Endurhæfingarlífeyrir til 31. ágúst 2025
Umsókn
Athugið að upplýsingar á þessari síðu eru um örorku- og endurhæfingarlífeyriskerfið sem var í gildi til 31. ágúst 2025. Umsækjendur frá 1. september 2025 eru metnir samkvæmt nýja kerfinu á meðan þau sem áttu mat í gildi í gamla kerfinu til að minnsta kosti 31. ágúst 2025 færðust sjálfkrafa yfir í nýja kerfið.
Hér fyrir neðan má nálgast upplýsingar um nýja kerfið:
Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur frá 1. september 2025
Örorkulífeyrir frá 1. september 2025
Svona sækir þú um á Mínum síðum TR
Smelltu á Sækja um
Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum
Veldu Endurhæfingarlífeyri
Fylltu út umsókn og hengdu viðeigandi skjöl við
Smelltu á Senda umsókn
Einnig er hægt að sækja um:
í þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar,
hjá umboðsmönnum, sem eru staðsettir hjá sýslumönnum utan höfuðborgarsvæðisins.
Eftir að umsókn hefur verið skilað getur þú fylgst með stöðu hennar á Mínum síðum undir Staða umsókna.
Þjónustuaðili
Tryggingastofnun