Fara beint í efnið

Prentað þann 23. apríl 2024

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 30. okt. 2018 – 24. maí 2019 Sjá núgildandi
Sýnir breytingar gerðar 30. okt. 2018 af rg.nr. 943/2018

989/2016

Reglugerð um skipsbúnað.

1. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtaldar gerðir Evrópusambandsins:

  1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/90/ESB frá 23. júlí 2014, um búnað um borð í skipum og niðurfellingu á tilskipun ráðsins 96/98/EB (tilskipunin), skv. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 163/2016 frá 26. ágúst 2016. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 52, 22. september 2014, bls. 647-686.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 20172018/306773 frá 615. febrúarmaí 20172018 um tilgreiningu hönnunar-, smíða- og nothæfiskrafnanothæfiskröfur sem og prófunarstaðla fyrir búnað um borð í skipum og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/306, skv. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138110/20172018 frá 731. júlímaí 20172018. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 4854, 323. ágúst 20172018, bls. 34753-493232.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/414 frá 9. janúar 2018 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/90/ESB að því er varðar auðkenningu tiltekinna hluta búnaðar um borð í skipum sem mögulegt er að merkja með rafrænum hætti.

2. gr. Framkvæmd þessarar reglugerðar.

  1. Samgöngustofa annast framkvæmd og eftirlit þessarar reglugerðar að því leyti sem ekki er kveðið öðruvísi á í þessari reglugerð.
  2. Faggildingarsvið Einkaleyfastofu sinnir mati og vöktun tilkynntra aðila.
  3. Um tilkynningu samræmismatsaðila og eftirlit með þeim fer eftir lögum nr. 24/2006, um faggildingu o.fl., með síðari breytingum. Tilkynntir aðilar skulu vaktaðir annað hvert ár.
  4. Skilyrði fyrir tilkynningu er að samræmismatsaðili uppfylli þau skilyrði sem mælt er fyrir um í III. viðauka við tilskipunina.
  5. Faggildingarsvið Einkaleyfastofu skal einnig hafa eftirlit með að tilkynntir aðilar uppfylli kröfur sem gerðar eru í 20. gr., 1. mgr. 24. gr. og 2. mgr. 34. gr. tilskipunarinnar.

3. gr. Málsmeðferð og viðurlög.

  1. Um málsmeðferð, ákvarðanir og réttarúrræði Samgöngustofu fer skv. lögum nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, með síðari breytingum og lögum nr. 119/2012, um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, með síðari breytingum.
  2. Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum skv. 29. gr. laga nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, með síðari breytingum.

4. gr. Gildistaka og lagastoð.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. mgr. 1. gr. laga nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur brott reglugerð nr. 589/2004, um skipsbúnað, með síðari breytingum.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.