Hjálpartæki Sjúkratrygginga Íslands.
Skilgreiningar og skýringar:
Lífeyrisþegi: | Sá sem hefur í gildi örorkuskírteini frá Tryggingastofnun ríkisins eða er 67 ára eða eldri. |
Börn/unglingar: | Börn og unglingar yngri en 18 ára. |
Innkaupaheimild: | Innkaupaheimild veitt af Sjúkratryggingum Íslands vegna einnota hjálpartækja |
sem gildir ýmist í eitt ár, fimm ár eða tíu ár. Sjá að öðru leyti 3. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar.
50/70/80/90/95/100%: Þátttaka Sjúkratrygginga Íslands í greiðslu á hjálpartæki er 50%, 70%, 80%, 90%, 95% eða 100%.
Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga í hjálpartækjum sem eru nauðsynleg til leiks og tómstunda barna og/eða skipulagðra íþróttaæfinga barna er 95% í einu tæki á þriggja ára fresti, ef fyrra tæki sem fengið var með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga nýtist ekki lengur. Veita má greiðsluþátttöku oftar ef nauðsynlegt er að teknu tilliti til vaxtar og þroska barnsins.
Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga í hjálpartækjum sem eru nauðsynleg til frístunda og afþreyingar fullorðinna er 80% í einu tæki á fimm ára fresti, ef fyrra tæki sem fengið var með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga nýtist ekki lengur.
Efnisyfirlit.
04 Hjálpartæki til meðferðar og þjálfunar.
04 03 Hjálpartæki við öndunarmeðferð
04 06 Hjálpartæki við blóðrásarmeðferð
04 19 Hjálpartæki til lyfjaskömmtunar
04 24 Búnaður (tæki og efni) til mælinga (efnamælinga)
04 27 Raförvunartæki
04 33 Hjálpartæki til varnar legusárum
04 48 Hreyfi-, kraft- og jafnvægistæki
06 Stoðtæki (spelkur, gervilimir og bæklunarskór) og gervihlutar aðrir en gervilimir.
06 03 Hryggspelkur
06 04 Kviðslitsbelti
06 06 Spelkur fyrir efri útlimi
06 12 Spelkur fyrir neðri útlimi
06 15 Raförvunarspelkur
06 18 Gervihandleggir og hendur
06 24 Gervifótleggir og fætur
06 30 Gervihlutar aðrir en gervilimir (m.a. hárkollur og gervibrjóst)
06 90 Bæklunarskór
09 Hjálpartæki við persónulega aðhlynningu og fatnaður.
09 03 Fatnaður
09 06 Hlífðartæki
09 07 Hjálpartæki til stuðnings við líkama
09 09 Hjálpartæki til að klæða sig í og úr
09 12 Hjálpartæki við salernisferðir
09 15 Hjálpartæki vegna barkaskurðar
09 18 Stómahjálpartæki
09 21 Efni til húðvarnar og húðhreinsunar
09 24 Þvagleggir
09 27 Þvagpokar
09 30 Bleiur
09 31 Hjálpartæki vegna hægðaleka
09 33 Hjálpartæki við snyrtingu og böðun
09 39 Hjálpartæki við hársnyrtingu
12 Ferlihjálpartæki og hjálpartæki við flutning.
12 03 Stafir/hækjur
12 06 Göngugrindur
12 07 Fylgihlutir við gönguhjálpartæki
12 12 Hjálpartæki í bifreiðar
12 17 Stigaklifrarar
12 18 Hjól
12 22 Hjólastólar
12 23 Rafknúnir hjólastólar
12 24 Aukahlutir fyrir hjólastóla
12 27 Önnur farartæki
12 31 Hjálpartæki við flutning fólks
12 36 Tæki til að lyfta fólki
18 Hjálpartæki til heimila.
18 03 Borð
18 09 Stólar
18 10 Aukahlutir á vinnustóla og hjólastóla
18 12 Rúm
18 15 Aukabúnaður fyrir húsgögn
18 18 Stuðningsbúnaður
18 21 Dyra- og gluggaopnarar/-lokarar
18 30 Stokkalyftur, hjólastólalyftur, sætislyftur í stiga og skábrautir
18 33 Öryggisbúnaður á heimili
22 Hjálpartæki til tjáskipta, upplýsinga og viðvörunar.
22 21 Samtalshjálpartæki
22 24 Hljóðflutningskerfi
22 27 Viðvörunarhjálpartæki
22 30 Lestrarhjálpartæki
22 33 Tölvur
22 36 Inntaksbúnaður fyrir tölvur
22 39 Úttaksbúnaður fyrir tölvur
24 Hjálpartæki til að meðhöndla tæki eða hluti.
24 09 Stjórntæki
24 13 Hjálpartæki til stjórnunar á umhverfi
24 18 Hjálpartæki vegna skertrar færni í höndum/fingrum
24 21 Tæki til framlengingar
24 24 Tæki til skorðunar
04 Hjálpartæki til meðferðar og þjálfunar.
0403 Hjálpartæki við öndunarmeðferð.
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samning um framkvæmd og rekstur súrefnisþjónustu (súrefni á þrýstihylkjum, súrefnissíur og fylgihluti) fyrir einstaklinga í heimahúsum. Þá hafa Sjúkratryggingar Íslands gert samkomulag um ráðgjöf varðandi súrefnisþjónustu fyrir einstaklinga í heimahúsum. Einnig hefur stofnunin gert samning um öflun, umsjón og rekstur CPAP-, BIPAP- og rúmmálsstýrðra öndunarvéla og ráðgjöf fyrir einstaklinga í heimahúsum. Öndunarvélarnar eru greiddar að fullu. Skiptanlegir fylgihlutir og rekstrarvörur fyrir vélarnar ásamt þjónustu er einnig greidd að fullu nema fyrir notendur CPAP-öndunarvéla. Í þeim tilvikum er greiddur kostnaður fyrir lífeyrisþega og börn/unglinga umfram 440 kr. af mánaðarlegum meðalkostnaði og fyrir aðra umfram 2.650 kr.
Gómur vegna kæfisvefns er samþykktur að undangenginni svefnrannsókn. Er hann þá greiddur 70%, þó aldrei meira en 45.000 kr.
Veitt er innkaupaheimild vegna fylgihluta við öndunarhjálpartæki, þ.e. fylgihluti fyrir öndunarvélar, sogtæki, hóstavélar og öndunarmæla. Lífeyrisþegar þurfa auk þess að framvísa viðeigandi skírteini/skilríkjum.
Súrefnismettunarmælar eru að jafnaði einungis samþykktir fyrir börn sem eru með alvarlegan hjarta- og/eða lungnasjúkdóm þannig að nauðsynlegt sé að fylgjast stöðugt með súrefnismettun í þeim tilgangi að stjórna súrefnisgjöf og/eða bregðast við lífshættulegum aðstæðum samkvæmt fyrirmælum lækna um viðbrögð við frávikum frá tilteknum skilgreindum viðmiðum sem koma fram í umsókn.
04 03 06 Innöndunartæki 70/100% (greiðsluþátttaka 100% vegna Cystic Fibrosis)
04 03 12 Öndunarvélar 100%, þ. á m. CPAP og BIPAP og skiptanlegir fylgihlutir, þjónusta og rekstrarvörur, þó þannig að skiptanlegir fylgihlutir, þjónusta og rekstrarvörur eru ekki greidd að fullu fyrir notendur CPAP, sbr. hér að ofan
04 03 18 Súrefnisbúnaður 100%
04 03 21 Sogtæki (þ.m.t. hóstavélar) 100%
04 03 27 Tæki til að bæta öndun 70% (m.a. grímur með inn- og útöndunarmótstöðu) 04 03 30 Öndunarmælar 100%
04 03 33 Gómar vegna kæfisvefns 70% með hámarki 45.000 kr.
04 03 90 Viðgerðir á öndunartækjum 100%
04 03 91 Varahlutir (vegna bilana) í öndunartæki 100%
04 03 92 Fylgihlutir v/sogtækja og hóstavéla 100%
04 03 93 Fylgihlutir v/öndunarvéla 100% 04 03 94 Fylgihlutir v/öndunarmæla 100%
0406 Hjálpartæki við blóðrásarmeðferð.
Að hámarki eru samþykkt 3 pör af þrýstisokkum á 12 mánaða tímabili, þrýstingur skal að lágmarki vera 18 mmHg. Að jafnaði eru samþykktar 2 þrýstiermar á 12 mánaða tímabili. Aðeins er greitt fyrir þrýstisokka/þrýstibúnað vegna bruna, langvinnra alvarlegra bláæða/sogæðavandamála eða langvarandi bjúgsöfnunar vegna lömunar. Fyrir börn í vexti eru þrýstisokkar/þrýstibúnaður greiddur 90%, en fyrir aðra 70%. Vegna bruna er þessi búnaður greiddur 100%. Hámarksstyrkur vegna tilbúinna þrýstisokka er kr. 11.600 m.v. 100% greiðsluþátttöku en annars hlutfall af þeirri upphæð (90% kr. 10.450 og 70% kr. 8.150). Sérsaumaðir þrýstisokkar eru samþykktir þegar um er að ræða veruleg líkamleg frávik vegna sjúkdóma, byggingarlags eða slysa og sogæðabjúgs, stig I. Styrkupphæð slíkra sokka er tvöföld miðað við tilbúna þrýstisokka. Sérsaumaðir þrýstisokkar úr flatsaum eru samþykktir fyrir notendur með staðfestan sogæðabjúg (lymphoedema) stig II-III og skal sjúkdómsgreining staðfest af æðaskurðlækni að undangengnum rannsóknum. Styrkupphæð slíkra sokka er byggð á kostnaðarmati hverju sinni.
04 06 06 Þrýstisokkar/þrýstibúnaður fyrir handleggi, fætur og bol 70/90/100%
04 06 09 Loftfylltur þrýstibúnaður 70/100%
04 06 90 Loftdæla fyrir þrýstibúnað 70/100%
0419 Hjálpartæki til lyfjaskömmtunar.
Hjálpartæki til lyfjaskömmtunar (sprautubúnaður) eru greidd vegna langvinnra alvarlegra sjúkdóma, s.s. sykursýki, krabbameins og parkinsonsjúkdóms. Greitt er 90% fyrir einnota sprautur, nálar og blóðhnífa. Almennt er greitt fyrir tvo lyfjapenna á ári. Hjá þeim sem nota bæði hraðverkandi og langverkandi insúlín má þó greiða fyrir fjóra lyfjapenna á ári.
Fyrir einnota blóðhnífa er greitt:
a) Blóðhnífa fyrir þá sem nota blóðstrimla til að fylgjast með blóðsykri.
b) 200/750/1100/2000/2500 stk. á 12 mánaða tímabili fyrir þá sem nota nema sem skannar/síritar blóðsykur og fá 200/750/1100/2000/2500 stk. blóðstrimla á sama tímabili.
c) 1100 stk. á 12 mánaða tímabili fyrir þá sem eru með sykursýki II og fá 1100 stk. blóðstrimla á sama tímabili.
d) 150/50 stk. á 12 mánaða tímabili fyrir þá sem eru með sykursýki II og fá 150/50 stk. blóðstrimla á sama tímabili.
Hjálpartæki til nákvæmra mælinga á lyfi þegar um mjög nákvæmt magn er að ræða sem ekki er hægt að fá vigtað hjá seljanda. Um er að ræða lyf sem tekin eru um munn eða með sprautu. Einnota endaþarmsrör vegna lyfjagjafar eru veitt á grundvelli innkaupaheimildar til eins eða fimm ára í senn.
Veitt er innkaupaheimild fyrir samþykktum vörum.
04 19 04 Hjálpartæki til nákvæmra mælinga á lyfjum 90%
04 19 06 Nálabyssur 90%
04 19 09 Sprautur, einnota 90%
04 19 15 Einnota nálar 90%
04 19 24 Dælur vegna gjafar lyfja eða næringar í æð (útvortis) 100%
04 19 30 Einnota endaþarmsrör til lyfjagjafa 100%
04 19 91 Lyfjapennar 90%, sjá framangreint
04 19 93 Blóðhnífar, einnota 90%, sjá framangreint
04 19 96 Fylgihlutir með dælu vegna gjafar lyfs eða næringar í æð (útvortis) s.s. lyfjahylki, slöngur, nálar, fjarstýringar 95%
0424 Búnaður (tæki og efni) til mælinga (efnamælinga).
Einnota rannsóknarbúnaður er greiddur 90%, þó með hámarki, fyrir efni til blóðsykursmælinga (blóðstrimla) og blóðsykursmæla. Eftirtaldir sjúkratryggðir einstaklingar eiga rétt á greiðsluþátttöku í blóðstrimlum og nemum sem skanna/sírita blóðsykur:
a) Þeir sem eru með sykursýki I og nota blóðstrimla til að fylgjast með blóðsykri geta fengið blóðstrimla sem miðast við 10 mælingar á dag eða 3.600 blóðstrimla á tólf mánaða tímabili (72 pakkningar).
b) Þeir sem eru með sykursýki I og nota nema sem skannar/síritar blóðsykur geta fengið að hámarki 200/750/1100/2000/2500 blóðstrimla á tólf mánaða tímabili (4/15/22/40/50 pakkningar). Auk þess getur þessi hópur fengið tiltekinn fjölda nema á tólf mánaða tímabili samkvæmt gagnreyndum viðmiðum.
c) Þeir sem eru með sykursýki II og nota insúlín eða insúlín og lyf í töfluformi sem geta valdið blóðsykurfalli eða eru með meðgöngusykursýki geta fengið að hámarki 1.100 blóðstrimla á tólf mánaða tímabili (22 pakkningar). Þeir sem eru með skerta viðvörun við blóðsykurlækkun, alvarleg blóðsykursföll eða óviðunandi blóðsykurstjórnun geta fengið nema sem skannar/síritar blóðsykur og þá gildir reglan, sbr. b-lið hér að ofan.
d) Þeir sem eru með sykursýki II og nota lyf í töfluformi sem geta valdið blóðsykursfalli og þeir sem nota lyf í töfluformi sem ekki valda blóðsykursfalli en vegna læknisfræðilegra röksemda þurfa að mæla blóðsykur geta fengið að hámarki 50 blóðstrimla á tólf mánaða tímabili (eina pakkningu). Á fyrsta ári eftir greiningu geta þeir þó fengið að hámarki 150 blóðstrimla á tólf mánaða tímabili (þrjár pakkningar).
