Prentað þann 13. mars 2026
1412/2025
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 989/2016 um skipsbúnað.
1. gr.
B-liður 1. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1533 frá 23. júlí 2025 um reglur um beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2014/90/ESB að því er varðar hönnunar-, smíða- og nothæfiskröfur sem og prófunarstaðla fyrir búnað um borð í skipum og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1975, skv. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 193/2025 frá 19. september 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73, frá 20. nóvember 2025 bls. 125-358.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 24. gr. skipalaga nr. 66/2021 og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 10. desember 2025.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Katrín Pálsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 19. desember 2025
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.