Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Nýr örorkulífeyrir

Auðlesið – örorku·lífeyrir

Örorku·lífeyrir er peningur sem sumt fólk fær frá Tryggingastofnun.
Til að fá örorku·lífeyri þarf fólk að eiga rétt á peningunum.

Örorku·lífeyrir tók breytingum 1. september 2025.

Nýr örorku·lífeyrir kom í staðinn fyrir þrjár greiðslur í gamla kerfinu:

  • örorku·lífeyri

  • tekjutryggingu

  • framfærslu·uppbót.


Fyrir hverja er örorku·lífeyririnn?

Örorku·lífeyrir er fyrir fólk sem hefur 0 til 25% getu til að vinna.

Samþætt sérfræði·mat er notað til að meta getu til að vinna.

Smelltu hér til að lesa um samþætt sérfræði·mat á auðlesnu máli.


Hvað fæ ég mikið í örorku·lífeyri?

Það er margt sem breytir því hvað þú færð mikið frá Tryggingastofnun.

Til dæmis:

  • aldur

  • hvar þú átt heima

  • hvort þú býrð einn

  • hvort þú átt börn

  • hvað þú færð mikið í laun

  • hvort þú hefur búið í útlöndum

Þá getur þú séð hvað þú færð mikið á Mínum síðum TR.


Fullur örorku·lífeyrir er:

  • 416.950 krónurá mánuði.

Sumir fá líka sérstaka greiðslu sem heitir heimilis·uppbót.

Heimilisuppbót er 69.126 krónur mest á mánuði.

Með heimilis·uppbót er fullur örorku·lífeyrir:

  • 462.049 krónur á mánuði.

Sumir fá líka sérstaka greiðslu sem heitir aldurs·viðbót.

Aldurs·viðbót er mest 32.917 krónur á mánuði.

Með heimilis·uppbót og aldurs·viðbót er fullur örorku·lífeyrir mest:

443.942 krónur á mánuði.

Athugaðu: Þessar tölur eru fyrir skatt.

Það þýðir að þú færð kannski minna á bankareikninginn þinn.

Fæ ég minni pening frá Tryggingastofnun ef ég er að vinna?

Örorku·lífeyrir er tekjutengdur.

Það þýðir að tekjur geta haft áhrif á hvað þú færð mikið frá Tryggingastofnun.

Tekjur eru til dæmis:

  • Laun fyrir vinnu

  • Fjármagns·tekjur

  • Peningar frá lífeyris·sjóði

Tekjurnar þínar eru með frítekju·mark.

Frítekju·markið fyrir örorku·lífeyri er 105.200 krónur á mánuði.

Frítekju·markið virkar svona:

Eru tekjurnar þínar minna en 105.200 krónur á mánuði?

Þá færðu ekki minni pening frá Tryggingastofnun.

Eru tekjurnar þínar meira en 105.200 krónur á mánuði?

Þá færðu minni pening frá Tryggingastofnun.

Þú færð samt meiri pening í heildina.


Áttu barn?

Þá færð þú áfram barna·lífeyri.

Frekari upplýsingar fyrir örorku·lífeyrir


Hér fyrir neðan eru helstu spurning·arnar sem þú gætir haft.
Smelltu á spurningu til að lesa svarið.
Það getur verið gott að lesa öll svörin.

Meira efni á auðlesnu máli

Lestu meira um nýja kerfið


Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun