Fara beint í efnið
Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Umboðsmaður viðskiptavina TR

Umboðsmaður viðskiptavina TR vinnur að bættum starfsháttum í þágu viðskiptavina okkar með það að leiðarljósi að meðferð mála sé í samræmi við lög og vandaða stjórnsýsluhætti.

Umboðsmaður veitir leiðbeiningar  um  meðferð mála hjá Tryggingastofnun og aðstoðar þau sem telja sig ekki hafa fengið efnislega umfjöllun eða úrlausnir í samræmi við gildandi lög og reglur.

Þegar á þarf að halda veitir umboðsmaður ráðgjöf varðandi endurupptöku og kæruleiðir.

Erindi til umboðsmanns

Í erindi til umboðsmanns þarf að koma fram:

  • lýsing á málavöxtum

  • að hverju kvörtunin/erindið snýr

  • hvaða úrbóta eða breytinga er óskað varðandi meðferð eða úrlausn málsins

Erindi eru send skriflega á umbodsmadur@tr.is

Hvaða mál tekur umboðsmaður fyrir?

Umboðsmaður tekur mál almennt fyrir ef:

  • talið er að málið hafi ekki fengið efnislega umfjöllun

  • úrlausn er ekki talin vera í samræmi við gildandi lög og reglur

  • þörf er á ráðgjöf um endurupptöku og/eða kæruleiðir

Umboðsmaður tekur mál almennt ekki fyrir ef:

  • það er í vinnslu innan Tryggingastofnunar og almennur afgreiðslutími er ekki liðinn

  • það er til meðferðar hjá úrskurðarnefnd velferðarmála, Umboðsmanni Alþingis eða dómstólum

  • það eru meira en tvö ár liðin frá stjórnvaldsákvörðun

Öll innsend erindi eru þó skoðuð og hvert mál metið fyrir sig.

Jóhanna Ósk Baldvinsdóttir, umboðsmaður viðskiptavina.