Blóðstrimlar samkvæmt framangreindu eru samþykktir 90% og er hámarksgreiðsla fyrir pakkningu (50 stk.) 6.500 kr. Mælar til blóðsykursmælinga eða blóðsykurs- og blóðketónmælinga eru greiddir 50%, hámark 11.600 kr. Mælarnir eru að jafnaði greiddir á þriggja ára fresti en vegna notkunar á nema sem skannar/síritar blóðsykur á tveggja ára fresti. Blóðstrimlar til blóðketónmælinga eru samþykktir 90% hámark 100 stk. á 12 mánaða tímabili (tvær pakkingar), 12.500 kr. fyrir pakkningu.
Veitt er innkaupaheimild fyrir samþykktum einnota vörum.
04 24 03 Efni til þvagmælinga (þvagstrimlar) 90%
04 24 12 Efni til blóðsykursmælinga (blóðstrimlar) 90% m/ákv. hámarki, sbr. framangreint
04 24 90 Mælar til blóðsykursmælinga- eða blóðsykurs- og blóðketónmælinga 50% m/ákv. hámarki, sbr. framangreint
04 24 91 Mælitæki til serum kalsíum mælinga vegna alvarlegs nýrnasjúkdóms 100% (samkvæmt verðkönnun hverju sinni)
04 24 92 Efni til serum kalsíum mælinga vegna alvarlegs nýrnasjúkdóms 100% (samkvæmt verðkönnun hverju sinni)
04 24 94 Mælitæki til blóðstorkumælinga (INR gildi) 100% þó greiðir umsækjandi upphæð til samræmis við upphæð umsækjenda í blóðsykursmæli
04 24 95 Efni til blóðstorkumælinga 100% (miðað er við hámarksmælingu einu sinni í viku og því samþykkt 1 pk (með 24 stk.) á 24 vikna fresti)
04 24 96 Efni til blóðketónmælinga (blóðstrimlar) 90% m/ákv. hámarki, sbr. framangreint
04 24 97 Nemar sem skanna/sírita blóðsykur 95%, sbr. framangreint
0427 Raförvunartæki.
Sjúkratryggingar Íslands greiða fyrir takmarkaðan fjölda af raförvunartækjum til að meðhöndla þvag- og hægðaleka. Stofnunin hefur gert samning um vörslu og úthlutun tiltekinna tækja (sem getur verið til lengri eða skemmri tíma) svo og um rekstur þeirra.
Heimilt er að krefjast tryggingarábyrgðar fyrir skilvísi notanda tækis og má hún nema allt að kostnaðarverði nýs tækis.
04 27 09 Raförvunartæki til að meðhöndla þvag- og hægðaleka 100%
04 27 90 Kónar (rafskaut) fyrir raförvunartæki 70%
0433 Hjálpartæki til varnar legusárum.
04 33 03 Sætispúðar og sætisundirlegg til varnar legusárum 100%
04 33 04 Bakstuðningur og bakpúðar til varnar legusárum 100%
04 33 06 Búnaður til varnar legusárum í liggjandi stöðu 100%
04 33 09 Sérstakur búnaður til varnar legusárum 100% (t.d. viðvörunarkerfi til varnar legusárum)
0448 Hreyfi-, kraft- og jafnvægistæki.
Standgrindur og standbretti eru greidd vegna mikillar lömunar, svo sem vegna heilalægrar lömunar eða mænusköddunar, til varnar vöðvastyttingu eða blóðþrýstingsfalli.
04 48 06 Standgrindur og standbretti 100%
04 48 90 Fylgihlutir við standgrindur og standbretti 100%
04 48 91 Breytingar/viðgerðir á standgrindum 100%
06 Stoðtæki (spelkur, gervilimir og bæklunarskór) og gervihlutar aðrir en gervilimir.
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um kaup á spelkum og gervilimum.
Sjúkratryggingar Íslands gefa út hefti sem hefur að geyma tæmandi yfirlit yfir allar þær tegundir spelkna og gervilima sem stofnunin tekur þátt í kaupum á fyrir þá sem eru sjúkratryggðir samkvæmt lögum um sjúkratryggingar. Við hvert og eitt hjálpartæki í vörulistanum í heftinu kemur einnig fram hvaða fyrirtæki er með samning við stofnunina um kaup á viðkomandi tæki.
Almennar reglur um spelkur.
Við notkun í þrjá til tólf mánuði eru spelkur greiddar 70%. Spelkur fyrir fólk með krabbamein, lamanir (t.d. hemiparesis, poliomyelitis) og hrörnunarsjúkdóma í tauga- og vöðvakerfi (t.d. MS, MND, Guillian Barre sjúkdóm, Parkinsonsjúkdóm) og liðagigt (RA) eru greiddar að fullu svo framarlega sem þær tengjast sjúkdómnum.
Tognanir: Tognanir eru flokkaðar eftir alvarleika. Almenna reglan er sú að spelkur eru ekki greiddar vegna tognunar nema hún sé alvarleg. stig 1: los, tognunareinkenni, þroti, blæðingar: engin greiðsluþátttaka. stig 2: mjúkvefjaslit, mjög alvarleg tognun: greitt 70%.
Slitbreytingar í liðum: Slitbreytingar í liðum eru flokkaðar í þrennt eftir alvarleika.
stig 1: grunur um slitbreytingar: engin greiðsluþátttaka.
stig 2: staðfestar slitbreytingar sem valda langvarandi skerðingu á færni: greitt 70%.
stig 3: mjög miklar slitbreytingar, aflaganir á liðum, slitgigt á mjög háu stigi sem skerðir færni mjög mikið: 100%.
Mjúkvefjaslit: (t.d. krossbandaslit), jafnvel eftir aðgerðir: greitt 70%.
Gervilimir.
Greitt er fyrir tvær innri hulsur á ári. Ef þörf er á fleiri hulsum er þörfin metin hverju sinni. Rökstudd greinargerð þarf að fylgja umsókn ef sótt er um óvenju margar hulsur.
Greitt er fyrir einn gervilim eða eina harða ytri hulsu á ári, þó eftir mati hverju sinni. Ef sótt er um fleiri þarf sérstök greinargerð að fylgja umsókn. Virkir einstaklingar eiga rétt á gervilim til skiptanna til að mæta viðgerðarþörf.
Greiðslur vegna viðgerða.
Fyrsta og önnur viðgerð á spelkum á ári eru greiddar að fullu, en síðari viðgerðir 70%. Fyrsta og önnur viðgerð á gervilimum á ári eru greiddar að fullu, en síðari viðgerðir 70%. Þátttaka í kostnaði við viðgerðir á tilbúnum bæklunarskóm og sérsmíðuðum skóm á eingöngu við ef slit á skóm er ótvírætt afleiðing sjúkdómsástands (t.d. gangandi einstaklingur með ataxíu vegna heilalægrar lömunar (CP)). Að hámarki er greitt fyrir fjórar viðgerðir á tilbúnum bæklunarskóm eða sérsmíðuðum skóm á ári fyrir hvern einstakling.
Breytingar/viðgerðir innan þriggja mánaða frá afhendingu tækis teljast að öllu jöfnu vera innifaldar í aðlögun frá seljanda og er því ekki greitt sérstaklega fyrir þær.
0603 Hryggspelkur.
Við notkun í þrjá til tólf mánuði eru spelkur greiddar 70%. Hryggspelkur fyrir fólk með krabbamein, lamanir og hrörnunarsjúkdóma í tauga- og vöðvakerfi (t.d. MS, MND, Guillian Barre sjúkdóm, Parkinsonsjúkdóm) og liðagigt (RA) eru greiddar að fullu svo framarlega sem þær tengjast sjúkdómnum. Mjúkir hálskragar eru ekki greiddir af Sjúkratryggingum Íslands.
Fyrsta og önnur viðgerð á spelkum á ári eru greiddar 100% en síðari viðgerðir 70%.
Hryggspelkur eru greiddar að fullu við eftirfarandi tilefni: hryggskekkja yfir 20°, eftir hryggbrot, eftir festingu (spondylodesis) sem er ótryggilega gróin, endurteknar spengingar, í tengslum við aðgerð, stífir hálskragar eftir hálsaðgerð eða samsvarandi. Að öðru leyti eru hryggspelkur greiddar 70%.
Spondylolysis (ekki komið skrið): greitt 70% ef alvarleg einkenni, ella engin greiðsluþátttaka. Spondylolisthesis (komið skrið): greitt 70%, (jafnvel þótt beðið sé eftir aðgerð/spengingu), ef a.m.k. 50% skrið og viðvarandi leiðniverkir í fætur þá greitt 100%.
Spinal stenosa: greitt 100% ef aðgerð hefur verið framkvæmd eða ef aðgerð er óframkvæmanleg, annars 70%.
Samfallsbrot í baki (compressions fraktura) og álagsbrot (stressfraktura): greitt 100% ef brot er nýtt/ógróið eða endurtekin samföll, greitt 70% ef gamalt/gróið brot.
Kviðslitsbelti/nýrnabelti: Sjá undir flokki 0604.
Mjóbaksverkir, lumbago, slæm/-ur í baki o.þ.h.: Engin greiðsluþátttaka í bakbelti ef sjúkdómsgreining er óljós (t.d. mjóbaksverkir, lumbago, slæm/-ur í baki o.þ.h.).
Spelkubolir: Heimilt er að samþykkja að hámarki 2 stk. á 12 mánaða tímabili í fyrstu en svo eftir þörfum þó mest 4 stk. á 12 mánaða tímabili við notkun á bolspelku ef sárahætta og eða vegna sjúkdómsástands sem veldur mikilli svitamyndun.
06 03 03 Mjaðmarspelkur (SIO) 70/100%
06 03 06 Mjóhryggjarspelkur (LSO) 70/100%
06 03 09 Brjóstkassa- og bolspelkur (TLSO) 70/100%
06 03 12 Hálsspelkur (CO) 100%
06 03 15 Háls- og brjóstkassaspelkur (CTO) 100%
06 03 18 Háls- og bolspelkur (CTLSO) 100%
06 03 90 Viðgerðir á hryggspelkum 70/100%
06 03 91 Spelkubolir 70% samkvæmt verðkönnun hverju sinni
0604 Kviðslitsbelti.
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um kaup á kviðslitsbeltum. Kviðslitsbelti (nýrnabelti) eru greidd ef skurðaðgerð kemur ekki til greina, síendurteknar aðgerðir bera ekki árangur eða ef um alvarlega nýrnasjúkdóma er að ræða. Kviðslitsbelti eru greidd 70% ef áætlaður notkunartími er skemmri en 12 mánuðir en 100% ef um alvarlegt langvarandi ástand er að ræða. 06 04 06 Kviðslitsbelti 70/100%
0606 Spelkur fyrir efri útlimi, líkamsbornar.
Við notkun í þrjá til tólf mánuði eru spelkur greiddar 70%. Spelkur fyrir fólk með krabbamein, lamanir (t.d. hemiparesis, poliomyelitis) og hrörnunarsjúkdóma í tauga- og vöðvakerfi (t.d. MS, MND, Guillian Barre sjúkdóm, Parkinsonsjúkdóm) og við aflögun liða vegna liðagigtar (RA) eru greiddar að fullu svo framarlega sem þær tengjast sjúkdómnum.
Fyrsta og önnur viðgerð á spelkum á ári eru greiddar 100%, en síðari viðgerðir 70%. Engin greiðsluþátttaka er fyrir spelkur við: Dæmi: tendovaginitis, tenosynovitis, sinaskeiðabólgu, tennisolnboga, tendinita, bursitis, tognanir (stig 1), carpal tunnel, De Quervain, vefjagigt. Ekki er greitt fyrir fetil.
Greitt er 70% fyrir spelkur við: Dæmi: slitbreytingar í liðum (stig 2), alvarlegar tognanir (stig 2), Dupytren contracturur, rupturur, slys, skammtímanotkun á spelkum (þrír til tólf mánuðir), liðagigt (RA) á byrjunarstigi.
Greitt er 100% fyrir spelkur við: Dæmi: slitbreytingar í liðum (stig 3), liðagigt (RA) með aflögun liða.
