Prentað þann 25. nóv. 2024
989/2016
Reglugerð um skipsbúnað.
1. gr. Innleiðing á tilskipun.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/90/ESB frá 23. júlí 2014, um búnað um borð í skipum og niðurfellingu á tilskipun ráðsins 96/98/EB (tilskipunin), skv. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 163/2016 frá 26. ágúst 2016. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 52, 22. september 2014, bls. 647-686.
2. gr. Framkvæmd þessarar reglugerðar.
- Samgöngustofa annast framkvæmd og eftirlit þessarar reglugerðar að því leyti sem ekki er kveðið öðruvísi á í þessari reglugerð.
- Faggildingarsvið Einkaleyfastofu sinnir mati og vöktun tilkynntra aðila.
- Um tilkynningu samræmismatsaðila og eftirlit með þeim fer eftir lögum nr. 24/2006, um faggildingu o.fl., með síðari breytingum. Tilkynntir aðilar skulu vaktaðir annað hvert ár.
- Skilyrði fyrir tilkynningu er að samræmismatsaðili uppfylli þau skilyrði sem mælt er fyrir um í III. viðauka við tilskipunina.
- Faggildingarsvið Einkaleyfastofu skal einnig hafa eftirlit með að tilkynntir aðilar uppfylli kröfur sem gerðar eru í 20. gr., 1. mgr. 24. gr. og 2. mgr. 34. gr. tilskipunarinnar.
3. gr. Málsmeðferð og viðurlög.
- Um málsmeðferð, ákvarðanir og réttarúrræði Samgöngustofu fer skv. lögum nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, með síðari breytingum og lögum nr. 119/2012, um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, með síðari breytingum.
- Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum skv. 29. gr. laga nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, með síðari breytingum.
4. gr. Gildistaka og lagastoð.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. mgr. 1. gr. laga nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur brott reglugerð nr. 589/2004, um skipsbúnað, með síðari breytingum.
Innanríkisráðuneytinu, 18. nóvember 2016.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Björn Freyr Björnsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.