Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 14. jan. 2022 – 1. jan. 2023 Sjá núgildandi
Sýnir breytingar gerðar 14. jan. 2022 af rg.nr. 1738/2021

260/2017

Reglugerð um starfstíma framhaldsskóla.

1. gr.

Árlegur starfstími nemenda í framhaldsskólum skal miðast við 180 kennslu- og námsmatsdaga. Skólameistari ákveður, að höfðu samráði við skólaráð og almennan kennarafund, upphaf og lok skólastarfs ár hvert á bilinu 18. ágúst - 31. maí. Hann skal tilkynna kennurum og nemendum þá ákvörðun fyrir lok næsta skólaárs á undan.

Skólameistari ákveður, að höfðu samráði við skólaráð og almennan kennarafund, hvernig fyrrnefndir 180 dagar skiptast milli kennslu og námsmats og helgast það af skólastarfi og námsmatsaðferðum skólans.

 Árið 2022 er skólameistara heimilt að ákveða, að höfðu samráði við skólaráð og almennan kennarafund, hvernig starfsemin innan fyrrnefndra 180 daga skiptist á milli undirbúnings, kennslu og námsmats.

2. gr.

Vilji skóli starfrækja sumarönn skal hann leita heimildar mennta- og menningarmálaráðherra. Um starfsemi framhaldsskóla á sumarönn fer samkvæmt námskrá handa framhaldsskólum og gildandi lögum og reglugerðum um starfsemi þeirra.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 15. laga nr. 92/2008, um framhaldsskóla, og öðlast þegar gildi. Um leið fellur úr gildi reglugerð nr. 6/2001, um starfstíma framhaldsskóla og leyfisdaga.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.