Nýjar sjúkra- og endurhæfingargreiðslur
Á þessari síðu
Endurhæfingar- og meðferðarúrræði
Viðurkenndir þjónustuaðilar
Viðurkenndir þjónustuaðilar eru fagaðilar sem starfa í samræmi við lög um almannatryggingar og veita þjónustu í tengslum við endurhæfingu eða meðferð. Viðurkenndir þjónustuaðilar bera ábyrgð á gerð endurhæfingaráætlana og staðfestinga og skila þeim gögnum rafrænt til TR. Auk Tryggingastofnunar eru eftirfarandi aðilar skilgreindir sem viðurkenndir þjónustuaðilar:
Félagsþjónustur sveitarfélaga
Vinnumálastofnun
Heilbrigðisstofnun
VIRK starfsendurhæfingarsjóður
Þessir þjónustuaðilar hafa gert samninga við aðra meðferðar- og endurhæfingaraðila og hafa eftirfarandi aðilar því heimild til þess að útbúa og skila inn endurhæfingaráætlunum og staðfestingum:
Krýsuvík
Þraut
Ljósið
Hæfi
Grænahlíð
Hlaðgerðarkot
Kjarkur
Hugarafl
Starfsendurhæfing Suðurlands
Starfsendurhæfing Vesturlands
Starfsendurhæfing Norðurlands
Starfsendurhæfing Vestfjarða
Starfsendurhæfing Hafnarfjarðar
Hringsjá
Virk endurhæfing
Virk endurhæfing hefur það markmið að auka færni einstaklinga til atvinnuþátttöku að hluta eða að fullu. Endurhæfingin þarf að taka mið af heildarvanda einstaklingsins og miðar að því að bæta heilsu og efla starfsorku.
Ýmislegt getur fallið undir virka endurhæfingu en sem dæmi er hægt að nefna sjúkraþjálfun, sálfræðiþjónustu og endurhæfingu á vegum starfsendurhæfingarstöðva eða geðheilsuteyma.
Viðurkennd meðferð
Með viðurkenndri meðferð er átt við læknismeðferð sem læknir eða annar heilbrigðisstarfsmaður veitir.
Markmiðið með viðurkenndu meðferðinni er að auka getu einstaklings til atvinnuþátttöku að hluta eða fullu.
Viðurkenndir þjónustuaðilar útbúa staðfestingar á viðurkenndri meðferð þar sem upplýsingar um meðferðina eru skráðar ásamt tímabili.
Hægt er að sækja um 12 mánuði í senn en greiðsluréttur myndast fyrsta næsta mánaðar eftir að viðurkennd læknismeðferð hefst.
Sem dæmi um viðurkennda meðferð er krabbameinsmeðferð.
Bið eftir meðferð eða endurhæfingu - biðgreiðslur
Með bið eftir meðferð eða endurhæfingu er átt við að einstaklingur bíði eftir því að viðurkennd meðferð eða endurhæfing hefjist.
Ekki er nóg að læknir hafi gert tilvísun í tiltekið úrræði heldur þarf einstaklingurinn að hafa fengið samþykki inn í úrræðið og bíði eftir því að endurhæfing eða meðferð hefjist.
Viðurkenndir þjónustuaðilar útbúa staðfestingar á bið þar sem upplýsingar um meðferðina eða endurhæfinguna sem beðið er eftir eru skráðar ásamt tímabili.
Hægt er að sækja um allt að 6 mánuði í senn en greiðsluréttur myndast fyrsta næsta mánaðar eftir að einstaklingur skráist á bið hjá úrræði.
Heilsubrestur
Með heilsubresti er átt við að einstaklingur geti ekki hafið endurhæfingu eða meðferð þar sem heilsubrestur kemur í veg fyrir að fyrirhuguð endurhæfing eða meðferð hefjist.
Hér getur verið að einstaklingur þurfi að ná heilsu eftir sjúkdóm, slys eða áfall og tími þarf að líða áður en hann geti farið í læknisfræðilega aðgerð eða hafið endurhæfingu.
Viðurkenndir þjónustuaðilar útbúa staðfestingar á heilsubresti þar sem upplýsingar um heilsubrestinn koma fram. Auk þess þurfa að koma fram upplýsingar um mögulega meðferð eða endurhæfingu sem einstaklingurinn færi í eftir að heilsu er náð.
Hægt er að sækja um allt að 6 mánuði í senn en greiðsluréttur myndast fyrsta næsta mánaðar eftir að einstaklingur telst búa við heilsubrest.
Þjónustuaðili
Tryggingastofnun