Fara beint í efnið

Nýjar sjúkra- og endurhæfingargreiðslur

Atvinna og nám samhliða endurhæfingargreiðslum

Atvinna

Þátttaka á vinnumarkaði að hluta sem stuðlar að aukinni starfshæfni umsækjanda, getur talist vera liður í endurhæfingu eða viðurkenndri meðferð. Það þarf að koma fram í innsendum endurhæfingaráætlunum eða staðfestingum frá fagaðila. Einnig þarf að senda inn staðfestingu frá vinnuveitanda varðandi starfshlutfall og hvenær starf hófst.

Þó skal ætíð horft til þess að þátttaka á vinnumarkaði sé ekki svo umfangsmikil að ekki gefist svigrúm til að sinna þeim endurhæfingarúrræðum eða viðurkenndri meðferð sem tekur á heilsufarsvanda.  Lesa má um fjárhæðir og frítekjumörk hér.

Nám

Nám verður að vera líklegt til að auka líkur á endurkomu á vinnumarkað. Heimilt er að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið teljist ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.

TR er þó heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á framhaldsskólastigi sem nemur allt að 20 einingum eða á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið teljist ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.

TR er einnig heimilt að meta fjölda eininga sérstaklega þegar einstaklingur er með staðfesta fötlunargreiningu og er á sérnámsbraut eða starfsbraut enda sé námið að jafnaði ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.

TR leggur mat á hvort nám samræmist endurhæfingu á grundvelli staðfestingar frá skóla.

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun