Fara beint í efnið
Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Hafðu samband

Við viljum að það sé einfalt og þægilegt að ná í okkur. Hér fyrir neðan finnur þú þær samskiptaleiðir sem við bjóðum upp á, svo þú getir valið þá leið sem hentar þér best.

Hvort sem þú hefur spurningar, þarft ráðgjöf eða vilt fá frekari upplýsingar, þá erum við ávallt tilbúin að aðstoða þig.

Rafræn auðkenning

Rafræn auðkenning er notuð í samskiptum við okkur til að tryggja öryggi og vernda persónuupplýsingar. Hún gerir okkur kleift að veita örugga þjónustu og sannreyna að upplýsingar fari til rétts aðila.

Fyrir þau sem hafa ekki aðgang að rafrænni auðkenningu þá þarf að gefa upp kennitölu og leyninúmerið sem þú finnur á Mínum síðum TR.

Ef þú ert að hafa samband við fyrir annan aðila en þig þá þarft þú að hafa umboð frá þeim aðila svo TR sé heimilt að gefa þér upp persónuupplýsingar. Hér er hægt að veita öðrum aðila umboð til þess að sjá um þín mál hjá TR.

Netspjall – AI aðstoð alltaf til staðar

Ef fyrirspurn þín er almenn hvetjum við þig til að nýta netspjallið okkar. Það er opið allan sólarhringinn og getur veitt skjót og örugg svör við algengum spurningum.

Þannig færðu aðstoð þegar þér hentar – án þess að þurfa að bíða.

Viðskiptavinir geta fengið samtal við sérfræðinga í netspjalli milli klukkan 10.00 og 15.00. Þá þarf að velja einn af eftirfarandi málaflokkum til að fá samtal við réttan sérfræðing:

  • Greiðslur barna​

  • Ellilífeyrir​

  • Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur​

  • Örorkulífeyrir​

  • Innheimta og uppgjör

Hringdu í okkur

Símanúmer Tryggingastofnunar er 560 4400.

Þjónustuverið okkar svarar alla virka daga frá klukkan 10.00 til 15.00.

Komdu til okkar

Þjónustumiðstöð okkar að Hlíðasmára 11 er opin alla virka daga milli klukkan 10.00 og 15.00.

Sendu fyrirspurn

Hér er hægt að senda okkur fyrirspurn með öruggum hætti.

Til að tryggja öryggi og vernda persónuupplýsingar þarf að auðkenna sig rafrænt áður en fyrirspurn er send inn. Það er hægt að gera með rafrænum skilríkjum í síma eða í gegnum auðkennisapp.

Þjónustuvefur

Veitir svör við algengum spurningum.

Embætti sýslumanna

Umboðsmenn TR starfa hjá sýslumönnum um land allt. Leiðir til að hafa samband við umboðsmenn TR má finna á vefsvæði sýslumanna.

Noona viðtal

Hægt er að bóka samtal við sérfræðing ef ekki hefur fengist úrlausn mála þinna í almennri ráðgjöf hjá TR. Samtalið fer fram í Hlíðasmára 11 eða í gegnum síma. Nauðsynlegt er að tilgreina erindi við bókun.

Athugið að aðstoð við gerð tekjuáætlana fellur ekki undir Noona viðtöl. Hægt er að koma til okkar í þjónustumiðstöð eða til umboðsmanna TR hjá sýslumönnum til að fá aðstoð við það.

Noona viðtöl við málastjóra á örorkusviði

Þegar sótt er um örorkulífeyri er þér úthlutaður málastjóri sem fylgir þér á meðan á umsóknarferli stendur. Hægt er að bóka viðtal við þinn málastjóra í gegnum Noona.

Netföng einstakra sviða innan TR

Síðast yfirfarið: 9. nóvember 2026