06 06 03 Fingurspelkur 70/100%
06 06 07 Handar- og fingurspelkur 70/100%
06 06 12 Úlnliðs- og handarspelkur 70/100%
06 06 13 Úlnliðs- og handar- og fingurspelkur 70/100% 06 06 15 Olnbogaspelkur 70/100%
06 06 19 Olnboga-, úlnliðs- og handarspelkur 70/100%
06 06 21 Axlarspelkur 70/100%
06 06 24 Axlar- og olnbogaspelkur 70/100%
06 06 25 Upphandleggsspelkur 70/100%
06 06 30 Axlar-, olnboga-, úlnliðs- og handarspelkur70/100%
06 06 90 Viðgerð á spelkum fyrir efri útlimi 70/100%
0612 Spelkur fyrir neðri útlimi.
Við notkun í þrjá til tólf mánuði eru spelkur greiddar 70%. Spelkur fyrir fólk með krabbamein, lamanir (t.d. hemiparesis, poliomyelitis) og hrörnunarsjúkdóma í tauga- og vöðvakerfi (t.d. MS, MND, Guillian Barre sjúkdóm, Parkinsonsjúkdóm) og við aflögun liða vegna liðagigtar (RA) eru greiddar að fullu svo framarlega sem þær tengjast sjúkdómnum.
Fyrsta og önnur viðgerð á spelkum á ári eru greiddar að fullu en síðari viðgerðir 70%. Virkur einstaklingur sem notar fótleggjarspelkur (061212 háar fótspelkur) á rétt á einni slíkri auka spelku til skiptanna.
Engin greiðsluþátttaka er fyrir spelkur þegar um er að ræða: Chondromalasia patellae, OsgoodSchlatter, Jumpers knee, bursitis, hallux valgus, tognanir (stig 1), calcaneal epiphysitis (beindrep/bólgur í vaxtarlínum) eða annað sambærilegt sjúkdómsástand.
Greitt er 70% fyrir spelkur þegar um er að ræða: Sublux. patellae, slit á liðböndum, alvarlegar tognanir (stig 2), dropfótarspelkur vegna annars en heilablæðingar sé ekki um varanlegt ástand að ræða, þó meira en þrír mánuðir (t.d. vegna brjóskloss), skammtímanotkun spelkna (þó a.m.k. þrír til tólf mánuðir), hnéspelkur vegna arthrosu í mjöðm (vörn gegn subluxation), sundspelkur (börn geta þó fengið sundspelkur greiddar að fullu í hæfingarskyni og þegar það er ótvíræður kostur að þau æfi sund vegna fötlunar sinnar) eða annað sambærilegt sjúkdómsástand.
Greitt er 100% fyrir spelkur þegar um er að ræða: slitbreytingar í liðum (stig 3), dropfótarspelkur vegna heilablæðingar og vegna varanlegs skaða, osteochondritis dissicans eða annað sambærilegt sjúkdómsástand. Börn geta fengið sundspelkur greiddar að fullu í hæfingarskyni og þegar það er ótvíræður kostur að þau æfi sund vegna fötlunar sinnar. Við krónískar aflaganir sem ekki lagast við aðgerðir (t.d. við endurteknar aðgerðir á hallux valgus).
Raðmeðferðir:
1. Hnéspelkur fyrir krossbandaslit: Samþykkja má 2 hnéspelkur með stuttu millibili, eina fyrir aðgerð (pre-op.), og eina eftir aðgerð (post-op.) til langtíma nota (ekki er þó alltaf þörf fyrir spelku eftir aðgerð (post-op. spelku)).
2. Klumbufótarspelkur: Heimilt er að samþykkja 2-3 spelkur með stuttu millibili fyrir börn (hraður vöxtur) þar sem oftast er um ákveðið meðferðarferli að ræða.
3. Spelkur vegna mjaðmaluxationar hjá kornabörnum eru greiddar að fullu: Samþykkja má þessar spelkur ört, a.m.k. 2-3 spelkur, enda oft um ákveðið ferli að ræða, þ.e. fyrst öflugri spelkur og síðar léttari til að styðja við.
4. Gipsspelkur (1-3) sem eru notaðar sem undanfari varanlegra spelkna vegna sérstakrar meðferðar.
Spelkusokkar: Heimilt er að samþykkja að hámarki 6 pör á 12 mánaða tímabili við notkun á ökklaspelku vegna sjúkdómsástands sem veldur mikilli svitamyndun og sárahættu.
(Skýring: Skammstafanir hér að neðan sem eru innan sviga við númerin standa fyrir enska skammstöfun, t.d. FO fyrir foot orthoses).
06 12 06 Ökklaspelkur (AFO) 70/100%
06 12 09 Hnéspelkur (KO) 70/100%
06 12 12 Fótleggjarspelkur (hné-, ökkla- og framleistaspelkur) (KAFO)70/100%
06 12 15 Mjaðmarspelkur (HIO) 70/100%
06 12 18 Fótleggjarspelkur með mjaðmarstuðningi
(hné-, ökkla-, framleista- og mjaðmarspelkur) (HIKAFO) 70/100%
06 12 90 Viðgerðir á fótspelkum 70/100%
06 12 91 Spelkusokkar 70% samkvæmt verðkönnun hverju sinni
0615 Raförvunarspelkur.
Sjúkratryggingar Íslands greiða fyrir takmarkaðan fjölda af raförvunartækjum við ökklalömun. Stofnunin hefur gert samning um vörslu og úthlutun tiltekinna tækja (sem getur verið til lengri eða skemmri tíma) svo og um rekstur þeirra.
Heimilt er að krefjast tryggingarábyrgðar fyrir skilvísi notanda tækis og má hún nema allt að kostnaðarverði nýs tækis.
06 15 90 Raförvunartæki við ökklalömun 100%
06 15 91 Fylgihlutir fyrir raförvunartæki við ökklalömun 70%
0618 Gervihandleggir og -hendur.
Fyrsta og önnur viðgerð á gervilimum á ári eru greiddar 100% en síðari viðgerðir 70%. Samþykkt er hámark ein hörð hulsa (ytri hulsa) og tvær mjúkar hulsur (innri hulsur) á gervilim á ári eða eftir mati. Virkir einstaklingar eiga rétt á gervilim til skiptanna.
Útlit getur verið með eftirfarandi hætti:
1. Svamp- og plastútlit í einum lit.
2. Plastefni sprautað úr brúsa á svamp/plast til að fá ákveðið útlit.
3. Silikon (silikonhanski) með ákveðnu (stöðluðu) útliti, þ.e. val um nokkra liti.
4. Silikon (silikonhanski) með nákvæmri eftirlíkingu á húðlit notandans (þ.e. sérstök málun eftir notandanum). Skilyrði fyrir greiðslu Sjúkratrygginga Íslands er að fyrir liggi rökstudd staðfesting sérfræðings á viðkomandi sviði (t.d. geðlæknis, sálfræðings) á að brýn þörf sé á slíku útliti vegna sálræns vanda og/eða félagslegra aðstæðna.
06 18 06 Gervihandleggir frá úlnlið 100% (ytri hulsur, án liða, innri hulsa og handa/króka)
06 18 09 Gervihandleggir frá framhandlegg 100% (ytri hulsur, tengingar og klæðningar en án liða, innri hulsa og handa/króka)
06 18 12 Gervihandleggir frá olnboga 100% (ytri hulsa, tengingar og klæðningar en án liða, innri hulsa og handa/króka)
06 18 15 Gervihandleggir frá upphandlegg 100% (ytri hulsa, tengingar og klæðningar en án liða, innri hulsa og handa/króka)
06 18 18 Gervihandleggir frá öxl 100% (ytri hulsa, tengingar og klæðningar en án liða, innri hulsa og handa/króka)
06 18 24 Gervihendur 100%
06 18 25 Krókar fyrir gervihandleggi 100%
06 18 26 Gripáhöld fyrir gervihandleggi 100% (önnur en krókar)
06 18 30 Gerviúlnliðir fyrir gervihandleggi 100%
06 18 33 Gerviolnbogaliðir fyrir gervihandleggi 100%
06 18 36 Gerviaxlarliðir fyrir gervihandleggi 100%
06 18 42 Harðar hulsur fyrir gervihandleggi (ytri hulsur) 100%
06 18 45 Mjúkar hulsur fyrir gervihandleggi (innri hulsur) 100%
06 18 57 Útlitshanskar fyrir gervihendur 100%
06 18 90 Viðgerðir á gervihandleggjum 70/100%
0624 Gervifótleggir og -fætur.
Fyrsta og önnur viðgerð á gervilimum á ári eru greiddar 100% en síðari viðgerðir 70%. Greitt er fyrir hámark eina harða hulsu (ytri hulsu) og tvær mjúkar hulsur (innri hulsur) á gervilim á ári eða eftir mati. Virkir einstaklingar eiga rétt á gervilim til skiptanna.
Útlit getur verið með eftirfarandi hætti:
1. Svamp- og plastútlit í einum lit.
2. Plastefni sprautað úr brúsa á svamp/plast til að fá ákveðið útlit.
3. Silikon með ákveðnu (stöðluðu) útliti, þ.e. val um nokkra liti.
06 24 03 Gerviframleistar (þ.m.t. táfyllingar) 100%
06 24 06 Gervifótleggir frá ökklalið 100% (ytri hulsur, án liða, innri hulsa og framleista)
06 24 09 Gervifótleggir frá kálfa 100% (ytri hulsur, tengingar, e.t.v. klæðningar en án liða, innri hulsa og framleista)
06 24 12 Gervifótleggir frá hné 100% (ytri hulsur, tengingar, e.t.v. klæðningar en án liða, innri hulsa og framleista)
06 24 15 Gervifótleggir frá læri 100% (ytri hulsur, tengingar, e.t.v. klæðningar en án liða, innri hulsa og framleista)
06 24 18 Gervifótleggir frá mjöðm 100% (ytri hulsur, tengingar, e.t.v. klæðningar en án liða, innri hulsa og framleista)
06 24 21 Gervifótleggir frá bol 100% (ytri hulsur, tengingar, e.t.v. klæðningar en án liða, innri hulsa og framleista)
06 24 27 Gervifætur (gerviframleistafætur) 100%
06 24 30 Gerviökklaliðir fyrir gervifótleggi 100%
06 24 31 Höggdemparar í gerviliði fyrir gervifótleggi 100%
06 24 32 Snúningsliðir fyrir gervifótleggi 100%
06 24 33 Gervihnjáliðir fyrir gervifótleggi 100%
06 24 36 Gervimjaðmarliðir fyrir gervifótleggi 100%
06 24 40 Mjúkar hulsur fyrir gervifótleggi 100%
06 24 41 Harðar hulsur fyrir gervifótleggi 100%
06 24 47 Útlitsfætur/útlitsklæðning fyrir gervifætur 100%
06 24 90 Viðgerðir á gervifótleggjum 70/100%
06 24 91 Stúfsokkar vegna gervifótleggja 100%
06 24 92 Gervibaðfótleggir frá kálfa 70%, þó aldrei hærri upphæð en 200.000 kr. 06 24 93 Gervibaðfótleggir frá læri 70%, þó aldrei hærri upphæð en 290.000 kr.
0630 Gervihlutar aðrir en gervilimir.
Hárkollur: Sjúkratryggingar Íslands veita styrk til kaupa á hárkollum og/eða sérsniðnum höfuðfötum, gerviaugabrúnum/húðflúr og augnhárum/húðflúr, þegar um er að ræða varanlegt hárleysi, hárleysi vegna krabbameinsmeðferðar eða innkirtlameðferðar eða útbreiddan langvarandi blettaskalla (í meira en eitt ár). Styrkur er hámark 94.000 kr. á ári, óháð því hvort um er að ræða hárkollur, sérsniðin höfuðföt, gerviaugabrúnir eða augnhár. Hámarksstyrkur vegna sérsniðins höfuðfats er samkvæmt verðkönnun. Húðflúr er einungis samþykkt hjá viðurkenndum snyrtistofum og viðurkenndum húðflúrstofum. Styrkur til kaupa á hárkollu er ekki veittur þegar um venjulegan karlmannaskalla er að ræða. Styrkurinn er veittur til eins eða tveggja ára í senn eftir eðli vandans.
Gervibrjóst: Sjúkratryggingar Íslands veita styrk til kaupa á gervibrjóstum/gervibrjóstafleygum vegna brjóstmissis kvenna, 2 stk. á fyrsta ári og síðan 1 stk. á ári við missi annars brjósts og 4 stk. á fyrsta ári og síðan 2 stk. á ári við missi beggja brjósta. Styrkupphæð er samkvæmt verðkönnun. Heimilt er að veita styrk að upphæð 30.000 kr. á tveggja ára fresti vegna húðflúrunar geirvörtu og/eða vörtubaugs á uppbyggt brjóst.
Sérstyrkt brjóstahöld: Sjúkratryggingar Íslands veita styrk til kaupa á sérstyrktum brjóstahöldum vegna uppbyggingar brjósts/brjósta við brjóstmissi kvenna (vefur/silikon). Styrkur er veittur einu sinni frá upphafi uppbyggingar, hámark 2 brjóstahöld. Styrkupphæð er samkvæmt verðkönnun.
Gerviandlitshlutar (inn í góm) sem gerðir eru utan sjúkrahúsa vegna krabbameins, klofins góms eða sambærilegra tilvika falla einnig undir gerviandlitshluta.
06 30 03 Hárkollur og/eða sérsniðin höfuðföt, gerviaugabrúnir, augnhár eða húðflúr 100%, að hámarki 94.000 kr. á ári, sbr. framangreint
06 30 18 Gervibrjóst 100%, sbr. framangreint
06 30 21 Gerviaugu eða augnskeljar 100%.
06 30 24 Gervieyru 100%
06 30 27 Gervinef 100%
06 30 30 Gerviandlitshlutar (utan á eða innanvert í andlit) 100%
06 30 39 Gervihlutar til að dekka sjáanleg lýti á húð 100%
06 30 96 Gerviaugu eða augnskeljar aðlagaðar og/eða fægðar.
