Greiða skuld við Tryggingastofnun
Ef þú borgar ekki á réttum tíma
Ef þú borgar ekki greiðsluseðil frá TR fyrir 10. hvers mánaðar færð þú áminningarbréf sent á Mínar síður TR.
Ef þú hefur misst út greiðslu þarft þú að:
borga greiðsluseðil í heimabanka, eða
hafa samband við Tryggingastofnun.
Aðstoð vegna greiðsluvanda
Ef þú átt erfitt með að borga eða heldur að þú gætir misst út greiðslu getur þú fengið aðstoð hjá TR.
Þú getur:
sent erindi á Mínum síðum TR
sent tölvupóst á innheimta@tr.is
hringt í þjónustuver í síma 560 4400
Ef þú bregst ekki við
Ef þú bregst ekki við áminningarbréfi er send innheimtuviðvörun. Frestur til að borga eða hafa samband við TR eru 20 dagar.
Ef þú hefur ekki brugðist við innan 20 daga er krafan send í innheimtu hjá sýslumanni. Ef krafa fer í innheimtu hjá sýslumanni leggjast 5.5% ársvextir á eftirstöðvar skuldar.
Innheimta - algengar spurningar
Þjónustuaðili
Tryggingastofnun