Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1738/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 260/2017 um starfstíma framhaldsskóla.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein sem verður 3. mgr. og orðast svo:

Árið 2022 er skólameistara heimilt að ákveða, að höfðu samráði við skólaráð og almennan kennarafund, hvernig starfsemin innan fyrrnefndra 180 daga skiptist á milli undirbúnings, kennslu og námsmats.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. mgr. 15. gr. laga um framhaldsskóla með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Reglugerð þessi fellur úr gildi 31. desember 2022.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 29. desember 2021.

Ásmundur Einar Daðason
mennta- og barnamálaráðherra.

Páll Magnússon.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.