06 30 97 Gervibrjóstafleygar 100%, sbr. framangreint
06 30 98 Brjóstahöld sérstyrkt vegna uppbyggingar 100%, sbr. framangreint
06 30 99 húðflúrun geirvörtu og/eða vörtubaugs á uppbyggt brjóst 100%, sbr. framangreint.
0690 Bæklunarskór.
Sjúkratryggingar Íslands hafa með samningum viðurkennt ákveðin fyrirtæki til að smíða og selja bæklunarskó (tilbúna bæklunarskó, sérsmíðaða skó og sérsmíðaða hálftilbúna skó).
Sjúkratryggingum Íslands er heimilt að greiða fyrir mest tvö pör af framleistaspelkum (innleggjum) á ári. Helstu tilefni fyrir greiðsluþátttöku í framleistaspelkum eru: Eftirmeðferð vegna klumbufótar, slæmt hælbrot (t.d. útflattur Böhlersvinkill), alvarlega aflagaðir fætur, afleiðingar liðagigtar (RA), afleiðingar sykursýki, afleiðingar meðfæddra galla í fótum, afleiðingar vegna taugasjúkdóma og/eða vegna dreyrasýki.
Greiðsluþátttaka til kaupa á framleistaspelkum er að hámarki fyrir parið 11.500 kr. fyrir tilbúin innlegg og 22.500 kr. fyrir sérsmíðuð innlegg. Ef samþykkt er eitt innlegg í annan skóinn þá er styrkupphæð annars vegar 5.800 kr. fyrir tilbúið innlegg og 11.000 kr. fyrir sérsmíðað innlegg. Að öllu jöfnu er ekki greiddur styrkur vegna innleggja fyrir börn með lina ökkla (ligamentum laxorum).
Með samþykki Sjúkratrygginga Íslands á umsókn um styrk til kaupa á bæklunarskóm getur umsækjandi ákveðið sjálfur við hvert af áðurnefndum fyrirtækjum hann skiptir. Styrkur er veittur samkvæmt neðangreindum reglum og hámarksfjárhæð hans kemur fram við afgreiðslu umsóknar. Umsækjandi snýr sér til þess fyrirtækis sem hann kýs að skipta við og fyrirtækið fær greiðslu frá stofnuninni sem nemur andvirði styrksins. Ef umsækjandi kaupir dýrari skó en nemur fjárhæð styrksins greiðir hann fyrirtækinu mismuninn. Skilgreiningar á hugtökum:
Sérsmíðaðir skór: Skór smíðaðir á leista sem eru gerðir sérstaklega fyrir ákveðinn einstakling. Leistinn er gerður eftir mismunandi aðferðum (málum, móti eða skönnun með tölvutækni). Þessir skór passa ekki á annan en þann sem þeir eru gerðir fyrir og/eða uppfylla þarfir sem ekki er hægt að uppfylla með fjöldaframleiddum skóm. Innlegg teljast hluti af sérsmíðuðum skóm.
Sérsmíðaðir hálftilbúnir skór: Skór smíðaðir á leista sem er breytt sérstaklega að þörfum ákveðins einstaklings. Valið er um fyrir fram ákveðna gerð, yfirleður og liti. Þessir skór passa ekki á annan en þann sem þeir eru gerðir fyrir og/eða uppfylla þarfir sem ekki er hægt að uppfylla með fjöldaframleiddum skóm. Innlegg teljast hluti af sérsmíðuðum hálftilbúnum skóm.
Tilbúnir bæklunarskór: Skór sérstaklega framleiddir með eiginleikum sem eru ekki í hefðbundnum skóm. Dæmi um eiginleika: Breiður leisti, sveigður leisti, aukin dýpt, auknar styrkingar um ökkla, veltisóli, aukin mýkt og löng opnun fram. Innlegg eru innfalin.
Breytingar á tilbúnum bæklunarskóm: Breytingar á tilbúnum bæklunarskóm þegar ekki er þörf fyrir sérsmíðaða skó og þegar tilbúnir bæklunarskór duga ekki án breytinga (þörf á sérhæfðari eiginleikum en tilbúnir bæklunarskór hafa). Nær ekki til upphækkunar á skóm.
Breytingar á hefðbundnum skóm: Breytingar á hefðbundnum skóm til að uppfylla þarfir einstaklings svo að komist verði hjá að nota tilbúna eða sérsmíðaða bæklunarskó. Kostnaður við breytingar má ekki vera hærri en sem nemur styrkfjárhæð tilbúinna bæklunarskóa. Aldrei er greitt fyrir sjálfa skóna.
Þátttaka í kostnaði við viðgerðir á skóm á eingöngu við ef slit á skóm er ótvírætt afleiðing sjúkdómsástands (t.d. einstaklingur með spastískt göngulag vegna heilalægrar lömunar (CP)).
Sjúkratryggingar Íslands greiða ekki breytingar á sérsmíðuðum skóm þar sem þær falla að jafnaði undir aðlögun og eru því innifaldar í innkaupsverði samkvæmt samningi stofnunarinnar við seljendur. Vegna sérstakra breytinga afleiðinga sjúkdóms er þó heimilt að samþykkja breytingar (t.d. vegna sykursýki) þegar það kemur í stað nýsmíði.
Umsóknum er skipt í þrjá flokka eftir sjúkdómsgreiningu:
Flokkur 1. Ekki greitt af Sjúkratryggingum Íslands (litlar aflaganir): Dæmi: ef ekkert er sagt í umsókn um fæturna sjálfa, tábergssig, plattfótur (lig. laxorum), pes plano valgus, breiðir fætur, hælspori, hallux valgus, lig.laxorum art. talocrur. et subtalaris, torsio tibia, genu recurvatum, exem á fótum og ofnæmi (t.d. nikkel). Þetta á sérstaklega við ef fyrrgreind atriði standa ein sér.
Flokkur 2. Sjúkratryggingar Íslands greiða fyrir tilbúna bæklunarskó (verulegar aflaganir): Dæmi: metatarsus varus og valgus (pes abd./add.), pes cavus, klumbufótur. Ef um er að ræða pes plano valgus með skriði í ökkla þá er að jafnaði einungis greitt fyrir innlegg, annars þarf að liggja fyrir mat á að innlegg nægi ekki. Ef um er að ræða lömun í fótum eða aflögun liða við ástig með afstöðubreytingu milli beina sem leiðir til breytingar á göngulagi þá er heimilt að greiða fyrir tilbúna bæklunarskó. Einnig ef um er að ræða alvarlegar afleiðingar sykursýki.
Flokkur 3. Sjúkratryggingar Íslands greiða fyrir sérsmíðaða skó (miklar aflaganir): Dæmi: Alvarlegur pes equinovarus adductus (klumbufótur), mikill spasmi eða spíssfótur, miklar aflaganir t.d. vegna lömunarsjúkdóma (t.d. poliomyelitis), hrörnunarsjúkdóma, vöðvarýrnunar og arthrodesis. Ætíð skal athuga hvort önnur lausn, svo sem tilbúnir bæklunarskór eða framleistaspelkur, sé nægjanleg áður en farið er út í sérsmíði.
Fjöldi tilbúinna og sérsmíðaðra skópara á ári: Fjöldi skópara á ári tekur til allra skógerða (flokka 06 90 03, 06 90 06, 06 90 09, 06 90 12, 06 90 15, 06 90 18 og 06 90 21). Við fyrstu umsókn er greitt fyrir tvö pör, síðan eitt par á ári. Hægt er að fá eitt auka par á ári ef fætur eru mjög afmyndaðir og einstaklingurinn er mjög virkur. Hér er átt við líkamlega virkni sem leiðir til mikils slits á skóm.
Þeir einstaklingar teljast mjög virkir sem hafa göngugetu að jafnaði samfellt 400 metra eða meira á jafnsléttu og eru:
í starfi; heilsdags- eða hlutastarfi í dagvistun, félagsstarfi, íþróttum, útivist o.s.frv.
í hjólastól og ýta sér sjálfir með fótum/fæti
Greidd eru tvö pör á ári fyrir börn og unglinga yngri en 16 ára (vegna vaxtar). Ef slit á skóm er ótvíræð afleiðing sjúkdómsástands, t.d. hjá einstaklingum með heilalæga lömun (CP) og spastískt göngulag, þá er heimilt að greiða auka skópar.
Við aðgerðir á fótum sem gera það að verkum að viðkomandi getur ekki notað eldri skó er heimilt að líta fram hjá fyrri greiðslum Sjúkratrygginga Íslands á árinu og greiða samkvæmt reglugerðinni. Slíkum umsóknum þarf að fylgja staðfesting heilbrigðisstarfsmanns. Þetta getur einnig átt við ef eldri skór nýtast ekki vegna endurnýjunar á spelkum.
06 90 01 Framleistaspelkur, tilbúnar (FO) (innlegg) 90%, hámark kr. sbr. að ofan
06 90 02 Framleistaspelkur, sérsmíði (FO) (innlegg) 90%, hámark kr. sbr. að ofan
06 90 03 Tilbúnir bæklunarskór 90%, að hámarki 47.000 kr., fyrir hvert skópar. Ekki er greitt
sérstaklega fyrir breytingar á skónum svo þeir fái þessa eiginleika. Þó er greitt fyrir upphækkun á tilbúnum bæklunarskóm (meira en 2 sm).
06 90 06 Sérsmíðaðir skór 90%, að hámarki 210.000 kr., fyrir hvert skópar fyrir einstaklinga (án tillits til aldurs). Breytingar sem gera þarf á sérsmíðuðum skóm eru innifaldar í tilgreindri fjárhæð.
06 90 09 Breytingar á hefðbundnum skóm 90%, mest tvö skópör fyrir fullorðna og mest þrjú skópör fyrir börn og unglinga. Aldrei er greitt fyrir sjálfa skóna sérstaklega. Kostnaður við breytingar má ekki vera hærri en sem nemur verði tilbúinna bæklunarskóa.
06 90 12 Hækkun á skóm, a.m.k. 2 sm 90%. Heimilt er að samþykkja upphækkun undir tvö skópör á ári og þrjú skópör hjá þeim sem eru mjög virkir. Styrkupphæð miðast við verðkönnun. Hægt er að veita undanþágu um lægri hækkun fyrir börn.
06 90 15 Misstórir skór 50%, að hámarki 17.000 kr. fyrir skópar. Mest er greitt fyrir fjögur skópör á ári, þannig að fáist tvö nothæf skópör. Að lágmarki þarf tveggja skónúmera mun á skóm til að styrkur sé veittur.
06 90 18 Sérsmíðaðir hálftilbúnir skór 90%, að hámarki 99.000 kr. fyrir hvert skópar fyrir einstaklinga (án tillits til aldurs). Greitt er sérstaklega fyrir upphækkun sem fer yfir 2 sm.
06 90 21 Breytingar á tilbúnum bæklunarskóm 90%. Heildarstyrkur við breytingar er ekki hærri en 33.000 kr.
06 90 24 Viðgerðir á tilbúnum bæklunarskóm. Ef slit á skóm er ótvíræð afleiðing sjúkdómsástands, t.d. hjá einstaklingum með spastískt göngulag vegna heilalægrar lömunar (CP), er heimilt að greiða 90% kostnaðar við viðgerðir, þó að hámarki 14.500 kr. Að hámarki er greitt fyrir fjórar viðgerðir á ári.
06 90 27 Viðgerðir á sérsmíðuðum hálftilbúnum og sérsmíðuðum skóm. Ef slit á skóm er ótvíræð afleiðing sjúkdómsástands, t.d. hjá einstaklingum með spastískt göngulag vegna heilalægrar lömunar (CP), er heimilt að greiða 90% kostnaðar við viðgerðir. Að hámarki er greitt fyrir fjórar viðgerðir á ári.
09 Hjálpartæki við persónulega aðhlynningu og fatnaður.
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um kaup á bað- og salernistækjum. Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um kaup á hlífðarskóm sem er hluti af samningum um spelkur. Sjúkratryggingar Íslands gefa út hefti sem hefur að geyma tæmandi yfirlit yfir allar þær tegundir hjálpartækja sem samningarnir hér að ofan ná til og sem stofnunin tekur þátt í kaupum á fyrir þá sem eru sjúkratryggðir samkvæmt lögum um sjúkratryggingar. Við hvert og eitt hjálpartæki í vörulistanum í heftinu kemur einnig fram hvaða fyrirtæki er með samning við Sjúkratryggingar Íslands um kaup á viðkomandi tæki. Þátttaka stofnunarinnar í kaupum á ákveðnu hjálpartæki er háð því að tækið sé fengið hjá tilgreindu samningsbundnu fyrirtæki.
0903 Fatnaður.
Sjúkratryggingum Íslands er heimilt að veita styrk til að útbúa snið fyrir sérsaumaðan fatnað vegna dvergvaxtar og verulegra aflagana. Styrkur er veittur einu sinni, en þó að nýju ef verulegar breytingar verða á ástandi. Styrkupphæðir eru eftirfarandi:
a) vegna dvergvaxtar 22.500 kr. fyrir skyrtu/jakka/kjól og 11.000 kr. fyrir buxur
b) vegna verulegrar skekkju í hrygg (ólíkar hliðar) 54.000 kr.
c) vegna alvarlegs herðakistils 76.500 kr.
d) vegna verulegra aflagana á líkama 98.000 kr.
09 03 05 Hjólastóla- og kerrupokar, útislá/regnslá í hjólastóla/kerrur 100%
09 03 33 Varnarbuxur við böðun 100%
09 03 42 Hlífðarskór 100% (s.s. fyrir sykursjúka) til varnar sárum og aðlögunar að skekkjum án leiðréttingar
09 03 90 Snið fyrir sérsaumaðan fatnað 100%, að hámarki sbr. að ofan
0906 Hlífðartæki.
Sjúkratryggingar Íslands greiða tæki ef um langvarandi sjúkdómsástand er að ræða (a.m.k. sex mánuðir).
