Prentað þann 21. des. 2024
Brottfallin reglugerð felld brott 1. júlí 2021
395/2021
Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð nr. 1155/2013 um styrki vegna hjálpartækja.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á fylgiskjalinu "Hjálpartæki Sjúkratrygginga Íslands" með reglugerðinni:
a) | Í flokknum 0419 Hjálpartæki til lyfjaskömmtunar verður eftirfarandi breyting: | |
b-liður 1. mgr. verður svohljóðandi: | ||
b) | 200/750/1100/2000/2500 stk. á 12 mánaða tímabili fyrir þá sem nota nema sem skannar/síritar blóðsykur og fá 200/750/1100/2000/2500 stk. blóðstrimla á sama tímabili. | |
b) | Í flokknum 0424 Búnaður (tæki og efni) til mælinga (efnamælinga) verður eftirfarandi breyting: | |
a. | Á eftir "200/750/1100" í 1. mgr. b-liðar kemur: /2000/2500. | |
b. | Á eftir "4/15/22" í 1. mgr. b-liðar kemur: /40/50. |
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 26. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 25. mars 2021.
Svandís Svavarsdóttir.
Elsa B. Friðfinnsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.