

Greiðslur inn á erlenda reikninga geta tekið 3-4 virka daga að berast og bankinn innheimtir gjald fyrir.