09 06 03 Hjálmar og höfuðhlífar 100%
09 06 12 Olnbogahlífar 100%
09 06 15 Hlífðarhanskar og hlífðarvettlingar 100%. Samþykkt magn einnota hanska miðast að hámarki við fimm pör á dag og tveggja mánaða birgðir í senn fyrir hvern einstakling.
Heimilt er þó að veita fimm pör (tíu stk.) á sólarhring fyrir einstaklinga með öndunartæki, stóma eða annan búnað tengdan/áfastan líkama.
09 06 18 Hnéhlífar 100%
09 06 21 Hælhlífar 100%
09 06 27 Öndunarhlíf (t.d. rykgríma, heygríma) 70%
0907 Hjálpartæki til stuðnings við líkama.
09 07 03 Belti, ólar og vesti 100%
09 07 06 Sérmótaður stuðningur/dýnur 100% (stuðningur til varnar alvarlegum skekkjum)
0909 Hjálpartæki til að klæða sig í og úr.
09 09 03 Sokkaífærur 100%
09 09 09 Fatahaldarar 100%
09 09 12 Klæðnaðarpinnar/krókar 100%
09 09 15 Rennilásahjálpartæki 100%
09 09 18 Hnappakrókar 100%
0912 Hjálpartæki við salernisferðir.
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um kaup á salernistækjum, sjá fremst í þessum kafla.
09 12 03 Salernisstólar með/án hjóla 100%
09 12 06 Salerni (kemisk) 50%
09 12 09 Salernissæti 100%
09 12 12 Salernisupphækkanir, frítt standandi 100%
09 12 15 Salernisupphækkanir, lausar 100%
09 12 18 Salernisupphækkanir, fastar 100%
09 12 21 Salernissæti með lyftibúnaði 100%
09 12 24 Armstoðir á salerni 100%
09 12 27 Salernispappírstangir 100%
09 12 30 Salernispappírshaldarar 100%
09 12 33 Bekken 100%
09 12 36 Skol- og þurrkbúnaður á salerni 100% (hámarksstyrkur samkvæmt verðkönnun hverju sinni)
09 12 81 Bólstrun á salernissæti 100%
09 12 90 Aukahlutir á salernishjálpartæki 100%
09 12 91 Uppsetning á skol- og þurrkbúnaði á salerni 100% (hámarksstyrkur samkvæmt verðkönnun hverju sinni)
0915 Hjálpartæki vegna barkaskurðar.
Hjálpartæki vegna barkaskurðar eru veitt á grundvelli innkaupaheimildar og gildir hún eftir atvikum til eins, fimm eða tíu ára í senn. Grisjur fyrir stóma og húðverjandi krem, sjá 09 18 90 og 09 21 18.
09 15 03 Barkarennur 100%
09 15 06 Barkastómahlífar 100%
09 15 12 Fylgihlutir v/barkastóma, þ.e. hreinsiburstar fyrir ventil, hreinsipinnar fyrir barkastómaop 70%
09 15 90 Barkastómasíur 100% 09 15 91 Barkastómaventlar 100%
0918 Stómahjálpartæki.
Stómavörur eru greiddar 100% eða 70%, sbr. neðangreint, þó með hámarki fyrir ákveðnar vörur. Innkaupaheimild er veitt fyrir samþykktar vörur og gildir hún eftir atvikum í eitt, fimm eða tíu ár. Einstök kaup notenda skulu miðast við mest þriggja mánaða birgðir.
Heimilt er að veita styrk til sérstakra þrýstingsbuxna vegna stóma í stað kviðslitsbelta sem nemur 70% af verði tveggja buxna á ári.
09 18 10 Stómapokar og stómaplötur í einum hluta 100% (samfelldir, lokaðir og/eða tæmanlegir). Colostómapokar samfelldir og lokaðir hámark pr. stk. 795 kr. fyrir almenna poka/poka með filter og hámark pr. stk. 1.500 kr. fyrir poka með convexhring. Þvagstómapokar samfelldir hámark pr. stk. 1.270 kr. fyrir almenna poka og hámark pr. stk. 2.780 kr. fyrir poka með convexhring. Ileostómapokar samfelldir og tæmanlegir hámark pr. stk. 760 kr. fyrir almenna poka, hámark pr. stk. 880 kr. fyrir poka með filter og klemmu, hámark pr. stk. 960 kr. fyrir poka með filter og innbyggðum lokunarbúnaði, hámark pr. stk. 2.500 kr. fyrir poka með convexhring, hámark pr. stk. 2.700 kr. fyrir poka með convexplötu og innbyggðum lokunarbúnaði og hámark pr. stk. 4.800 kr. fyrir poka vegna fistils/stórs stóma.
09 18 11 Stómaplötur, álímdar 100% fyrir tveggja hluta samsetta stómalausn (stómapoka og stómaplötur). Hámark pr. stk. 1.000 kr. fyrir almennar plötur, hámark pr. stk. 1.650 kr. fyrir plötur með auka lími og rakadrægni, hámark pr. stk. 1.500 kr. fyrir plötur þar sem poki límist á plötu, hámark pr. stk. 3.000 kr. fyrir plötur m/innbyggðum convexhring, hámark pr. stk. 1.650 kr. fyrir tveggja laga plötur og hámark pr. stk. 3.300 kr. fyrir tveggja laga plötur með innbyggðum convexhring.
09 18 16 Stómapokar fyrir tveggja hluta samsetta stómalausn 100% (samsettir, lokaðir og/eða tæmanlegir). Colostómapokar samsettir og lokaðir hámark pr. stk. 405 kr. fyrir almenna poka og poka með filter, hámark pr. stk. 460 kr. fyrir poka með lokunarbúnaði og með límingu fyrir plötu og hámark pr. stk. 500 kr. fyrir poka með innbyggðum lokunarbúnaði og með límingu fyrir plötu fyrir stórar stómíur. Þvagstómapokar samsettir hámark pr. stk. 850 kr. Ileostómapokar samsettir og tæmanlegir hámark pr. stk. 410 kr. fyrir almenna poka, hámark pr. stk. 595 kr. fyrir poka með filter og klemmu, hámark pr. stk. 685 kr. fyrir poka með filter og innbyggðum lokunarbúnaði, hámark pr. stk. 675 kr. fyrir poka með lokunarbúnaði og með límingu fyrir plötu, hámark pr. stk. 720 kr. fyrir poka með innbyggðum lokunarbúnaði og með límingu fyrir plötu fyrir stórar stómíur og hámark pr. stk. 1.820 kr. fyrir poka fyrir mikinn útskilnað.
09 18 17 Næturþvagpoki vegna stóma fyrir mikinn útskilnað 100%, hámark pr. stk. 1.285 kr. 09 18 19 Stómafestibúnaður (s.s. belti) 100%
09 18 20 Stómaþéttibúnaður (s.s. kítti, þéttihringir) 100%
09 18 24 Stómaskolunarsett 70%
09 18 28 Stómatæmibúnaður þ.m.t. stómaskolunarsprautur (fyrir innbyggða safnpoka) 70%
09 18 51 Fylgihlutir við stóma 70/100% (stómaklemmur og lykteyðandi efni (t.d. sett í poka)
100% og hlífðarpokar fyrir stómapoka 70%)
09 18 90 Grisjur vegna stóma 70%
09 18 92 Þrýstingsbuxur vegna stóma 70% að hámarki pr. stk. 19.500 kr.
0921 Efni til húðvarnar og húðhreinsunar.
Húðvarnarkrem er greitt að fullu fyrir stómaþega. Húðvarnarkrem fyrir stómaþega er veitt á grundvelli innkaupaheimildar og gildir hún eftir atvikum til eins, fimm eða tíu ára í senn eins og stómavörur. Önnur efni til húðvarnar og húðhreinsunar vegna sára veitir heimahjúkrun heilsugæslunnar.
09 21 18 Húðvarnarkrem 100%
0924 Þvagleggir.
Þvagleggir eru veittir á grundvelli innkaupaheimildar til eins, fimm eða tíu ára í senn. Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um kaup á ákveðnum þvagleggjum. Greiðsluþátttaka stofnunarinnar í kaupum á þvagleggjum er háð því að þeir séu fengnir hjá tilgreindu samningsbundnu fyrirtæki.
09 24 03 Þvagleggir, langtíma 100%
09 24 06 Þvagleggir, einnota 100%
09 24 09 Þvagsafnarar (uridom) 100%
09 24 18 Hjálpartæki til aðstoðar við aftöppun þvags 100% (s.s. speglar)
09 24 81 Ventlar/tappar á þvagleggi 100%
09 24 90 Þvagklemmur 100%
09 24 92 Skolbakki vegna þvagsafnara 70% 09 24 93 Festibúnaður vegna þvagsafnara 100%
0927 Þvagpokar.
Þvagpokar eru veittar á grundvelli innkaupaheimildar til eins, fimm eða tíu ára í senn. Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um kaup á ákveðnum þvagpokum. Greiðsluþátttaka stofnunarinnar í kaupum á þvagpokum er háð því að þeir séu fengnir hjá tilgreindu samningsbundnu fyrirtæki.
09 27 04 Þvagpokar, líkamsbornir, lokaðir 100%
09 27 05 Þvagpokar, líkamsbornir, opnir 100%
09 27 09 Þvagpokar, rúmpokar 100%
09 27 13 Festibúnaður fyrir þvagpoka 100%
09 27 18 Blöðrutæmingarsett 70%
0930 Bleiur.
Bleiur eru veittar á grundvelli innkaupaheimildar til eins, fimm eða tíu ára í senn. Að jafnaði greiðir stofnunin ekki bleiur fyrir börn yngri en þriggja ára en yngri börn en þriggja ára geta þó fengið undanþágu vegna stómaaðgerðar eða klofins hryggs. Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands í kaupum á bleium og tengdum vörum er háð því að þær séu fengnar hjá tilgreindu samningsbundnu fyrirtæki.
Bleiur eru veittar sem hjálpartæki við þvagleka/saurleka þegar um er að ræða fjölfötlun/alvarlega fötlun, stroke/umtalsverðan miðtaugakerfisskaða, alvarlega þroskaheftingu, einhverfu (autismi), alzheimer/dementsia, blöðrukrabbamein/blöðruhálskirtilskrabbamein, margendurteknar eða mjög langvarandi þvagfærasýkingar, blöðrusig/legsig sem verulegt vandamál (aðgerð ekki ráðlögð/ekki árangur), aldraðra eldri en 70 ára með veruleg vandamál vegna þvagleka, afleiðing mikillar lyfjatöku (vegna t.d. geðsjúkdóma) og veruleg vandamál og vegna þvagleka. Bleiur eru ekki veittar vegna áreynsluþvagleka (stressþvagleka) án aðgerðar, smáleka, enuresu, barnsfæðinga, geðsjúkdóma og slitgigtar.
09 30 90 Bleiur 100%
0931 Hjálpartæki vegna hægðaleka.
Sjúkratryggingum Íslands er heimilt að greiða endaþarmstappa til þeirra sem eiga við hægðaleka að stríða vegna alvarlegs skaða í miðtaugakerfi (s.s. mænuskaða vegna klofins hryggjar) eða annars sambærilegs alvarlegs sjúkdómsástands. Greiðsluþátttakan nær einungis til þeirra er stunda sund í hæfingarskyni þegar það er ótvíræður kostur að sundþjálfun sé stunduð vegna viðkomandi fötlunar og/eða þeirra sem nauðsynlega þurfa slíkan búnað til að geta stundað vinnu sína. Stofnunin greiðir 90%, þó að hámarki 1.315 kr. pr. stk. Miðað er við hámark 250 stk. á ári. Sjúkratryggingar Íslands greiða endaþarmsrör að fullu vegna alvarlegs og langvarandi vandamáls við hægðalosun. Veitt á grundvelli innkaupaheimildar til eins, fimm eða tíu ára í senn, þó að hámarki 2.630 kr. á mánuði.
09 31 06 Endaþarmstappar 90%, að hámarki 1.315 kr. pr. stk.
09 31 90 Endaþarmsrör (rectalrör) 100%, að hámarki 2.630 kr. á mánuði
0933 Hjálpartæki við snyrtingu og böðun.
Sjúkratryggingar Íslands greiða fyrir hjálpartæki við snyrtingu og böðun fyrir þá sem hafa verulega skerta færni eða verulega skert jafnvægi. Skiptiborð eru greidd fyrir fjölfatlaða einstaklinga þar sem þörfin er ótvíræð.
09 33 04 Baðkersbretti 100%
09 33 05 Baðkerssæti 100%
09 33 07 Bað/sturtustólar með eða án hjóla 100%
09 33 08 Bakstuðningur í baðker/sturtu 100%
09 33 12 Sturtuborð og skiptiborð 100%
09 33 36 Hjálpartæki til að þurrka sér 50%
09 33 39 Flothjálpartæki (sundbretti, baðkragar, uppblásanlegir baðhjálmar) 50%
09 33 98 Aukahlutir á baðhjálpartæki 100% 09 33 99 Breytingar á baðhjálpartækjum 100%
0939 Hjálpartæki við hársnyrtingu.
09 39 03 Hárþvottatæki, t.d. hárþvottarenna 50%
12 Ferlihjálpartæki og hjálpartæki við flutning.
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um kaup á gönguhjálpartækjum, handdrifnum hjólastólum, sérsmíði í hjólastóla og ýmsum fylgi- og aukahlutum í hjólastóla svo og um kaup á lyfturum á hjólum.
