Fara beint í efnið

Heimilisuppbót fyrir lífeyrisþega sem búa einir

Umsókn um heimilisuppbót

Umsóknarferli

Þegar þú sækir um lífeyri er mögulegt að sækja um heimilisuppbót í leiðinni. Hún er hluti af umsóknarferlinu og er afgreidd á sama tíma og þú færð aðrar greiðslur lífeyris.

Hins vegar getur réttur á heimilisuppbót skapast eftir að lífeyrisgreiðslur hefjast. Þá er hægt að fylla út sér umsókn um heimilisuppbót á Mínum síðum.

Svona sækir þú um

  1. Smelltu á Sækja um

  2. Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum

  3. Veldu Umsóknir

  4. Veldu umsóknina Heimilisuppbót

  5. Fylltu út umsóknina og hengdu við fylgigögn ef þú ert með þau tiltæk.

  6. Smelltu á Senda umsókn

Athugaðu að skrá frá hvaða tíma sótt er um.

Afturvirkni umsókna

Heimilisuppbót er greidd frá fyrsta degi næsta mánaðar eftir að skilyrði eru uppfyllt. Hægt er að sækja um allt að tvö ár afturvirkt.

Vinnslutími umsóknar

Vinnslutími umsókna um heimilisuppbót er allt að 4 vikur. Ef sótt er um afturvirkt getur vinnslutíminn tekið lengri tíma.

Þú getur fylgst með stöðu umsókna á Mínum síðum undir Staða umsókna. Ef það vantar gögn færðu tölvupóst og tilkynningu á Mínum síðum undir Mín skjöl

Niðurstaða

Þegar niðurstaða liggur fyrir færðu tölvupóst og tilkynningu á Mínum síðum TR undir Mín skjöl.

Þar getur þú einnig séð upphæðir út árið í greiðsluáætlun.

Ef þú ert ósammála ákvörðuninni getur þú:

Greiðslur heimilisuppbótar

Heimilisuppbót er fyrirframgreidd fyrsta dag hvers mánaðar með öðrum lífeyrisgreiðslum.

Ef greiðslur eru samþykktar afturvirkt er inneign greidd út eins fljótt og auðið er á þann bankareikning sem skráður er á Mínar síður.

Umsókn um heimilisuppbót

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun