Fara beint í efnið

Prentað þann 23. apríl 2024

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 19. ágúst 2020 – 31. maí 2021 Sjá núgildandi
Sýnir breytingar gerðar 19. ágúst 2020 af rg.nr. 799/2020

260/2017

Reglugerð um starfstíma framhaldsskóla.

1. gr.

Árlegur starfstími nemenda í framhaldsskólum skal miðast við 180 kennslu- og námsmatsdaga. Skólameistari ákveður, að höfðu samráði við skólaráð og almennan kennarafund, upphaf og lok skólastarfs ár hvert á bilinu 18. ágúst - 31. maí. Hann skal tilkynna kennurum og nemendum þá ákvörðun fyrir lok næsta skólaárs á undan.

Skólameistari ákveður, að höfðu samráði við skólaráð og almennan kennarafund, hvernig fyrrnefndir 180 dagar skiptast milli kennslu og námsmats og helgast það af skólastarfi og námsmatsaðferðum skólans.

 Skólaárið 2020-2021 er skólameistara heimilt að ákveða, að höfðu samráði við skólaráð og almennan kennarafund, hvernig starfsemin innan fyrrnefndra 180 daga skiptist á milli undirbúnings, kennslu og námsmats.

2. gr.

Vilji skóli starfrækja sumarönn skal hann leita heimildar mennta- og menningarmálaráðherra. Um starfsemi framhaldsskóla á sumarönn fer samkvæmt námskrá handa framhaldsskólum og gildandi lögum og reglugerðum um starfsemi þeirra.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 15. laga nr. 92/2008, um framhaldsskóla, og öðlast þegar gildi. Um leið fellur úr gildi reglugerð nr. 6/2001, um starfstíma framhaldsskóla og leyfisdaga.

 Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 15. mars 2017. 

 Kristján Þór Júlíusson. 

 Ásta Magnúsdóttir. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.