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um kaup á sjúkrarúmum og fylgihlutum (m.a. hjálpartækjum við flutning fólks, sjá 1231).
Sjúkratryggingar Íslands gefa út hefti sem hefur að geyma tæmandi yfirlit yfir allar þær tegundir hjálpartækja sem framangreindir samningar ná til og sem stofnunin tekur þátt í að greiða fyrir þá sem eru sjúkratryggðir samkvæmt lögum um sjúkratryggingar. Við hvert og eitt hjálpartæki í vörulistanum í heftinu kemur einnig fram hvaða fyrirtæki er með samning við stofnunina um kaup á viðkomandi tæki. Greiðsluþátttaka í kaupum á ákveðnu hjálpartæki er háð því að tækið sé fengið hjá tilgreindu samningsbundnu fyrirtæki.
1203 Stafir/hækjur.
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um kaup á gönguhjálpartækjum, sjá fremst í þessum kafla.
12 03 03 Stafir 100%
12 03 06 Olnbogahækjur 100%
12 03 09 Gigtarhækjur 100%
12 03 12 Axlarhækjur 100% 12 03 16 Þrí- eða fjórfótastafir 100%
1206 Göngugrindur.
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um kaup á göngugrindum, sjá fremst í þessum kafla.
12 06 03 Göngugrindur án hjóla 100%
12 06 06 Göngugrindur á hjólum 100%
12 06 09 Göngustólar á hjólum með setstuðningi 100%
12 06 12 Háar göngugrindur á hjólum með framhandleggsstuðningi 100%
12 06 90 Viðgerðir á göngugrindum 100% 12 06 91 Breytingar á göngugrindum 100%
1207 Fylgihlutir við gönguhjálpartæki.
12 07 05 Gúmmí og ísbroddar t.d. á stafi/hækjur 100%
12 07 15 Stuðningur á gönguhjálpartæki 100% (s.s. bak- og höfuðstuðningur)
12 07 21 Sæti á gönguhjálpartæki 100%
12 07 24 Körfur/bakkar/statív/töskur á gönguhjálpartæki 100%
12 07 27 Stafa-/hækjuhaldarar 100%
12 07 30 Stýrisstangir á gönguhjálpartæki 100%
12 07 89 Aðrir fylgihlutir á gönguhjálpartæki 100%
1212 Hjálpartæki í bifreiðar.
Sjúkratryggingar Íslands greiða styrk til að afla hjálpartækja í bifreið sem nauðsynleg eru vegna þess að líkamsstarfsemi er hömluð eða líkamshluta vantar.
Sjúkratryggingar Íslands skulu meta þörf fyrir hjálpartæki og hvaða bifreið henti þeim, þ.e. fólksbifreið eða sendibifreið. Einstaklingur skal leita samþykkis Sjúkratrygginga Íslands á tegund bifreiðar áður en farið er í kaup á bifreið ef hann ætlar að sækja um hjálpartæki í bifreið sína.
Stýrisbúnaður í bifreið: Heimilt er að veita einstaklingi styrk til kaupa á sjálfskiptingu og öðrum stýrisbúnaði (m.a. breytingum á bremsum og bensíngjöf) í eigin bifreið (eða bifreið maka), ef færni er svo skert að hann getur ekki ekið bifreið nema með slíkum búnaði. Skilyrði fyrir styrkveitingu eru ökuréttindi, regluleg notkun bifreiðar og að mat á ökuhæfni liggi fyrir. Skilyrði fyrir styrkveitingu á miklum og sérhæfðum breytingum og aðlögun bifreiðar er að einstaklingur sé mjög virkur og stundi vinnu/skóla alla virka daga.
Fullur styrkur er veittur á fimm ára fresti. Ef búnaður er endurnýjaður fyrr er heimilt að veita einn fimmta af fullum styrk fyrir hvert ár sem liðið er frá síðustu styrkveitingu. Styrkur til kaupa á sjálfskiptingu miðast við nýja bifreið og lækkar eftir því sem bifreiðin er eldri.
Lyftur í bifreiðar: Fyrir þá sem eru með verulega skerta færni í öllum útlimum.
Aðlögun bifreiðar til að geta nýtt aukastjórnbúnað, s.s. spegla, læsingar, þurrkur, miðstöð og ljós: Fyrir þá sem eru með verulega skerta færni í öllum útlimum.
Bílsæti fyrir börn: Sjúkratryggingar Íslands greiða að jafnaði ekki bílsæti fyrir börn yngri en tveggja ára. Að jafnaði eru einungis veittir styrkir til kaupa á bílsæti fyrir mikið fötluð börn sem eru með sérútbúna stóla með setstuðningi.
12 12 04 Aðlögun á stýribúnaði bifvéla. Til að stjórna bremsum og bensíngjöf 100%, að hámarki 98.000 kr. í breytingu á bensíngjöf og 98.000 kr. í breytingu á bremsum. Sjálfskipting 50%, að hámarki 80.000 kr. Annar búnaður samkvæmt verðkönnun hverju sinni 100%
12 12 05 Rafknúnar handbremsur 100% (vegna breytinga á stýrisbúnaði)
12 12 07 Aðlögun á stýrisbúnaði í bifreiðum 70% (t.d. stýrishnúðar/stýrispinnar, hand-/fótstýring)
12 12 08 Aðlögun bifreiða til að geta nýtt aukastjórnbúnað, s.s. spegla, læsingar, þurrkur, miðstöð og ljós 100%
12 12 09 Belti og ólar í bifreiðar 100%
(þriggja punkta belti (ef ekki staðalbúnaður í bifreiðinni) og fjögurra punkta belti, vesti, ólar sem styðja einstaklinga við akstur)
12 12 12 Bílsæti og púðar með sérstökum eiginleikum 100%, sbr. að ofan
Sleðar fyrir sæti bifreiða 100% (fyrir snúning og fram/aftur færslu)
12 12 15 Lyftur til að lyfta einstaklingum inn í bifreiðar 100%
12 12 18 Lyftur og fastar skábrautir til að koma hjólastólum með notendur inn í bifreiðar 100%
12 12 21 Lyftur til að setja hjólastóla á eða inn í bifreiðar 100%
12 12 24 Útbúnaður til að festa hjólastóla í bifreiðar 100%
12 12 90 Ísetning tækja í/úr bifreiðum 100%
12 12 91 Viðgerðir á hjálpartækjum í bifreiðar 100%
12 12 92 Flutningur á hjálpartækjum milli bifreiða 100%, flutningur á stýribúnaði bifvéla milli bifreiða 100%, að hámarki 77.000 kr.
12 12 94 Sjálfvirkir dyraopnarar fyrir bifreiðar 100%
12 12 95 Vinkiljárn á hurðir bifreiða 100%
12 12 96 Hanskar með sérgripi fyrir akstur bifreiða 50%
12 12 97 Fjarstýring á hjálpartækjum í bifreiðar 100%
1217 Stigaklifrarar.
Heimilt er einungis að greiða fyrir stigaklifrara á einkaheimili ef ekki er unnt að koma fyrir lyftu eða til bráðabirgða vegna biðtíma eftir öðru húsnæði. (Einkaheimili er skilgreint þar sem ríki/sveitarfélag kemur ekki að kaupum og/eða rekstri heimilis).
12 17 03 Stigaklifrarar 100%
1218 Hjól.
Sjúkratryggingar Íslands greiða einungis fyrir þríhjól. Þríhjól eru greidd fyrir einstaklinga sem eru með það mikla færniskerðingu að þeir geta ekki notað tvíhjól. Að jafnaði er ekki greitt fyrir þríhjól fyrir börn yngri en tveggja ára. Stýrisstangir á hjól eru ekki samþykktar eftir 12 ára aldur. Þríhjól og parahjól 12 15 18 eru einungis samþykkt fyrir einstaklinga yngri en 18 ára.
Eftirfarandi skilyrði þarf að uppfylla til að heimilt sé að samþykkja þríhjól:
- Fullreynt er að einstaklingur geti ekki nýtt sér hjól sem er í boði á almennum markaði.
-
Hjá fullorðnum er gerð krafa um að umsækjandi geti hjólað sjálfur, hafi getu til að skynja umhverfi sitt, geti gætt að sér og skynjað hættur, greint fólk og hluti í umhverfi, hafi fjarlægðarskyn, ratvísi og þurfi ekki stýrisstöng.
12 18 06 | Þríhjól með fótstigi 100% |
12 18 09 | Þríhjól, handknúin 100% |
12 18 12 | Þríhjól, sparkhjól 100% |
12 18 15 | Þríhjól, parahjól 100% |
12 18 21 | Fylgihlutir á hjól 100% (sérstakir hnakkar, fótabönd, fótstig o.fl.) |
12 18 90 | Viðgerðir á þríhjólum 100% |
12 18 91 | Breytingar á þríhjólum 100% |
1222 Handknúnir hjólastólar.
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um kaup á handdrifnum hjólastólum, sérsmíði í hjólastóla og ýmsum fylgi- og aukahlutum í hjólastóla, sjá fremst í þessum kafla.
Metið er eftir færni og sjúkdómi hvort umsækjandi á rétt á hjólastól.
Sjúkratryggingum Íslands er heimilt að greiða fyrir tvo hjólastóla, innihjólastól og útihjólastól, vegna sama einstaklings. Einstaklingar með tvo rafknúna hjólastóla geta í undantekningartilvikum fengið að auki einn handdrifinn hjólastól, s.s. ef viðkomandi er mjög virkur (t.d. sækir skóla, vinnu, dagvistun) og er algjörlega háður hjólastól. Veiting hjólastóla er óháð búsetu í heimahúsi eða á stofnun.
Einstaklingar sem eiga rétt á rafknúnum hjólastól eiga kost á öflugri rafknúnum útihjólastól í stað venjulegs.
Tegund hjólastóls fer eftir færni og virkni viðkomandi. Dæmi: Léttir hjólastólar sem eru með auknum stillimöguleikum á hjólum/setstöðu og þar sem hægt er að taka hjól af eru frekar fyrir virka einstaklinga, einnig hugsanlega fyrir þá sem ekki ráða við annað vegna sjúkdóms og verða sjálfbjarga með léttari stól.
Einfaldir hjólastólar eru almennt frekar fyrir þá sem eru ekki eins virkir, t.d. aldraða á dvalarstofnunum og þá sem ekki eru stöðugt háðir hjólastól.
Mjög virkir hjólastólanotendur geta fengið auka umgang af hjólum á handknúna hjólastóla, þ.e. drifhjól með öflugri dekkjum (fjalladekk) og tilheyrandi framhjól.
Hjólastólar af lager hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands ganga fyrir nýkaupum á hjólastólum.
Endurnýjun hjólastóls.
Sjúkratryggingar Íslands meta hverju sinni hvort forsendur eru breyttar (t.d. líkamsstærð/sjúkdómur/færni) og hvort hagkvæmt er að gera við stól.
Séraðlögun/sérsmíði.
Sjúkratryggingar Íslands meta í einstökum tilvikum hvort þörf sé á séraðlögun og/eða sérsmíði til varnar frekari skaða/skekkju/aflögun og/eða til að viðhalda eða auka færni.
Viðgerðir á hjólastólum.
Hjálpartækjamiðstöð Sjúkratrygginga Íslands sér um viðgerðir á hjólastólum notendum að kostnaðarlausu. Jafnframt greiðir stofnunin flutningskostnað utan af landi/út á land eftir því sem við á.
Fylgihlutir hjólastóla fyrir einstaklinga sem vistast á stofnunum.
Tilheyrandi tæki í hjólastól fylgja í þessum tilvikum með hjólastólum ef þess þarf með, s.s. setpúði, bakpúði, hjólastólaborð, belti í hjólastól.
12 22 03 Handknúnir afturhjóladrifnir hjólastólar 100%
12 22 06 Handknúnir vogarstangadrifnir hjólastólar 100%
12 22 09 Handknúnir hjólastólar, drifnir öðrum megin 100%
12 22 15 Handknúnir lágir hjólastólar 100%
12 22 18 Handknúnir hjólastólar, stjórnað af aðstoðarmanni 100%
1223 Rafknúnir hjólastólar.
Rafknúnir hjólastólar.
Rafknúnir hjólastólar eru einungis drifnir með rafgeymum, hámarkshraði takmarkast við 10 km/klst. Sjúkratryggingar Íslands greiða fyrir þá ef þeir leiða til aukinnar/bættrar færni. Rafknúinn hjólastóll er samþykktur vegna skaða, sjúkdóms og verulegrar minnkunar á almennri færni ef talið er nauðsynlegt og hentugt að bæta möguleika viðkomandi til að annast daglegar athafnir sínar. Skilyrði er að fyrir liggi mat heilbrigðisstarfsmanns, t.d. iðjuþjálfa eða sjúkraþjálfara, á þörf fyrir rafknúinn hjólastól. Matið byggist fyrst og fremst á hvort viðkomandi hafi skertan kraft í handleggjum eða hvort handarfærni muni skaðast við not á handdrifnum hjólastól. Enn fremur er tekið tillit til heildargetu einstaklingsins. Rafknúnir hjólastólar eru að jafnaði greiddir ef viðkomandi getur ekki notað handdrifinn hjólastól eða komist lengri ferðir á handdrifnum hjólastól. Sjúkratryggingar Íslands ákvarða hvaða rafknúnir hjólastólar, hleðslutæki og rafgeymar eru keyptir í hverju tilviki og úthlutar þeim síðan til notkunar meðan þörf einstaklingsins er fyrir hendi.
