Fara beint í efnið

Uppgjör dánarbús - réttindi og skyldur dánarbús gagnvart TR

Dánarbú tekur við öllum fjárhagslegum skyldum sem hvíldu á þeim látna. Réttindi og skyldur dánarbús og erfingja gagnvart TR fara eftir því hvernig skiptum dánarbús er háttað.

Mikilvægt er að umboðsmenn dánarbúa eða erfingjar skili inn skattframtali fyrir dánarbúið til skattsins.

Tryggingastofnun endurreiknar greiðslur ársins út frá staðfestu skattframtali og við útreikning getur myndast skuld eða inneign.

Það er óþarfi að senda yfirlit yfir framvindu skipta til TR, þau koma sjálfvirkt frá sýslumanni.

Skuld myndast við endurreikning á dánarbúi

Ef skuld myndast við endurreikning á dánarbúi er TR skylt að innheimta kröfu hjá dánarbúum eða erfingjum, óháð því hvort skuld hafi stofnast fyrir eða eftir lok skipta.

Krafa fellur ekki niður þó að skiptum dánarbús sé lokið. Ábyrgð á greiðslu skuldar er í höndum erfingja.

Krafa fellur niður ef:

  • Krafa er lægri en 1.000 krónur fyrir skatt.

  • Dánarbú er lýst eignarlaust skv. 25 eða 26. gr. laga um dánarbú.

  • TR hefur ekki lýst kröfu innan kröfulýsingarfrests vegna opinberra skipta.

  • Krafa hefur stofnast eftir að kröfulýsingarfresti lýkur og skiptastjóri viðurkennir af þeim sökum ekki kröfuna í opinberum skiptum.

Samningur um endurgreiðslu á skuld vegna dánarbús

Þú getur samið um endurgreiðslu skuldar við dánarbú og hægt er að dreifa greiðslu í allt að 12 til 36 mánuði.

Til að fá frekari upplýsingar eða semja um endurgreiðslu getur þú haft samband við innheimta@tr.is

Inneign myndast við endurreikning á dánarbúi

Ef inneign myndast við endurreikning á dánarbúi eiga erfingjar rétt á að fá hana greidda.

Hvernig er inneign greidd út:

  • Inneign er lögð inn á skráðan bankareikning hins látna hafi honum ekki verið lokað.

  • Hafi reikningi verið lokað þarf umboðsmaður dánarbús að koma upplýsingum um nýjan bankareikning til TR.

  • Ef það er enginn umboðsmaður fyrir dánarbúið eða skiptum er lokið þarf einn erfingi að fá umboð annarra erfingja til að taka við inneign.

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun