Greiða skuld við Tryggingastofnun
Breytingar á aðstæðum þínum eða tekjum geta haft áhrif á greiðslur þínar.
Þú þarft alltaf að láta vita ef aðstæður þínar breytast og uppfæra tekjuáætlun í samræmi við tekjur þínar því annars getur myndast skuld við Tryggingastofnun.
Ef þú hefur fengið of mikið greitt miðað við það sem þú átt rétt á, þarft þú að borga það til baka.
TR dreifir endurgreiðslu sjálfkrafa á 12 mánuði en þó að lágmarki 3.000 krónur á mánuði af hverri kröfu. Engir vextir eru lagðir á skuldina. Meginreglan er að þú borgir innan 12 mánaða. TR hefur heimild til að draga að hámarki 20% af greiðslum þínum mánaðarlega upp í skuld. Ef upphæð endurgreiðslu sem dreift er á 12 mánuði er hærra en 20% af greiðslum til þín mánaðarlega er sendur greiðsluseðill í heimabanka fyrir skuldinni nema þú óskir eftir öðru. Hámarks greiðsludreifing er 36 mánuðir. Í sérstökum tilvikum er hægt að semja um lengri greiðsludreifingu með því að senda tölvupóst á innheimta@tr.is
Hvernig endurgreiði ég?
Það eru nokkrar leiðir til að borga skuldina:
Þú getur greitt alla upphæðina í einu með millifærslu í banka.
Þú getur óskað eftir mánaðarlegum frádrætti af greiðslum.
Þú getur beðið um greiðsluseðla í heimabanka.
Ósk um breytta greiðsludreifingu
Ef þú vilt breyta greiðsluleið eða semja um greiðsludreifingu getur þú sent beiðni á Mínum síðum undir Skuldir og samningar eða á innheimta@tr.is.
Gagnlegt myndband um hvernig hægt er að greiðsludreifa skuld á Mínum síðum:
Frestur eða greiðsluhlé
Almennt er ekki hægt að fresta eða setja endurgreiðslu á skuld í bið.
Álag
Ef þú hefur gefið rangar, villandi eða ófullnægjandi upplýsingar er heimilt að bæta 15% álagi á upphæð skuldar.
Þú getur óskað eftir nánari skýringu eða rökstuðning á Mínum síðum TR eða sent erindi á innheimta@tr.is.
Innheimta - algengar spurningar
Síðast yfirfarið: 9. nóvember 2026
Þjónustuaðili
Tryggingastofnun