Rafknúinn innihjólastóll er stóll ætlaður til nota innandyra og er einfaldari en rafknúinn útihjólastóll. Rafknúinn inni- og útihjólastóll er stóll sem hentar til notkunar bæði innan- og utandyra og rafknúinn útihjólastóll er stóll til nota eingöngu utandyra.
Sjúkratryggingar Íslands meta hverju sinni hvort greiða skuli fyrir rafknúinn hjólastól til nota utandyra (skóla/vinnu) og handdrifinn hjólastól til nota heima eða öfugt (t.d. einstaklingur virkur heima í rafknúnum hjólastól en er með handdrifinn hjólastól þegar hann fer út, t.d. í dagvistun eða heimsóknir sem hann fer aldrei einn í). Einstaklingur sem á rétt á rafknúnum hjólastjól getur átt val um öflugan rafknúinn útihjólastól. Einstaklingur 67 ára eða eldri sem er með skerta færni getur fengið úthlutað einfaldari rafknúnum hjólastól (svokallaðri rafskutlu) til að auðvelda sjálfstæða búsetu að uppfylltum almennum skilyrðum um rafknúna hjólastóla, sbr. hér að framan, enda sé ekki bifreið á heimili hans.
Sjúkratryggingar Íslands greiða að jafnaði ekki fyrir rafknúinn hjólastól vegna einstaklinga sem eru með mænuskaða nema skaði sé ofar en við 6. hálshryggjarlið (ofar en C6). Ef skaði er neðar þarf auk þess að vera fyrir hendi önnur fötlun, sjúkdómar eða aldurstengd vandamál til þess að þessir einstaklingar geti fengið rafknúinn hjólastól, t.d. blóðrásarvandamál, slitgigt/stoðkerfisvandamál, beinþynning, hormónabreytingar, ofþyngd.
Sjúkratryggingar Íslands greiða að jafnaði ekki fyrir rafknúna hjólastóla vegna barna fyrr en frá og með 6. aldursári (við upphaf skólagöngu).
Hjólastólar af lager hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands ganga fyrir nýkaupum á hjólastólum.
Sjá að öðru leyti undir 1222.
12 23 03 Rafknúnir hjólastólar með handstýringu (stýri) 100% 12 23 06 Rafknúnir hjólastólar með mótorstýringu (pinna) 100%
1224 Aukahlutir fyrir hjólastóla.
12 24 03 Stýrikerfi fyrir hjólastóla 100% (innifalið er stjórnbox og stjórnstöð fyrir hjólastóla)
12 24 09 Aflbúnaður fyrir hjólastóla 100% (innifaldir eru mótorar í rafknúna hjólastóla og hjálparmótorar á handknúna hjólastóla)
12 24 12 Ljós á hjólastóla 100%
12 24 18 Bremsur fyrir hjólastóla 100%
12 24 21 Hjól og dekk fyrir hjólastóla 100%
12 24 24 Rafgeymar og hleðslutæki 100%
12 24 42 Töskur á hjólastóla 100%
12 24 45 Speglar á hjólastóla 100%
12 24 89 Ýmsir fylgihlutir í hjólastóla 100% (s.s. armar, fótafjalir, handhringir, hliðarhlífar, hælkappar, hjólastólaþrengjarar)
12 24 90 Viðgerðir á hjólastólum 100%
12 24 91 Breytingar á hjólastólum 100%
12 24 97 Ýmsir varahlutir í hjólastóla 100% (s.s. setur, bök)
1227 Önnur farartæki.
Sjúkratryggingar Íslands greiða að jafnaði ekki kerrur og tilheyrandi fylgihluti fyrir börn yngri en þriggja ára. Kerrupokar og útislár í kerrur sjá 09 03 05.
12 27 03 Kerrur (sem krefjast aðstoðarmanns) 100%
12 27 90 Viðgerðir á kerrum 100%
12 27 91 Breytingar á kerrum 100%
12 27 92 Aukahlutir á kerrur 100% (s.s. borð, fótabönd)
12 27 98 Skíði undir kerrur 50%
1231 Hjálpartæki við flutning fólks.
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um kaup á hjálpartækjum sem falla hér undir, sjá fremst í þessum kafla.
Sjúkratryggingar Íslands greiða fyrir snúningslök og snúningsmottur fyrir þá sem eru með sjúkdóma sem valda alvarlegri lömun eða hrörnun, t.d. MS, MND og aðra vöðvarýrnunarsjúkdóma, helftarlömun, Parkinsonsjúkdóm, illvíga RA liðagigt, Spina bifida svo og einstaklingar með lungna- og/eða hjartasjúkdóm á háu stigi.
12 31 03 Snúningslök/mottur og flutningsbretti/mottur 100%
12 31 06 Snúningsskífur 100%
12 31 09 Frístandandi rúmgálgar 100%
12 31 12 Rúmstigar og léttar 100%
12 31 15 Flutningsbelti (belti og/eða vesti með lyftihandfangi) 100%
12 31 21 Flutningstæki með sæti og fótpalli 100%
12 31 90 Breytingar á flutningsbrettum 100%
1236 Tæki til að lyfta fólki.
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um kaup á hjálpartækjum sem falla hér undir, sjá fremst í þessum kafla.
12 36 03 Hreyfanlegir lyftarar með seglum 100%
(hjálpartæki til að lyfta og flytja hreyfihamlaða í sitjandi, hálfsitjandi eða liggjandi stöðu; burðarhluti úr segli)
12 36 04 Hreyfanlegir lyftarar fyrir standandi stöðu 100%
12 36 06 Hreyfanlegir lyftarar með föstum sætum 100%
(hjálpartæki til að lyfta og flytja hreyfihamlaða í sitjandi stöðu; burðarhluti er sæti eða setplata)
12 36 09 Lyftivagnar á hjólum 100%
(hjálpartæki til að lyfta eða flytja hreyfihamlaða í liggjandi stöðu; lyftivagninn hefur fastan burðarhluta sem er stillanlegur í hæð, án möguleika á snúningi)
12 36 12 Fastir lyftarar, loft-, gólf- eða veggfastir 100%
(hjálpartæki til að lyfta og flytja hreyfihamlaða innan ákveðins svæðis; lyftari hefur lyftiblokk sem festist í loft, gólf eða vegg)
12 36 15 Fastir lyftarar sem festast á aðra hluti 100%
(innifaldir eru lyftarar festir á baðker (lyftarar sem festast á salernisstól og í bifreiðar falla ekki hér undir)
12 36 18 Frístandandi lyftarar 100%
(hjálpartæki til að lyfta og flytja hreyfihamlaða innan ákveðins svæðis)
12 36 21 Lyftisegl, sæti og börur 100%
(innifalin eru segl og bönd fyrir hreyfanlega og fasta lyftara)
12 36 90 Viðgerðir á lyfturum 100%
12 36 91 Breytingar á lyfturum 100%
12 36 92 Uppsetning á lyfturum 100%
12 36 93 Varahlutir í lyftara 100%
18 Hjálpartæki til heimila.
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um kaup á sjúkrarúmum og fylgihlutum (þeir taka einnig til snúningslaka, sjá 12 31 03 og frístandandi rúmgálga, sjá 12 31 09).
Sjúkratryggingar Íslands gefa út hefti sem hefur að geyma tæmandi yfirlit yfir allar þær tegundir hjálpartækja sem samningarnir hér að ofan ná til og sem stofnunin tekur þátt í kaupum á fyrir þá sem eru sjúkratryggðir samkvæmt lögum um sjúkratryggingar. Við hvert og eitt hjálpartæki í vörulistanum í heftinu kemur einnig fram hvaða fyrirtæki er með samning við Sjúkratryggingar Íslands um kaup á viðkomandi tæki. Þátttaka í kaupum á ákveðnu hjálpartæki er háð því að tækið sé fengið hjá tilgreindu samningsbundnu fyrirtæki.
1803 Borð.
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um kaup á les- og rúmborðum, sbr. ofangreint. Hilluborð á hjólum fyrir hjálpartæki, s.s. öndunarvél, hóstavél og önnur lífsnauðsynleg tæki.
18 03 15 Rúmborð 100%
18 03 90 Viðgerðir á borðum 100%
18 03 91 Breytingar á borðum 100%
18 03 99 Hilluborð 100% fyrir lífsnauðsynleg hjálpartæki (hámarksstyrkur samkvæmt verðkönnun hverju sinni)
1809 Stólar.
Sjúkratryggingar Íslands greiða að jafnaði fyrir stóla vegna þeirra sem eru með sjúkdóma sem valda alvarlegri lömun eða hrörnun, t.d. MS, MND og aðra vöðvarýrnunarsjúkdóma, helftarlömun, Parkinsonsjúkdóm, illvíga RA liðagigt og Spina bifida. Einnig geta einstaklingar með lungna- og/eða hjartasjúkdóm á háu stigi fengið greidda stóla, einkum standstóla. Metið er eftir færni hvort og hvenær viðkomandi eigi rétt á stól, t.d. göngufærni, úthaldi, stand- og/eða setjafnvægi. Greitt er fyrir stóla ef þeir leiða til aukinnar sjálfsbjargargetu og færni við athafnir daglegs lífs en ekki til að nota eingöngu í frístundum eða til afþreyingar. Val á stól fer eftir þörf sem er metin eftir færni og sjúkdómi.
Sjúkratryggingar Íslands greiða ekki fyrir stóla sem hafa almennt notkunargildi en heimilt er að taka þátt í kostnaði vegna tiltekins aukabúnaðar eða séraðlögunar ef þess er þörf, t.d. vegna alvarlegrar skekkju/aflögunar í hrygg og/eða mjöðmum. Stólar af lager hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands ganga fyrir nýkaupum á stólum.
Endurnýjun stóls.
Sjúkratryggingar Íslands meta hverju sinni hvort forsendur eru breyttar (t.d. líkamsstærð/sjúkdómur/færni) og hvort hagkvæmt er að gera við stól.
Séraðlögun/sérsmíði.
Sjúkratryggingar Íslands meta í einstökum tilvikum hvort þörf sé á séraðlögun og/eða sérsmíði til varnar frekari skaða/skekkju/aflögun og/eða til að viðhalda eða auka færni.
Viðgerðir á stólum.
Sjúkratryggingar Íslands sjá um viðgerðarþjónustu á stólum notendum að kostnaðarlausu. Jafnframt greiðir stofnunin flutningskostnað utan af landi/út á land.
18 09 03 Vinnustólar 100%
18 09 07 Standstólar 100%
18 09 09 Gigtarstólar („arthrodesustólar“) 100%
(stólar með skiptri setu, framhluti stillanlegur í einu eða tvennu lagi)
18 09 21 Sérstakir stólar (m.a. stólar fyrir börn, gólfsæti) 100%
18 09 39 Tilbúin setkerfi (í hjólastóla) 100%
18 09 90 Viðgerðir á stólum 100%
Sjúkratryggingar Íslands greiða ekki endurnýjun áklæðis á lyftistólum
18 09 91 Breytingar á stólum 100%
18 09 95 Sérsmíðað sæti, setur og/eða bök s.s. í hjólastóla 100% (með áklæði)
1810 Aukahlutir á vinnustóla og hjólastóla.
18 10 03 Bakpúðar/undirlag 100%
18 10 06 Sætispúðar/undirlag 100%
18 10 09 Armar á stóla 100%
18 10 12 Hnakkapúðar s.s. fyrir hjólastóla 100%
18 10 15 Fótskemlar/fótstuðningur 100%
18 10 18 Hliðarstuðningur s.s. á hjólastóla 100%
18 10 24 Borð sem fest er á stóla/hjólastóla 100%
18 10 90 Ver með sérstökum eiginleikum utan um púða sérstaklega í hjólastóla 100% 18 10 91 Aðrir aukahlutir á stóla 100%
1812 Rúm.
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um kaup á sjúkrarúmum og fylgihlutum, sjá fremst í þessum kafla.
Rúm og/eða önnur tæki tilheyrandi rúmi eru einungis greidd vegna fjölfatlaðra, hjarta- og lungnasjúklinga með sjúkdóm á háu stigi sem verða að hafa hátt undir höfði og sjúklinga sem þarfnast mikillar umönnunar í rúmi. Rúmdýnur eru greiddar 100%, hámark 44.000 kr. í sjúkrarúm með öllu tilheyrandi. Leguundirlag/yfirdýnur til varnar legusárum eru greiddar 100%.
Ekki er greitt fyrir sérútbúnað í venjuleg rúm nema þau uppfylli þær kröfur sem sérútbúnaðurinn krefst. Ekki er greitt fyrir sérútbúnað, s.s. rafmagnsstillanlegan rúmbotn og rúmlyftu, fyrir tvíbreið rúm.
Barnarúm með háum göflum og hliðargrindum (sérhönnuð/sérsmíðuð rúm) eru í undantekningartilfellum greidd 100% fyrir börn sem eru hættuleg sjálfum sér.
18 12 10 Sjúkrarúm (innifalin eru rúmbotnar, rúmgrindur og rúmlyftur) 100% 18 12 18 Rúmdýnur 100%, hámark 44.000 kr.
(innifalið er einnig leguundirlag/yfirdýnur til varnar legusárum 100%)
18 12 24 Stillanlegt höfða- og/eða fótalag 100%
18 12 26 Hliðargrindur og/eða stuðningshandföng á rúm 100%
18 12 28 Rúmgálgar 100%
18 12 90 Viðgerðir á rúmum 100%
18 12 91 Breytingar á rúmum 100%
18 12 93 Skápúðar í rúm 100%
18 12 99 Ver með sérstökum eiginleikum utan um rúmdýnur 100%
1815 Aukabúnaður fyrir húsgögn.
18 15 03 Upphækkunarklossar/-fætur 100%
(vegna slysahættu eru einungis greiddir klossar undir rúm og sófa ef fætur mynda 90° horn við gólf) 18 15 06 Hjólabúnaður 100%
1818 Stuðningsbúnaður.
18 18 03 Handrið/stuðningsgrip 100%
18 18 11 Stoðir 100%
18 18 90 Uppsetning á handriðum/stoðum 100%
18 18 91 Aukahlutir á stoðir 100%
1821 Dyra- og gluggaopnarar/-lokarar.
Fjarstýrðir dyraopnarar að íbúð/húsnæði eru greiddir fyrir þá sem eru alvarlega fatlaðir og ráða ekki við að opna/loka dyrum og eru að jafnaði einir á ferð. Gluggaopnarar eru að jafnaði greiddir fyrir þá sem búa einir og þurfa þeirra með vegna skertrar færni. Bílskúrsdyraopnari er einungis greiddur ef bílskúr er notaður sem inngangur að heimili.
18 21 03 Dyraopnarar/-lokarar 100%
18 21 06 Gluggaopnarar/-lokarar 100%
18 21 90 Bílskúrsdyraopnarar/-lokarar 50%
18 21 91 Uppsetning/taka niður dyra- og gluggaopnara/-lokara 100%
18 21 92 Viðgerðir á dyra- og gluggaopnurum/-lokurum 100%
1830 Stokkalyftur, hjólastólalyftur, sætislyftur í stiga og skábrautir.
Sjúkratryggingar Íslands leita ætíð tilboða í lyftur. Að jafnaði er ekki greitt fyrir lyftur nema upp á aðra hæð.
Heimilt er að greiða lyftur fyrir hjólastólanotendur og þá sem eru með mjög skerta göngugetu og nota gönguhjálpartæki á einkaheimili umsækjenda. Skilyrði er að umsækjandi þurfi nauðsynlega að nýta báðar hæðir húsnæðis (vegna frumþarfa), að húsnæðið henti m.t.t. fötlunar/færniskerðingar umsækjanda að öðru leyti og að ekki sé möguleiki á að skipta um húsnæði. Greiðsluþátttaka nær ekki til kaupa á lyftum í nýbyggingar nema færniskerðing sé til komin það seint í byggingarferlinu að ekki sé unnt að breyta húsnæðinu. (Einkaheimili er skilgreint þar sem ríki/sveitarfélag kemur ekki að kaupum og eða rekstri heimilis).
18 30 03 Stokkalyftur í hús (ákveðið hámark) 100%
18 30 05 Hjólastólapallalyftur milli hæða (lóðrétt og opin) (ákveðið hámark) 100%
18 30 10 Sætislyftur í stiga (ákveðið hámark) 100%
18 30 11 Hjólastólalyftur í stiga/tröppur (ákveðið hámark) 100%
18 30 15 Skábrautir, flytjanlegar 100%
18 30 18 Skábrautir, fastar 100%
18 30 90 Uppsetning á lyftum 90%
18 30 91 Varahlutir í lyftur 100%
18 30 92 Viðgerðir á lyftum 90%
18 30 93 Eftirlit á lyftum (lögbundið) 100%
18 30 99 Taka niður lyftu 100%
1833 Öryggisbúnaður á heimili.
18 33 06 Öryggisgrindur og stigastólpar 50%
(grindur og stólpar sem festir eru við tröppur, hurðir og glugga til að koma í veg fyrir fall)
22 Hjálpartæki til tjáskipta, upplýsinga og viðvörunar.
2221 Samtalshjálpartæki.
22 21 03 Bókstafa- og táknsett/töflur 100%
22 21 09 Samtalstæki, flytjanleg 100%
22 21 12 Forrit fyrir samtöl 100%
2224 Hljóðflutningskerfi.
22 24 30 Kallkerfi (dyrasímar, dyrasímastyrksstillar og einföld innanhússkallkerfi/-hringkerfi) 50%
22 24 90 Uppsetningar á dyrasíma 50%
22 24 91 Breytingar á dyrasíma 50%
2227 Viðvörunarhjálpartæki.
Öryggiskallkerfi:
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga um öryggiskallkerfisþjónustu. Greiðsla stofnunarinnar er háð því að þjónusta sé fengin hjá samningsbundnum fyrirtækjum.
Eftirfarandi gildir um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands um styrk til kaupa á þjónustu vaktstöðvar:
1. Sjúkratryggingum Íslands er heimilt að taka þátt í kaupum á þjónustu viðurkenndrar vaktstöðvar fyrir einstakling sem er svo sjúkur að honum er nauðsyn á slíkri þjónustu og býr einn eða samvistaraðili er af heilsufarsástæðum ófær um að veita aðstoð, vinnur utan heimilis fullan vinnudag eða er orðinn 67 ára. Frá skilyrðinu um að umsækjandi búi einn má víkja ef umsækjandi býr við svo mikla fötlun að hann getur ekki hringt í síma/farsíma. Svo og þegar einstaklingur sem býr með öðrum sem er alvarlega veikur og er lífsnauðsynlega háður öndunarvél eða er með alvarlegan hjarta- og æðasjúkdóm og fellur undir áhættuhóp um sérstök viðbrögð við neyðarboði, sbr. 2. hér að neðan. Greiðsluþátttaka getur verið vegna miðtaugakerfissjúkdóma/-skaða, sem hafa í för með sér lömun eða flog, eða alvarlega hjarta- og lungnasjúkdóma.
2. Notendur eru flokkaðir í tvo áhættuhópa eftir sjúkdómseinkennum. Í öðrum þeirra eru notendur með sjúkdómsástand sem kallar á sérstök viðbrögð við neyðarboði en í hinum eru notendur með sjúkdómsástand sem að jafnaði kallar á almenn viðbrögð við neyðarboði.
3. Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands tekur aðeins til íbúða þar sem Sjúkratryggingar Íslands eða aðrir opinberir aðilar greiða ekki kostnað af rekstrinum eða annast þjónustu/gæslu að einhverju eða verulegu leyti s.s. ef íbúð er samtengd eða í næsta nágrenni við slíka þjónustu/gæslu sem stendur til boða.
4. Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands skal nema 9.500 kr. vegna frumuppsetningar á viðvörunarkerfi sem vaktstöð á og þjónustar og stofnunin hefur samþykkt. Sjúkratryggingar Íslands greiða vaktstöð 7.500 kr. fyrir mánaðarlega þjónustu vegna notkunar viðvörunarkerfisins og viðbragða við boðum. Vaktstöð krefur notanda um það sem mögulega vantar á heildarfjárhæð mánaðarlegs þjónustugjalds.
5. Áður en til greiðslu Sjúkratrygginga Íslands kemur skal liggja fyrir samþykkt umsókn, byggð á nákvæmu vottorði læknis um sjúkdómsástand og þörf fyrir þjónustuna.
6. Eftirtaldar lágmarkskröfur eru gerðar varðandi búnað og þjónustu vaktstöðvar:
a) Allur búnaður skal vera viðurkenndur af þar til bærum aðilum. Boðyfirfærslukerfið skal vera tengt við vaktstöð sem starfar allan sólarhringinn og skal það bjóða upp á flutning neyðarboðs ásamt talsambandi við vaktstöð. Annaðhvort skal ástand símalínu og búnaðar prófað með sjálfvirku prófunarboði til vaktstöðvar einu sinni á sólarhring ásamt því að tæki hjá notanda vakti innkomandi línu eða sambandið milli sendibúnaðar notanda og vaktstöðvar skal vera sívaktað. Til viðbótar þessu skal kerfið prófað einu sinni í mánuði með prófunarboðum notenda og auk þess skulu notendur heimsóttir a.m.k. tvisvar á ári til að ganga úr skugga um að þeir kunni að nota búnaðinn.
b) Viðbrögð við neyðarboði sem leiðir til útkalls skulu vera í því fólgin að starfsmaður vaktstöðvar sem hefur lykla að viðkomandi húsnæði, eða annar þar til bær aðili, fari tafarlaust á staðinn og grípi til viðeigandi ráðstafana.
Viðvörunarbúnaður vegna hættu:
Sjúkratryggingum Íslands er heimilt að taka þátt í greiðslu vegna viðvörunarbúnaðar vegna hættu, svo sem af völdum hita, elds eða reyks, fyrir þá sem eru með skert minni vegna elliglapa eða heilaskaða.
22 27 15 Rafstýrð dagatöl 100%
(rafstýrð tæki til að skipuleggja og minna á athafnir og tíma, geta verið með innbyggðu tali)
22 27 16 Minnishjálpartæki 100%
22 27 18 Öryggiskallkerfi (til ytra kalls í gegnum símakerfi), fastur styrkur m/ákv. hámarki
9.500 kr. í frumuppsetningu og 7.500 kr. í mánaðargjaldi
22 27 21 Viðvörunarbúnaður vegna hættu, s.s. af völdum hita, elds eða reyks 50% (t.d. fyrir eldavélar)
22 27 27 Merkibúnaður 100%
(t.d. bjöllur og blikkljós)
22 27 90 Krampaviðvörunartæki fyrir flogaveika 70%
22 27 91 Uppsetning á krampaviðvörunartæki fyrir flogaveika 70% þegar þess þarf
(styrkur samkvæmt verðkönnun hverju sinni)
2230 Lestrarhjálpartæki.
22 30 12 Blaðflettarar 100%
22 30 90 Viðgerðir á blaðfletturum 100%
2233 Tölvur.
Sjúkratryggingar Íslands greiða einungis fyrir tölvur sem eru hjálpartæki til tjáskipta vegna mjög mikilla örðugleika við munnleg og/eða skrifleg tjáskipti enda sé mikill sérútbúnaður forsenda fyrir notkun tölvunnar eða viðkomandi býr einn og notar tölvu sem einu tjáskiptaleiðina. Mat sérfræðings, s.s. iðjuþjálfa, sálfræðings eða sérkennara, verður að liggja fyrir á því hvort viðkomandi geti nýtt sér tölvu til tjáskipta, s.s. færnimat, þroskamat og greindarpróf.
Tölvur eru ekki greiddar fyrir einstaklinga sem hafa greindarvístölu undir 50. Áður en tölvu er úthlutað til þroskahefts og/eða einhverfs einstaklings þarf að hafa farið fram lágmarksþjálfun og vera komin nægileg reynsla á hvort tölva auðveldi og bæti tjáskipti.
Að jafnaði eru tölvur ekki greiddar fyrir fjölfötluð börn fyrr en á því almanaksári sem þau ná sex ára aldri.
Almennt viðhald tölvu og prentara er á kostnað notanda en Sjúkratryggingar Íslands greiða viðgerðir á sérútbúnaði.
22 33 03 Tölvur 100% (hámarksstyrkur samkvæmt verðkönnun hverju sinni)
22 33 06 Fartölvur og spjaldtölvur 100% (hámarksstyrkur skv. verðkönnun hverju sinni) 22 33 15 Forrit fyrir samskipti/tjáskipti 100%
22 33 91 Viðgerðir á tölvubúnaði 100%
22 33 93 Tölvutjáskiptabúnaður í rafknúna hjólastóla 100% (hámarksstyrkur samkvæmt verðkönnun hverju sinni)
22 33 94 Vinna vegna tölvubúnaðar 100% (hámarksstyrkur samkvæmt verðkönnun hverju sinni)
2236 Inntaksbúnaður fyrir tölvur.
22 36 21 Músatæki 100% (s.s. stýristautar (stýripinnar), snertiskjáir og stýrikúlur)
2239 Úttaksbúnaður fyrir tölvur.
Útbúnaður fyrir tölvutal (talgervill) er greiddur sem hjálpartæki fyrir fjölfatlaða sem geta ekki tjáð sig munnlega og þegar notagildið er ótvírætt og jafnvel eina leiðin til tjáskipta.
22 39 12 Útbúnaður fyrir tölvutal (talgervill) 100% (hámarksstyrkur skv. verðkönnun hverju sinni)
24 Hjálpartæki til að meðhöndla tæki eða hluti.
2409 Stjórntæki.
24 09 18 Rofar 100%
24 09 90 Viðgerðir á rofum 100%
24 09 91 Breytingar á rofum 100%
24 09 92 Varahlutir í rofa 100%
2413 Hjálpartæki til stjórnunar á umhverfi.
24 13 03 Fjarstýrikerfi 100%
24 13 06 Forrit fyrir fjarstýrikerfi 100%
24 13 90 Uppsetning á fjarstýrikerfi 100%
24 13 91 Breytingar á fjarstýrikerfi 100%
24 13 92 Viðgerðir á fjarstýrikerfi 100%
2418 Hjálpartæki vegna skertrar færni í höndum/fingrum.
24 18 09 Haldarar, líkamsbornir, fyrir ennis-, höku- og munnpinna 100%
24 18 12 Statíf (t.d. vökvastatíf vegna næringar um slöngu eða í æð) 100%
24 18 15 Stýripinnar (s.s. ennis-, höku- og munnpinnar) 100%
24 18 18 Bendiljós 100%
24 18 27 Framhandleggsstuðningur 100%
24 18 90 Lyklaborðshlífar 100%
2421 Tæki til framlengingar.
24 21 03 Griptangir 100%
24 21 09 Framlengingar án grips 100%
2424 Tæki til skorðunar.
24 24 03 Grindur/haldarar 100%
(t.d. haldarar fyrir bolla/glös/hnífapör svo og fyrir fjarstýringar og samtalstæki)